Víkurfréttir

Eksemplar

Víkurfréttir - 25.06.1987, Side 4

Víkurfréttir - 25.06.1987, Side 4
\fiKun Fimmtudagur 25. júní 1987 jUttU molar Ósjálfstæðir bæjarfulltrúar Við lestur fundargerða bæj- arstjórnar Njarðvíkur verða menn fljótt þess áskynja að bæjarfulltrúar þeir, sem nú skipa bæjarstjórnina, eru mjög svo ósjálfstæðir. Kemur þetta hvað best í ljós ef skoðuð er meðferð hinna ýmsu mála. Flest þeirra fá þá meðferð að vera vísað til bæjarstjóra eða SSS, sumum er vísað til ein- hverra annarra nefnda. Nán- ast fátítt er að sjá að mála- flokkurinn eða erindið sé sam- þykkt af bæjarstjórninni og bæjarstjóra síðan falið að koma þeim í framkvæmd. Frekar er bæjarstjóra falið málið alveg og þ.m.t. til sam- þykktar eða synjunar. Hverjir eru óábyrgir? Tvær fullyrðingar í bla-bla grein bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar Keflavíkur í síð- asta blaði hafa vakið sérstaka athygli. Eru það fullyrðingar um ,,kærkomið tilefni tilárásar á vœgast sagt hœpnum upplýs- ingum“ og að skrifin séu ,,óábyrg“. Það eina sem þeir geta í raun sett út á er að heim- ildarmenn blaðsins voru ekki harðlínukratar heldur venju- legt starfsfólk stofnunarinnar, þ.e. sjúkrahússins. Vonandi meina þeir ekki að allir sem hafa aðra skoðun en þeir sjálfir séu óábyrgir. Kóngurínn stækkar ríki sitt Enn stækkar Tommi videó- kóngur ríki sitt, því nú hefur hann keypt myndbandasafn Ólafs Gunnarssonar í Lítt’inn hjá Óla. Er þá Myndval eini þröskuldurinn í vegi hans að ríkja einn á videómarkaðnum í Keflavík. Tveir Suð- urnesjatoppar Það er ekki aðeins að Arnar- flug manni meirihluta starfs- manna á Keflavíkurflugvelli Suðurnesjamönnum, því Kefl- víkingar eru einnig í toppstöð- um hjá fyrirtækinu, bæði um borð í flugvélunum og yfir- menn. Sem dæmi þar um má nefna að í stöðu stöðvarstjóra á Keflavíkurflugvelli er Njarð- víkingurinn Ingi Gunnarsson, yfirflugstjóri Arnarflugs er Keflvíkingurinn Ómar Ólafs- son og í hópi flugmanna er Magnús Brimar Jóhannsson. Mega fara að vara sig Þeir flugfarþegar, til og frá Keflavíkurflugvelli, sem síð- ustu vikurnar hafa bæði kynnst flugmat Glóðarinnar um borð í Arnarflugsvélunum og mat Flugleiða, eru flestir sammála um að sá fyrrnefndi sé mörgum gæðaflokkum ofar hinum. Er þá skoðað bæði hvernig hann lítur út og eins gæði hans. Virðast Flugleiða- menn því vera staðnaðir að þessu leyti. Már í knattspyrnuna? Már Hermannsson, lang- hlauparinn kunni í Keflavík, virðist ætla að bjarga knatt- spyrnuliði ÍBK ef mið má taka af fyrirsögn á íþróttaopnunni í síðasta tölublaði. Að vísu var hér ekki um sanna frétt að ræða heldur hljóp prentvillu- púkinn illræmdi inn á opnuna með þeim afleiðingum að fyrir- sögnin „Glæsihlaup Más“ varð: „Glæsimark Más“. Suðurnes og Arnarflug Þrátt fyrir einokun Flug- leiða á ýmsum sviðum hefur Arnarflugi tekist með ólíkind- um að komast hjá viðskiptum við Flugleiði varðandi flug að og til Keflavíkurflugvallar. Er nú svo komið að nánast öll sú afgreiðsla er snýr að farþegun- um sjálfum er unnin af starfs- mönnum Arnarflugs eða aðil- um sem Arnarflug hefur fengið til verksins. Vekur at- hygli hvað flugfélagið sækir mikið af vinnuafli til Suður- nesja í þessi störf og væri gott ef aðrir tækju slíkt til fyrir- myndar. Eiríkur fékk stöðuna? Óljósar fregnir herma að Ei- ríkur Hermannsson hafi verið eini umsækjandinn um stöðu skólastjóra við Gerðaskóla í Garði. Hafi skólanefnd því einróma samþykkt umsókn hans, síðan er gangurinn sá að senda ákvörðun skólanefndar til fræðslustjóra sem síðan fjallar um hana og kemur til menntamálaráðherra sem samkvæmt þessu ætti að skipa Eirík í stöðuna. Vítavert af formanni Svar það, sem formaður skólanefndar Gerðahrepps gaf Víkurfréttum, er það spurðist fyrir um fjölda umsækjenda í stöðu skólastjóra og kom fram hér í síðustu Molum, hefur vakið athygli. Það sem fyrst og fremst vekur athygli er að við- komandi formaður starfar í opinberri nefnd og því er svar hans eða öllu heldur útúrsnún- ingur vítaverður. Einkaskoð- anir hans á viðkomandi fjöl- miðli kom málinu ekkert við. GRINDAVlK: KVÍABRYGGJA LAGFÆRÐ Nú standa yfir lagfæringar við Kvíabryggju í Grindavík. Að sögn Jóns Sigurðssonar, bæjar- tæknifræðings í Grindavík, voru festingar bryggjunnar við land orðnar ónýtar og því er verið að endurnýja þær. hpé/Grindavík. Þú lest um það í Víkur-fréttum. 5000 eintök vikulega. Öll toppmerkin í íþróttavörum. i SPORTBÚÐ ÓSKARS VIÐ VATNSNESTORG - SÍMI 4922 * Fra sjónarhorni Peter Keeling, þjálfari ÍBK, skrifar um "knattspyrnu: Gagn- rýni Með því að hljóta kosn- ingu sem forsætisráðherra Breta þriðja kjörtímabilið i röð hefur Margareth Thatcher skipað sér sess sem farsælasti pólitíkus í Evr- ópu. Pólitíkusar öðlast ekki mikla virðingu og „stand- ardinn" í breska þinginu er ansi lár, svo lár að lengi vel hefur verið sagt að Margar- eth Thatcher sé eini alvöru pólitíkusinn í breska þing- inu. En þrátt fyrir að fólk út um víða vcröld dáist að henni er hún mikið gagnrýnd í sínu heimalandi. Hún er ekki sátt við það en hún verð- ur að taka því að gagnrýni fylgir starfinu. Fólk sér hlutina í öðru Ijósi en þjálfarinn Sama verður knattspyrnu- þjálfari að gera. Miðað við þau vandamál sem ég hef þurft að glima við þá held ég að við höfum staðið okkur betur en nokkur þorði að vona, Ákvarðanirseméghef tekið hafa reynst réttar, og við höfum komið mest á óvart í 1. deildinni aföllum liðunum. En engu aðsíðurer gagnrýni til staðar og ég verð að taka því að svo mun alltaf verða. Það sem gerir knatt- spyrnu svo heillandi og spennandi er að allir geta haft sína skoðun og álit. Hvort sem það er ísienska landsliðið eða félagsliðið þá mun alltaf verða fólk sem sér hlutina í öðru ljósi og vill hafa lið sitt skipað öðruvísi en þjáifarinn ákveður. Jafn- vel meðal leikmanna munu þeir ávallt fyrirfinnast sem finnst að liðið eigi að vera skipað öðruvísi. Því þrátt fyrir aðeins 20 manna hóp góðra leikmanna, þá er að- eins hægt að velja 11 í byrj- unarliðið og einhverjum mun finnast hann hafa verið óheppinn. Framtíðarleik- maður ÍBK Jóhann Magnússon er tal- andi dæmi um þetta. Ég tel að hann eigi möguleika á að verða_ einn besti leikmaður sem ÍBK hefur átt. Hann hefur einstaka meðfædda hæfileika en það er enn margt sem Jóhann þarf að læra og bæta í leik sínum svo hann geti orðið kiassaleik- maður. Það er eðlilegt fyrir svo ungan leikmann. En það sem helst vantar hjá honum, og var að hjá flest öllum leik- mönnum ÍBK þegar ég kom hingað, er að skila boltanum betur frá sér. En Jóhann er skemmtilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér. Ef hann heldur áfram á sömu braut verður hann kominn í landsliðið fyrr en seinna. Það var mér mikil ánægja að gefa honum tækifæri gegn Skagamönnum og ég hafði þá þegar gert upp hug rainn um að nota hann gegn KR, því ég vildi tefla fram fljót- um og hættulegum hægri bakverði sem gæti sótt upp hægri kantinn. Það mundi setja pressu á vinstri væng „KR-miðjunnar“ og vinstri bakvörðinn, sem mundi þýða að þeir gætu ekki að- stoðað Pétur Pétursson í sókninni eins og þeir eru vanir. Þessi leikaðferð skilaði árangri í góðri frammistöðu okkar á móti hinu ósigraða KR-liði. Önnur staða gegn Víði Á móti Víði fannst mér önnur staða blasa við. Ég vissi það að reynsla leik- manna mundi verða mikil- vægur þáttur í leik gegn liði sem hefur rétt hugarfar um- fram allt annað og getur staðið í bestu liðum deildar- innar, með leikaðferðinni sem liðið leikur. Hvorki Val né Fram tókst að sigra Víði svo ég gerði mér fyllilega grein fyrir því að þetta mundi verða erfitt. Reynsla leikmanna var nauðsynleg og þess vegna ákvað ég að láta Rúnar Georgsson, einn reyndasta leikmann ÍBK, leika í stöðu Jóhanns. Yfir- vegun hans og hæfileiki til að lesa leikinn rétt kom sér vel, sérstaklega síðustu 15 mín- úturnar í leiknum, þegar spenna var farin að heltaka leikmennina og það átti sinn þátt í því að viðhéldum haus og unnum einn mest spenn- andi leik deildarinnar tii þessa. Hluti af starfínu Ef hver einasti leikur væri svona væru götur auðar þegar leikir í 1. deild færu fram; og það yrði ekki nóg pláss á áhorfendastæðunum fyrir allt það fólk sem vildi koma og fylgjast með leikj- unum. En á meðal þessa fólks munu alltaf einhverjir segia: „Af hverju lék þessi ekki inná og af hverju gerði þessi ekki þetta." Fyrir þjálfara að heyra þetta er bara hluti af starf- inu.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.