Víkurfréttir - 25.06.1987, Síða 8
ViKurt
8 Fimmtudagur 25. júní 1987
Tjön-
valdurinn
stakk af
Ekið var á kyrrstæða bif-
reið í Keflavík fyrri hluta
síðustu viku og hann
skemmdur talsvert að
framan. Ökumaðurinn, sem
tjóninu olli, hélt sína leið án
þess að láta vita og nú situr
eigandi bifreiðarinnar eftir
með tjónið.
María Anna Löve, eig-
andi bifreiðarinnar sem ek-
ið var á og er Plymouth
Volare, árgerð 1979, vín-
rauð að lit, skorar á öku-
manninn að gefa sig fram
eða þá vitni, ef einhver voru
að atburðinum. Hún áttaði
sig ekki á skemmdunum á
bifreiðinni fyrr en nokkrum
dögum síðar og telur að
stór bíll eða jeppi hafi ekið
aftur á bak á sína bifreið í
stæði.
Þeir sem geta gefið ein-
hverjar upplýsingar um
mál þetta geta haft sam-
band við blaðið eða hringt í
Maríu Önnu eftir vinnu-
tíma í sima 6041.
KAUPFÉLAG
SUÐURNESJA S?
Breytt símanúmer
frá 1. júlí
KEFLAVÍK
Skrifstofan, Hafnargötu 62 .....
Kaupfélagsstjóri, Hafnargötu 62
Kjörbúð, Hafnargötu 30 .........
Kjörbúð, Hafnargötu 30, pantanir
Kjörbúð, Faxabraut 27 ..........
Sparkaup, Hringbraut 55 ........
Samkaup við Reykjanesbraut ..
Kjötvinnslan, Reykjanesbraut ...
Fatabúðin, Hafnargötu 30........
Járn og Skip, Víkurbraut........
SANDGERÐI
Matvörubúð, Víkurbraut ............. 3-74-10
VOGAR
Matvörubúð, Vogagerði 8 ............ 4-65-16
GRINDAVÍK
Skrifstofan, Víkurbraut 17 ............ 6-81-61
. Matvörubúð, Víkurbraut 17.............. 6-81-62
Járn og Skip, Víkurbraut 44-46 ........ 6-84-62
ATH: Þessi númer gilda frá og meö miðvikudeginum 1. júlí.
1-15-00
1-15-09
1-15-02
1-15-03
1-15-06
1-15-08
1-15-40
1-15-98
1-10-75
1-15-05
Stjórn Sjúkrahússins:
Bókanir vegna
ðlafs
Björnssonar
Enn berast bókanir vegna
orða þeirra sem Ólafur
Björnsson viðhafði á aðal-
fundi sjúkrahússins í Vogum
í fyrra mánuði. Á þeim sést
að grein forseta og bæjar-
stjóra Keflavíkur í síðasta
tölublaði um rangtúlkanir
blaðamanna eiga ekki við
rök að styðjast.
Eftirfarandi bókanir voru
gerðar á fundi stjórnar
sjúkrahússins og heilsugæsl-
unnar 3. júní s.l.:
„ Við fulltrúar starfsfólks í
stjórn SK og HSS hörmum að
ummœli formanns stjómar
sem hann viðhafði á aðalfundi
SK þ. 12.05. hafi orðið tilþess
að Sólveig Þórðardóttir deild-
arstjóri sagði upp störfum.
Uppsögn Sólveigar er tví-
mælalaust mikill skaði fyrir
deildina. Undir hennar stjóm
hefur fœðingardeildin verið
byggð upp á myndarlegan
hátt með þeim árangri að hún
hefur talist með bestu fæðing-
ardeildum á landinu, því voru
þessi ummæli sérstaklega
ómakleg og hafa valdið mik-
illi óánægju alls starfsfólks
deildarinnar. Jafnframt von-
umst við til að þessum ómak-
legu árásum linni, svo það sem
eftir er af deildinni leggist
ekki endanlega niður.
Guðrún Guðbjartsdóttir
Gísli Viðar Harðarson."
Ólafur Björnsson óskaði
bókað:
„Ég tel að Sólveig hafi mis-
túlkað og rangfært margrædd
ummæli mín á aðalfundi SK,
og vísa til fundargerðar þar
um, hún notar þau síðan sem
tylliástæðu fyrir uppsögn
sinni. Ég hef aldrei borið
brigður á að starfsfólk fæð-
ingardeildar sé allt staifi sínu
vaxið og deildin á margan hátt
til fyrirmyndar. “
Bæjarstjórn Grindavíkur:
Mótmælir sorphaug-
um í Krísuvík
Bæjarstjórn Grindavíkur
hefur samþykkt á fundi sín-
um að mótmæla fyrirhuguð-
um sorphaugum í landi
Krísuvíkur vegna augljósra
áhrifa þeirra á umhverfið til
lands og sjávar.
Áður hafði bæjarstjórn
Keflavíkur samþykkt að
óska eftir því að SSS beiti séi
fyrir að gerð verði athugun á
því hvaða áhrif ruslahaug-
arnir gætu haft á umhverfið
með tilliti til vatnsbúskapar á
Suðurnesjum.
En sem kunnugt er af frétt-
um er rætt um að ruslahaug-
ar í Selöldu við Krísuvík
gætu verið einn vænlegasti
kosturinn fyrir höfuðborgar-
svæðið, þar sem landssvæði
þar sem núverandi sorp-
haugar Reykjavíkur eru, er
að verða fullnýtt.