Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 17.03.1987, Síða 12

Víkurfréttir - 17.03.1987, Síða 12
mrn frttUi Þriðjudagur 17. mars 1987 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Vallargötu 14, II. hæð. - Sími 4717. HimBW, ALLTAF OPINN SPARISJÓÐURINN IKEFLAVÍK Yfirgangur Miðnessmanna: Er Sandgerðishöfn stjórnað af manni út í bæ? Upp er komið mikið deilu- mál í Sandgerði. Snýst það um löndunarpláss fyrirtogarana á staðnum. Hefur Valbjörn hf., sem er útgerðarfyrirtæki togarans Hauks, sent harð- ort kvörtunarbréf til hafnar- nefndar og nefndin síðan haldið tvo fundi um málið. Forsaga málsins er sú að er togarinn Haukur var kom- inn inn undir innsiglingar- rennuna í Sandgerði föstu- daginn 6. mars kom í ljós að honum var ekki ætlað viðun- andi löndunarpláss í höfn- inni. En á sama tíma lá tog- arinn Sveinn Jónsson að- gerðarlaus við bryggju, en engin tilraun var gerð til að færa hann til svo hitt skipið kæmist að bryggjunni. Að sögn forráðamanna Hauks neitaði útgerðarstjóri Miðness h.f. sem gerir út hinn togarann að færa skip- ið, en var þess í stað með hót- anir í garð Hauks-manna. Eftir smá málþóf kom hann með þá skýringu að vélin væri sundurrifin og því ekki hægt að færa skipið. En áhöfn skipsins taldi þó það ekki vera neitt átakamál. Þegar hér var komið sögu var togaranum Hauki um- svifalaust snúið við og land- aði hann síðan í Njarðvík. Jafnframt hafa eigendur þess togara nú hótað að koma ekki með skipið til Sandgerð- is fyrr en viðunandi skýring- ar liggja fyrir og útgerðar- stjóri hafi verið beðinn opin- berlega afsökunar. Var því reiknað með að Haukur kæmi inn til Njarðvíkur í morgun með 150 tonna afla. í kvörtunarbréfi Val- björns h.f. kemur fram að einn maður úti í bæ (útgerð- arstjóri Miðness h.f. - inn- skot blaðsins) segi hafnar- starfsmönnum og útgerðar- mönnum hvar og hvenær þeir geti komið með skip sín til löndunar. I samtali við Víkurfréttir vildi Magnús Magnússon, formaður hafnarnefndar, ekki tjá sig um málið en vísaði þess í stað í svar nefndarinnar. Svar nefndarinnar er mjög almenns eðlis og nánast hvergi tekið á málinu sem slíku. Er mikill hiti í heima- mönnum vegna máls þessa, enda er ekki undir hundrað þúsund króna tap í beinum greiðslum ef togarinn landar ekki í heimahöfn. Telja margir einnig að hér sé um ólíðandi yfirgang að ræða af hálfu útgerðarstjóra Miðnes h.f. Oddgeir ÞH aflahæstur í Keflavík Oddgeir ÞH var aflahæst- ur í síðustu viku af þeim bát- um sem leggja upp í Kefla- vík, hann var með 62,97 tonn. Síðan kom Þuríður Halldórsdóttir GK með 52,73 tonn, Happasæll KE var með 52,64 tonn, Stafnes KE var með 49,14 tonn, Skagaröst KE 47,51 tonn. Þessir bátar eru allir á netum og öfluðu þeir mun betur en vikuna þar á undan. Afli línubátanna var ekki mikill. Albert Ólafsson KE fór tvo róðra og fékk 14,18 tonn og síðan 4,5 tonn og fékk versta veður í seinni róðrinum og mátti þakka fyrir að ná inn línunni. Al- bert Ólafsson er nú hættur á línu og fer á net. Járnplata fauk á bíl Á mánudag í síðustu viku fauk járnplata á bíl í Vogum. Litlar skemmdir urðu á bíln- um, þó er hann svolítið risp- aður. Bergþór var með rúm 77 tonn Bergþór var aflahæsti Sandgerðisbáturinn í síðustu viku með 77,33 tonn og var hann með tæpum 14 tonnum meira en næsti bátur sem var Hafnarberg GK sem fiskaði 63,61 tonn. Síðan komu Arney með 41,9 tonn, Víðir II var með 38,68 tonn og Sæ- borg var með 31,62 tonn. Þessir bátar eru allir á netum og hefur afli þeirra glæðst verulega að undanförnu. Afli línubátanna hefur ekki verið eins góður. Sigurð- ur Bjarnason var með 26,5 tonn og Mummi var með 24,63 tonn. Gestirnir ásamt heimamönnum í JC-heimilinu í Grindavík Heimsforseti JC í Grindavík Heimsforseti JC-hreyfing- arinnar, Philip R. Berry, heimsótti Grindavík síðasta fimmtudag ásamt konu sinni Lindu. Með þeim í föruneyti voru Marta Sigurðardóttir, landsforseti JC, og fleiri stjórnarmenn úr landsstjórn. I Grindavík tóku á móti þeim Margrét Gísladóttir, forseti JC Grindavík, og nokkrir félagar úr því félagi. í Grindavík skoðuðu þau félagsheimili JC Grindavík- ur, sem hefur þá sérstöðu að vera í gamalli kirkju. Þá heimsóttu þau einnig Bláa lónið og Hitaveitu Suður- nesja. Jafnframt því þáðu þau veitingar í gömlu kirkj- unni. hpé/Grindavík. Fékk tæp 7 tonn af kola Bliki ÞH, sem er á snur- voð, fór einn túr í síðustu viku og landaði hann 6,7 tonnum af kola í Sandgerði. Uppistaðan í aflanum var sandkoli og skarkoli. Miðnes - Miðneshreppur, hver er munurinn? Hjá okkur geturþú„hresst upp“ á útlitið. SÓL - SAUNA - NUDD - KWIC SLIM VÍTAMÍN OG HEILSUVÖRUR fegurð \X\ VYl I / / / Y7y\ Hafnargötu 54 ■ Keflavík Óskum „Ungfrú Suðurnes 1987“ til hamingju.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.