Víkurfréttir

Eksemplar

Víkurfréttir - 17.03.1987, Side 4

Víkurfréttir - 17.03.1987, Side 4
\)iKur< 4 Þriðjudagur 17. mars 1987 jUtUt' Njarðvíkurbær Laus staða Hjá Njarðvíkurbæ er laus staða inn- heimtumanns. Starfið felst í umsjón með tölvuvæddu gjaldendabók- haldi bæjarsjóðs, eftirliti með inn- heimtu og framgangi innheimtuað- gerða ásamt almennum skrifstofu- störfum. Starfið krefst góðrar al- mennrar menntunar, færni í sjálf- stæðum vinnubrögðum og agaðrar framkomu. í boði er: Góð vinnuaðstaða með ungu, hressu fólki. Laun eru sam- kvæmt launakerfi opinberra starfs- manna. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Njarðvíkurbæjar. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Bæjarstjóri Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar eftir að ráða deildarstjóra hjá stofnun verklegra framkvæmda. Viðkomandi hefur umsjón og eftirlit með úrgangsefnum ásamt umsjón með sýnatöku, rannsóknum sýna, skýrslugerð- um um niðurstöður, eyðingu, pökkun og flutning úrgangsefnanna. Hefur með höndum fjárhagsáætlanagerð fyrir deild- ina. Umsækjandi hafi þekkingu í efnafræði ásamt stjórnunarreynslu. Mjög góðensku- kunnátta skilyrði. Bílpróf. Umsóknir berist varnarmálaskrifstofu Ut- anríkisráðuneytisins, ráðningadeild, Kefla- víkurflugvelli, eigi síðar en 25. mars n.k. Nánari upplýsingar veittar í síma 92-1973. Eftirmáli við aðalfund Stangveiðifélagsins Fimmtudaginn 12. mars hélt Stangveiöifélag Keflavíkur aðal- fund sinn. Ekki væri það svo sem í frásögur færandi nema vegna leiðinlegra mistaka í sambandi við fundarstaðinn. Upphaf málsins er það að hinn 17. febr. pantaði ég húsnæði fyrir fundinn á Glóðinni. Sá sem fyrir svörum varö (Daði) kvað húsiðtil reiðu á umbeðnum tíma. Fundurinn er síðan auglýstur svo sem vejna er. Það mun svo hafa verið mánudaginn 9. mars að hringt er í mig frá Glóðinni. Sá sem talaöi kvaðst heita Óskar og tjáði hann mér að vegna misr skilnings heföi verið tvíbókað á fimmtudagskvöldið 12. mars og yrði hann að flytja okkur stang- veiðifélagsmenn í hús verkalýðs- félaganna, Víkina. Ég dró í efa að sá staður rúmaði fundinn og kvaöst Óskar athuga það nánar. Hann hringir svo tveimur tím- um síðar og segist hafa fundið lausn á málinu. Við yrðum á Glóðinni, eins og fyrr hafði verið um talað. Kl. 16.30áfundardaginnhring- ir Óskar þessi afturog segistekki geta staðið við það aö fundurinn verði haldinnáGlóðinni.enhann hefði útvegað okkur fundarstað í húsnæði Verslunarmannafé- lagsins á Hafnargötu 28. Ég lýsti óánægju minni með að fá að vita þetta svona seint og lagði áherslu á að þeir áGlóöinni sæu um að auglýsa þessa breyt- ingu kyrfilega við inngöngudyr og að starfsfólk sæi um að vísa þeim sem kæmu á Glóðina, á fundarstaðinn. Þessu var heitið og lagði Óskar sérstaka áherslu á að allt yrði gert sem unnt væri til að ekki hlytist af þessu misskilningur eða óþægindi. Ég frétti það svo hjá þeim sem komu á fundinn, að engin vís- bending hefði verið um það við þær dyr sem venjulega er gengið um inn í fundarsal Glóðarinnar, hvar umræddur fundur ætti að vera. Stangveiðifélagsmenn sem fundinn ætluðu að sækja héldu því áfram inn i fundarsalinn þar sem þeir fengu óglöggar og vill- andi upplýsingar hjá gestum á staðnum. Sumir sögðu að fundurinn væri í Golfskálanum i Leiru, aðrir töldu að hann væri á Víkinni. Af þessu hlutust margs konar tafir og óþægindi og margir félags- menn munu hafa misst af fund- inum af þessum sökum. Þess skal að visu getið, að ógreinilegur miði var festur á úti- dyr veitingastofunnar ágötuhæð Glóðarinnar með upplýsingum um fundarstaðinn. Síðar um kvöldið kom svo yfirmaður frá Glóðinni á fundinn og baðst af- sökunar á þessari framkvæmd allri og bauðfundarmönnum upp á kaffi og kökur án endurgjalds. Þessar línur eru ekki settar hér á blað til þess að koma höggi á veitingastaðinn Glóðina. Það er að sjálfsögðu þeirra mál hvernig þeir haga samskiptum við sína viðskiptavini. Mér fannst hins vegar nauð- synlegt að koma á framfæri út- skýringum og afsökun til þeirra félagsmanna sem af þessu hlutu óþægindi og ama. Sigmar Ingason, formaður Stangveiðifélags Keflavíkur. Svar tilMI- óánægðs símnotanda Ég hef allan skilning á því að símnotandinn sé óánægður og mér þykir vænt um að fá fram gagnrýni sem er réttlát. En þó er ýmislegt sem ég þarf að gera at- hugasemd við, einfaldlega vegna þess að hann telur síma- kerfið vera ónýtt drasl. Sem er náttúrlega sagt í reiði og án allra raka. Er ég enn á því að þetta sé full- komnasta símakerfi sem sett hefur verið upp hér á landi og ég veit ekki um fullkomnara kerfi í heiminum. Þó erum við alltaf að fjárfesta hér og nú upp á nokkra milljónatugi. Þær truflanir sem verið hafa að undanförnu stafa af því að við höfum verið að leggja inn ný prógrömm og á meðan geta komið upp vandamál. Eru trufl- anir þessar þó ekki alvarlegs eðl- is. En ef nýja stöðin hikstar eitt- hvað kemur það fram sem vand- kvæði í gömlu stöðinni. Við teljum að þessar breytingar sem við erum nú að gera í nýju stöð- inni verði til þess að við getum boðið upp á betri og víðtækari þjónustu. Varðandi afnotagjaldið er rétt að láta það koma fram að það er ekki hugsað eins og óánægður símnotandi heldur. Er hér um að ræða tryggingu fyrir að hver símnotandi noti ekki færri en 600 skref á sitt númer. Þá vil ég minna á að 1. maí á síðasta ári var svæðið hér gert að einu gjaldsvæði og við það lækkaði mikið símkostnaður hjá þeim sem höfðu mikil viðskipti milli stöðvar hér suðurfrá. Og það má aldrei gleyma því sem vel er gert. Þó hér komi upp vandamál má ekki lækka afnotagjöldin, því þá getum við einfaldlega ekki bætt þjónustuna, því Póstur og sími fjárfestir aðeins af eigin fé eða með lánsfé, sækir ekkert í ríkis- kassann. Að endingu vil ég nota þetta tækifæri til að minna á, að ég vil hafa mjög gott samband við alla símnotendur hvar sem er á Suð- urnesjum. Mun ég eins og hing- að til reyna að bæta, ef bæta þarf einhverja hluti og vona að fólk sjái að ég er vakandi fyrir öllum nýjungum. Vil ég í því sambandi benda á nýja póst- og símahúsið sem verið er að byggja. Þar mun- um við m.a. bjóða úpp á betri og hraðari þjónustu en nú er hægt að bjóða upp áognægbílastæði. Björgvin Lúthersson símstöðvarstjóri Vísað af landsfundi Skólafólk! Vantar fólk til fiskvinnslustarfa. Mikil vinna. - Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 4666. BRYNJÓLFUR HF. Sá einstæði atburður átti sér stað á landsfundi Sjálfstæðisflokksins á dögunum að áheyrnar- fulltrúa úr Njarðvík, Arn- dísi Tómasdóttur, var vís- að út af fundinum rétt fyrir fundarlok. Hefur Arndís setið landsfundi flokksins all lengi sem kjörinn fulltrúi. En þegar slíkt var ekki fyrir hendi nú fór hún fram á að fá að vera þarna sem áheyrnarfulltrúi og fékk því boðskort sem slíkur. Staðfesti Arndís þetta í viðtali við Víkurfréttir og sagði: „Ég var þarna sem áheyrnarfulltrúi og á sunnudagsmorgun var komið til mín og ég vin- samlegast beðin að víkja af fundi vegna óska ein- hverra kjörinna fulltrúa. En hvers vegna veit ég ekki.“ Annað vildi hún ekki láta hafa eftir sér á þessu stigi málsins, en samkvæmt öðrum heim- ildum voru það einstakl- ingar úr fulltrúahópi Njarðvíkinga og Keflvík- inga sem óskuðu þess að hún færi af fundinum. Vegna þessa gerðiblað- ið ítrekaðar tilraunir til að ná sambandi við Halldór Guðmundsson, forystu- mann Njarðvíkurhóps- ins, en það tókst ekki.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.