Morgunblaðið - 21.11.2015, Side 40
40 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2015
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Ingólfsstræti 19,
Reykjavík, laugardag: Biblíufræðsla kl. 11, guðsþjón-
usta kl. 12. Ræðumaður Indro Candi. Barna- og
unglingastarf.
Sameiginleg máltíð verður að lokinni guðsþjónustu.
AÐVENTKIRKJAN í Vestmannaeyjum | Brekastíg
17, Vestmannaeyjum, laugardag: Guðsþjónusta kl.
12. Ræðumaður Eric Guðmundsson.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Akureyri | Eiðs-
vallagötu 14, Gamla Lundi, laugardag: Biblíu-
rannsókn kl. 11, guðsþjónusta kl. 12. Barnastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suðurnesjum | Blika-
braut 2, Keflavík. Laugardag: Biblíufræðsla kl. 11,
guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður: Björgvin Snorra-
son
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi | Eyravegi 67,
Selfossi. Laugardag: Biblíufræðsla kl. 10, guðsþjón-
usta kl. 11. Ræðumaður: Jóhann Þorvaldsson.
Barna- og unglingastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnarfirði | Hóls-
hrauni 3, Hafnarfirði. Laugardag: Guðsþjónusta kl.
11. Ræðumaður: Stefán Rafn Stefánsson. Biblíu-
fræðsla kl. 11:50. Barna- og unglingastarf. Umræðu-
hópur á ensku. Súpa og brauð eftir samkomu.
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Um-
sjón sr. Sunna Dóra Möller og Sigrún Magna Þór-
steinsdóttir. Yngri barnakór Akureyrarkirkju syngur.
Paramessa í Akureyrarkirkju kl. 20.00. Prestur er
Hildur Eir Bolladóttir. Hjónin Þórhildur Örvarsdóttir og
Skúli Gautason flytja tónlist og hugleiðingu. Anna
Lóa Ólafsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, flytur erindi
um vellíðan í samböndum.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Þór
Hauksson þjónar fyrir altari. Fritz Már B. Jörgensson,
guðfræðingur og doktorsnemi, prédikar. Kirkjukórinn
syngur undir stjórn Krisztine K. Szklenár organista.
Barnamessa á sama tíma í umsjón Valla og Sylvíu.
Kaffi og meðlæti á eftir.
ÁSKIRKJA | Útvarpsmessa og barnastarf kl. 11.
Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt Viðari Stefánssyni guðfræðingi. Jar-
þrúður Árnadóttir og Sigfús Jónasson guð-
fræðinemar annast samverustund sunnudagaskól-
ans. Kammerkór Áskirkju syngur, organisti Magnús
Ragnarsson. Heitt á könnunni eftir messu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í
umsjá Hólmfríðar S. Jónsdóttur. Gospelguðsþjón-
usta kl. 20. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn
Matthíasar V. Baldurssonar. Sérstakir gestir: Emil
Hreiðar Björnsson og Íris Lind Verudóttir. Prestur
verður Ragnar Gunnarsson og tæknistjóri Sigurður
Þórisson.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekku-
skógum 1. Umsjón með stundinni hafa Fjóla og Arn-
grímur Bragi.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Árni Svanur, Rannveig Iðunn og
Páll organisti leiða. Sunnudagaskólinn í Braut-
arholtskirkju er annan hvern sunnudag kl. 11.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11. Sr. Þórhallur Heimisson þjónar ásamt Steinunni
Þorbergsdóttur. Organisti er Örn Magnússon. Hress-
ing í safnaðarheimili á eftir.
Tómasarmessa kl. 20. Fyrirbæn og tónlist. Kaffi í
safnaðarheimili á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa klukkan 11. Um-
sjón hafa Petra og Daníel og Jónas Þórir leikur á
hljóðfærið. Kvenfélagsmessa kl. 14. Hólmfríður
Ólafsdóttir djákni leiðir stundina og prédikar. Kaffi-
sala Kvenfélags Bústaðasóknar eftir messu. Org-
anisti Jónas Þórir. Messuþjónar aðstoða. Kaffi eftir
messuna.
DIGRANESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl.
11. Sr. Magnús Björn Björnsson þjónar fyrir altari. Sr.
Toshiki Toma prédikar. Hljómsveitin Ávextir andans
leiðir safnaðarsöng. Eftir messu er hádegisverður í
safnaðarsal. Fermingarfræðsla er kl. 12.30.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa
kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka
daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á
spænsku og kl. 18 er sunnudagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Í þakklætisskyni fyrir
viðgerð og málun kórsins býður sóknarnefndin í tertu
í Safnaðarheimilinu eftir messu. Kirkjunefndarkonur
munu lesa ritningarlestra. Karl Sigurbjörnsson bisk-
up messar. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þor-
mar. Sunnudagaskólinn á kirkjuloftinu hjá Óla og
Sigga.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Lilja
Hallgrímsdóttir djákni prédikar. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson þjónar fyrir altari ásamt Kristínu Krist-
jánsdóttur djákna. Gerðubergskórinn syngur. Stjórn-
andi er Kári Friðriksson. Organisti Arnhildur Valgarðs-
dóttur. Sólveig Aðalbjört leikur á selló. Meðhjálpari
Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Sunnudagaskóli kl. 11 í
umsjá Péturs Ragnhildarsonar og félaga.
Kaffi í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11.
Hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 14. Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur
leiðir stundina. Fermingarbörn taka þátt. Sönghópur
Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tónlistina ásamt Erni
Árnasyni gítarleikara. Barnakór Fríkirkjunnar syngur
undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sameiginlegt upp-
haf í barnastarfi, sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar.
Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stórn Valmars Välja-
ots. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Gunnlaugur Garð-
arsson þjónar. Krossbandið leiðir söng.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór kirkjunnar syngur. Organisti: Hákon Leifs-
son. Sunnudagaskóli kl. 11. Séra Vigfús Þór Árna-
son. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir. Undir-
leikari: Stefán Birkisson.
GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG |
Guðsþjónusta kl. 13. Séra Vigfús Þór Árnason pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Vox Populi syngur. Org-
anisti: Hilmar Örn Agnarsson. Sunnudagaskóli á
sama tíma. Umsjón hefur Rósa Ingibjörg Tóm-
asdóttir. Undirleikari: Stefán Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10, bæna-
stund kl. 10:15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Ástu Lóu,
Silviu o.fl. Messa kl. 11. Altarisganga.
Samskot til langveikra barna. Messuhópur þjónar.
Félagar úr kirkjukór Grensáskirkju leiða söng. Org-
anisti Ásta Haraldsdóttir. Prestur Ólafur Jóhanns-
son. Molasopi eftir messu.
Hversdagsmessa með léttu sniði á fimmtudag kl.
18.10. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlist.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjónusta
og barnastarf kl. 11. Prestur Karl V. Matthíasson,
organisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju
syngur. Barnakór Ingunnarskóla syngur í messunni
undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur. Barnastarf í
umsjá Önnu Dúnu og Ásbjargar Jónsdóttur, yngstu
börnin í barnakórnum koma og syngja í sunnudaga-
skólanum. Meðhjálpari Kristbjörn Árnason. Kirkju-
vörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi eftir
messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Félagar úr Barbörukórnum syngja,
organisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur er Þór-
hildur Ólafs. Leiðtogar í barnastarfi eru Margrét
Heba og Una.
Hressing í Strandbergi eftir stundirnar.
Miðvikudagur 25. nóvember. Morgunmessa kl.
8.15.
Organisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur er sr.
Jón Helgi Þórarinsson. Morgunmatur í Odda Strand-
bergs safnaðarheimilis.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt rev. Leonard Ashford og messuþjónum.
Félagar úr Mótettukórnum syngja, organisti er Hörð-
ur Áskelsson. Barnastarf er í umsjá Ingu Harð-
ardóttur. Bænastund mánudaga kl. 12.15, fyr-
irbænastund þriðjudaga kl. 10.30, morgunmessa
miðvikudaga kl. 8 og kyrrðarstund fimmtudaga kl.
12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð syngur undir stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur. Kórfélagar leika á hljóðfæri, lesa ritn-
ingarlestra og þjóna fyrir altari ásamt sóknarpresti,
Helgu Soffíu Konráðsdóttur. Barnastarf í umsjá
Grímu Ólafsdóttur og Birkis Bjarnasonar. Organisti
Kári Allansson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Hefðbundin messa á
efri hæðinni og sunnudagaskóli niðri. Báðar stund-
irnar hefjast kl. 11. Uppi í kirkjunni eru það Sigfús við
altarið og Guðný við orgelið sem leiða stundina.
Einnig mun hópur úr Kór Hjallakirkju leiða söng. Niðri
eru það Heiðbjört og Markús sem stjórna.
Kaffi og kex í salnum uppi.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl. 13. Lof-
gjörð og fyrirbænir. Guðjón Vilhjálmsson prédikar.
Vestur-Íslendingur frá Kanada verður gestur. Barna-
starf á sama tíma. Kaffi eftir stundina.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli
kl. 11, sameiginlegt upphaf. Kór Keflavíkurkirkju
syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista.
Messuþjónar taka á móti gestum og lesa texta,
prestur er Eva Björk Valdimarsdóttir. Sunnudaga-
skóli er í umsjón Systu, Önnu Huldu og Estherar.
Súpuþjónar reiða fram súpu og brauð að lokinni at-
höfn. Kyrrðarstund alla miðvikudaga kl. 12.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sig-
urður Arnarson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku
Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnudagaskóli hefst í
kirkjunni en heldur eftir upphaf guðsþjónustu í safn-
aðarheimilið Borgir. Umsjón með sunnudagaskóla
hafa Bjarmi Hreinsson, Oddur Örn Ólafsson og Þóra
Marteinsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Sr.
Jóhanna Gísladóttir og Snævar Jón Andrjesson leiða
stundina og fá hjálp frá messuþjónum og ferming-
arbörnum. Yngri hópar Krúttakórs Langholtskirkju
undir stjórn Bjargar Þórsdóttur og Thelmu Hrannar
Sigurdórsdóttur leiða safnaðarsöng og taka lagið.
Birna Kristín Ásbjörnsdóttir spilar undir. Skírn í
messunni. Kaffi, djús og piparkökur eftir stundina í
safnaðarheimilinu.
LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli
kl. 11. Sóknarprestur prédikar og þjónar ásamt
messuþjónum. Kjartan Sigurjónsson leikur á orgelið.
Kaffi eftir samveruna.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
Rut Magnúsdóttur djákna. Vorboðar, kór eldri borg-
ara, leiða sönginn, organisti er Guðmundur Ómar
Óskarsson. Barnastarf er í Lágafellskirkju kl. 13 í
umsjá Rutar G. Magnúsdóttur djákna.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli kl.
11. Hafdís og Klemmi koma og sýna leikrit.
Messa kl. 20. Fermdur verður Einar Fannar Valsson.
Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Ein-
arssonar. Prestur: Guðmundur Karl Brynjarsson.
Maríukirkja við Raufarsel | Messutímar: Alla virka
daga kl. 18.30. Laugardaga (sunnudagsmessa) kl.
18.30 á ensku. Sunnudaga kl. 11. Barnamessa kl.
12.15.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sameig-
inlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safn-
aðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sig-
urvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Söngur, gleði og gaman í sunnudagaskólanum. Um-
sjón Katrín, Oddur og Ari. Loks er boðið upp á kaffi-
sopa á Torginu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík | Sunnu-
dagaskóli kl. 11 í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Guðsþjónusta klukkan
14 og barnastarfið verður á sínum stað á sama tíma.
Ólafur Sverrisson prédikar og kynnir Gideonfélagið.
Séra Pétur Þorsteinsson þjónar fyrir altari, messu-
gutti Petra Jónsdóttir. Kór safnaðarins leiðir sálma-
sönginn og messusvörin undir stjórn organistans
Árna Heiðars Karlssonar.
Vöfflukaffi eftir messu.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í Kristni-
boðssalnum Háaleitisbraut 58-60 3. hæð. Ræðu-
maður Agnes Tarassenko. Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur Guðbjörg
Arnardóttir. Kirkjukór Selfosskirkju syngur, organisti
Edit Molnár. Sunnudagaskólinn á sama tíma, um-
sjón Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir. Súpa á eftir gegn
vægu gjaldi.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson þjónar.
Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almennan
safnaðarsöng. Kaffiveitingar.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Egill
Hallgrímsson sóknarprestur annast prestsþjón-
ustuna. Organisti er Jón Bjarnason.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Hans Guð-
berg Alfreðsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
messuþjónum. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja
undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar. Sunnudagaskóli
á sama tíma sem Helga Björk, Jón og Bolli Már
stjórna. Kl. 17 er tónlistarguðsþjónusta. Sr. Jóna
Hrönn leiðir og prédikar og gospelkór Jóns Vídalíns
syngur undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar og Ingvar
Alfreðsson spilar á píanó.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Messa kl. 11.
Gaflarakórinn syngur undir stjórn Kristjönu Þórdísar
Ásgeirsdóttur. Organisti Helga Þórdís Guðmunds-
dóttir. Prestur Hulda Hrönn M. Helgadóttir.
Sunnudagaskólinn kl. 11. María og Bryndís leiða
stundina.
Kaffi, djús og kex að guðsþjónustum loknum.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Sunnudagaskóli 22. nóv-
ember kl. 11 í umsjá Maríu og Heiðars. Kaffi, djús og
kökur að skóla loknum.
ÞORLÁKSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Hafdís
Þorgilsdóttir sér um stundina með Örnu Dögg Sturlu-
dóttur og vígðum mönnum. Heitt á könnnunni fyrir
fullorðna.
Orð dagsins: Þegar
mannssonurinn kemur
(Matt. 25)
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hjarðarholtskirkja í Dölum.
✝ Guðrún ÓlafíaSigurjóns-
dóttir fæddist í
Kálfholti í Ása-
hreppi 18. júní
1924. Hún lést á
dvalarheimilinu
Lundi á Hellu 13.
nóvember 2015.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurjón
Gísli Sigurðarson,
f. 4.3. 1895 í Bjálm-
holti, d. 2.4. 1988, og Guðný
Ágústa Ólafsdóttir, f. 26.5. 1896 í
Austvaðsholti, d. 9.5. 1974. Systk-
ini Guðrúnar eru Sigrún, sjúkra-
liði, f. 9.5. 1923, d. 10.2. 2011, Her-
mann, f. 9.10. 1929, og Hjalti, f.
29.4. 1931, bændur í Raftholti.
Guðrún giftist hinn 23. ágúst
1958 Ársæli Teitssyni bygginga-
meistara frá Eyvindartungu í
Laugardal, f. 25.1. 1930. For-
eldrar hans voru Teitur Eyjólfs-
son, f. 12.7. 1900 á Háteigi í
Garðahreppi, d. 11.7. 1966, og
Sigríður Jónsdóttir, f. 8.3. 1894 í
Stíflisdal, d. 14.9. 1969. Börn Guð-
rúnar og Ársæls eru: 1) Kristín
Ágústa, f. 1.3. 1956, eiginmaður
Tryggvi Rúnar Pálsson, f. 17.10.
1960. Börn þeirra eru a) Guðrún
Elsa, f. 11.5. 1990, og b) Emil Ár-
sæll, f. 17.10. 1997, d. 3.3. 2010. 2)
Sigurjón, f. 24.1. 1959, sambýlis-
kona Guðrún Þóra Garðarsdóttir,
f. 21.8. 1962. Sonur Sigurjóns og
Þorbjargar Erlu Ásgeirsdóttur er
a) Ásgeir, f. 28.11. 1984, unnusta
Frida Mårtensson, f. 20.5. 1989.
Sonur Guðrúnar er
Þórarinn Víkingur
Sveinsson, f. 20.10.
1991. 3) Ósk, andvana
fædd í maí 1963. 4) Sig-
ríður, f. 29.7. 1964,
sambýlismaður Þór-
arinn Arngrímsson, f.
5.5. 1962. Börn þeirra
eru a) Bára Lind, f.
30.11. 1996, Arnar Ár-
sæll, f. 3.7. 2001, og
Pétur Þór, f. 3.11. 2005.
Þegar Guðrún var fjögurra ára
gömul flutti hún að Raftholti í
Holtum með fjölskyldu sinni og
ólst þar upp. Guðrún gekk í
barnaskóla sveitarinnar auk þess
sem hún var einn vetur í skóla hjá
Sankti Jósepssystrum í Hafnar-
firði og lærði þar m.a. saumaskap
og tungumál. Guðrún lærði að
spila á orgel. Hún vann ýmis
störf, þar á meðal við saumaskap
og í þvottahúsi Sjúkrahúss Sel-
foss.
Guðrún og Ársæll hófu búskap
á Víðivöllum 3 á Selfossi og
bjuggu þar alla tíð þar til þau
fluttu á Lund sumarið 2013. Guð-
rún var mjög listræn og hafði
yndi af tónlist. Hún lék á píanó og
orgel og söng í Samkór Selfoss.
Allur saumaskapur lék í höndum
hennar. Þau hjónin áttu hjólhýsi
sem þau nýttu vel í ferðalög um
landið.
Útför Guðrúnar fer fram í dag,
21. nóvember 2015, frá Marteins-
tungukirkju og hefst athöfnin kl.
14.
Við systkinin vorum svo lánsöm
að alast upp á góðu heimili og eiga
yndislega foreldra. Mamma helg-
aði sig okkur, hún var alltaf til
staðar og okkar haldreipi í lífinu.
Við fengum alla þá ást, huggun og
vernd sem börn þörfnuðust. Hún
svaraði margvíslegum spurning-
um sem leituðu á unga barnshuga,
leiðbeindi okkur við að taka fyrstu
sporin í lífinu og reyndist síðan sá
vinur sem alltaf var hægt að
treysta á. Hún eignaðist líka mik-
ið í barnabörnunum sex sem voru
svo lánsöm að fá að kynnast henni.
Elsku mamma. Þakka þér fyrir
allt sem þú hefur gert fyrir okkur.
Kristín (Stína), Sigurjón
og Sigríður.
Elsku amma, við barnabörnin
viljum þakka fyrir eilífa um-
hyggju. Fyrir allar yndislegu mál-
tíðirnar sem þú lagðir þig svo mik-
ið fram við, allar kökurnar sem þú
bakaðir og alla konfektmolana
sem þú laumaðir að okkur. Takk
fyrir að vera amma sem var alltaf
til staðar, sem gat hlustað og ráð-
lagt.
Við minnumst þín sem dugleg-
ustu konu í heiminum, syngjandi
fallegu vísurnar, spilandi á píanó-
ið og skrifandi í dagbókina. Við
eigum endalausar fallegar minn-
ingar um þig sem við minnumst
með svo mikilli gleði. Þú ert kona
sem við lítum upp til og jafnvel
þótt þú sért komin á annan stað
lifirðu enn með okkur og munt
hjálpa okkur að feta rétt spor í
framtíðinni. Þótt þú sért farin,
elsku amma, munum við aldrei
gleyma þér. Minningarnar munu
aldrei gleymast og við munum
ávallt minnast þín með ást og virð-
ingu.
Hvíl í friði elsku amma.
Bára Lind, Arnar Ársæll
og Pétur Þór.
Fyrir rúmum 87 árum kom
hestvagn akandi í rólegheitum
eftir Þrasabrautinni á vestan-
verðri Raftholtsheiðinni. Þarna
var á ferðinni fjögurra manna fjöl-
skylda með búslóð sína og búpen-
ing. Þau voru að flytja búferlum
frá Kálfholti í Raftholt. Systurnar
tvær, Guðrún og Sigrún, sátu ofan
á búslóðinni og litu eftir hænunum
og heimiliskettinum spenntar að
sjá nýju heimkynnin. Bræður
þeirra tveir, Hermann og Hjalti,
voru ekki fæddir þegar þetta var.
Guðrún minntist oft á þetta
ævintýralega ferðalag, ekki síst
núna seinni árin og alltaf var jafn
gaman að heyra hana rifja upp
þessar æskuminningar. Guðrún
bjó svo í foreldrahúsum þar til
hún giftist honum Ársæli sínum.
Þau byggðu sér stórt og fallegt
hús á Víðivöllum 3 á Selfossi þar
sem þau bjuggu svo síðan og ólu
upp börnin sín þrjú, þau Kristínu
Ágústu, Sigurjón og Sigríði. Í
þetta hús komum við systkinin oft
og var alltaf tekið jafn vel á móti
okkur, rétt eins og við værum
hluti af barnahópnum hennar
Guðrúnar.
Um áramót fórum við Raf-
tholtsfjölskyldan til Guðrúnar og
fjölskyldu um margra ára bil. Við
hlökkuðum alltaf jafn mikið til því
það var alltaf glatt á hjalla og Guð-
rún frænka galdraði fram sínar
bestu kræsingar en í því var hún
alltaf snillingur. Á aðfangadags-
kvöld komu þau aftur á móti til
okkar í Raftholt og saman héldum
við heilög jól. Guðrún frænka var
mjög músíkölsk og spilaði af-
bragðs vel hvort heldur var á org-
el eða píanó. Hún spilaði alltaf
undir jólasálmunum og allir
sungu með áður en gjöfunum var
útdeilt. Eins var lagið oft tekið við
undirleik Guðrúnar á gamlárs-
kvöld.
Þegar við systkinin fórum svo í
Fjölbrautaskólann á Selfossi eitt
af öðru bjuggum við öll hjá Guð-
rúnu frænku og Ársæli meðan á
náminu stóð í lengri eða skemmri
tíma og vorum þar alltaf eins og
heima hjá okkur. Þetta voru
skemmtilegir tímar og margs
góðs að minnast.
Í dag er svo komið að því að við
þurfum að kveðja okkar kæru föð-
ursystur, Guðrúnu Sigurjónsdótt-
ur, þessa góðu og traustu konu
sem við gátum alltaf leitað skjóls
hjá.
Elsku Guðrún, hafðu þökk fyrir
allt og allt.
Elsku Ársæll, Stína, Sigurjón,
Sigríður og fjölskyldur, við vott-
um ykkur okkar innilegustu sam-
úð.
Systkinin Raftholti,
Ágústa Kristín, Sigurjón,
Guðrún Margrét, Valdimar
og fjölskyldur.
Guðrún Ólafía
Sigurjónsdóttir