Víkurfréttir - 25.06.1987, Side 1
LftNDSBOKftSfiF'N
HVERFISGöTU
101 REYKJftVTK
KEFLAVÍK:
Vinabæjar-
heimsókn
frá Færeyjum
Bæjarfulltrúar ásamt mök-
um frá vinabæ Keflavíkur,
Miðvogi í Færeyjum, eru
væntanlegir hingað til lands
á þriðjudag í viku heimsókn.
Einnig koma með þeim tvö
blaklið frá Dráttur Flog-
bóltsfélag.
Munu þeir ferðast um Suð-
urnes og næsta nágrenni auk
þess sem þau taka þátt í
ýmsum uppákomum sem
boðið verður upp á af hálfu
bæjarstjórnar og ÍBK.
Keflavík einl
bærinn ekki
með sorpgjald
Keflavíkurbær er einn af
fáum kaupstöðum á landinu
sem ekki leggur sorpgjald á
íbúa sína. I Keflavík og
Njarðvík eru álögur ekki
þungar miðað við álagninga-
reglur í 25 kaupstöðum.
Grindavík kemur ekki eins
vel út og þar þurfa menn að
greiða hærra útsvar, fast-
eignaskatta og holræsagjald
en í Keflavík og Njarðvík.
Njarðvíkingar verða hins
vegar að greiða hærri vatns-
skatt en Grindvíkingar og
Keflvíkingar og sorpgjaldið
þar er hærra en í Grindavík.
Vilhjálmur Ketilsson,
bæjarstjóri í Keflavík, sagði
að ákveðið hefði verið að
hafa sömu álagningareglur
og á síðasta ári en sér þætti
ekki ólíklegt að lagt yrði á
sorpgjald, líkt og í öðrum
kaupstöðum á landinu.
Utsvarsprósentan er
hæst í Ólafsvík, 10,7%; í
Njarðvík og Keflavík er
hún 10,2% en 10,4% í
Grindavík.
Unnið að löndun úr Dagstjörnunni í Njarðvíkurhöfn á þriðjudaginn. Eins og sjá ntá er fiskurinn í kös
ofan á kassafiski, en þetta er ekki heimilt samkvæmt reglugerðum. - Ljósm.: bb.
DAGSTJARNAN KE-3 KOM MEÐ 40 T0NN AF ÖÍSUÐUM AFLA:
ÚFORSVARANLEG
VINNUBRÖGÐ
Togarinn Dagstjarnan KE
eign Stjörnunnar hf. í Njarð-
vík, kom með 180 tonn af
karfa á þriðjudaginn eftir
aðeins 6 daga veiðiferð. Af
þessum afla voru um 40 tonn
ofan á kössum í lest óísað, en
togurum er óheimilt að
koma með afla sem ekki er
ísaður og í kössum.
■ segir forstöðumaður Ríkismats sjávarafurða
„Vinnubrögð af þessu
tagi eru óforsvaranleg og
við munum senda sjávarút-
vegsráðuneytinu skýrslu
um þennan atburð“, sagði
Guðrún Hallgrímsdóttir,
forstöðumaður ríkismats
sjávarafurða, í samtali við
Víkur-fréttir. Guðrún sagði
að eftirlitsmaður ríkismats-
ins hefði kornið um borð í
togarann á meðan á iöndun
stóð og hefði hann gert at-
hugasemdir við að hluti afl-
ans skyldi ekki vera ísaður
og að gafflar hefðu verið
notaðir við löndun á aflan-
um.
Samkvæmt upplýsing-
um sem blaðið aflaði sér hjá
Sjöstjörnunni fékk Dag-
stjarnan þennan afla á svo-
kölluðu Skerjadýpi, sem er
aðeins 4 tíma sigling frá
Keflavík og fengust um 30
tonn á síðustu 12 tímunum í
tveirn hölum. Öll áhersla
hefði verið lögð á að landa
þessum afla og koma í ís
svo fljótt sem verða mátti.
p-
KEFLAVÍK:
BÚKANAMET UM
REIKNINGA BÆJARINS
Við síðari umræðu um árs-
reikninga Keflavíkurbæjar
1986, sem fram fór á fundi
bæjarstjórnar Keflavíkur á
þriðjudag, voru gerðar fleiri
bókanir en elstu bæjarfull-
trúar muna, að áður hafi við-
gengist um einn málaflokk.
Alls voru bókanir þessar sjö
að tölu um þennan eina
málaflokk auk einnar tillögu
sem vísað var til bæjarráðs.
Undir umræðunum hitn-
aði mönnum mjög í hamsi og
var ekki laust við að í ein-
staka tilfellum væri notað
óviðeigandi orðbragð.
Fannst sumum bæjarfulltrú-
anna að umræðurnar væru á
eins konar sandkassaplani.
Umræður þessar voru að
vissu leyti í beinu framhaldi
af birtingu endurskoðunar-
skýrslu Hagskils, sem opin-
berlega kom fyrst fram i
Helgarpóstinum og síðan
Víkur-fréttum. Að umræð-
um loknum voru reikning-
arnir samþykktir með 5 at-
kvæðum, en fjórir fulltrúar
minihlutans sátu hjá, en vís-
uðu í bókun.
Áhugi fyrir góðri
smábátahöfn
í Höfnum
í síðustu viku var haldinn
almennur fundur í Höfnum
að frumkvæði hafnarnefndar
Hafnahrepps. Var öllum
áhugamönnum um smábáta-
útgerð, sem vilja notfæra sér
aðstöðu í Höfnum, boðið á
fundinn.
Að sögn Þórarins St. Sig-
urðssonar, formanns hafnar-
nefndarinnar, var góð þátt-
taka og sýndu fundarmenn
mikinn áhuga fyrir fram-
kvæmdum við gerð góðrar
smábátahafnar á staðnum.
Samþykkti fundurinn álykt-
un til alþingismanna um
áskorun í þeim efnum.