Víkurfréttir - 25.06.1987, Blaðsíða 16
murt
16 Fimmtudagur 25. júní 1987
jUUU I
Icl jmæík I m
icnska
Vi atmð
a c Iveg edí"
- segir bandaríska stúlkan Nora Colton, sem
nú heimsækir vini sína í Keflavík í fjórða sinn
Guðmundur og Nora Colt á hcimili Guðmundar í Keflavík.
Bandaríska stúlkan NORA
COLTON hefur dvalið í
Keflavík að undanförnu hjá
Guðmundi Ingólfssyni ogfjöl-
skyldu, en þetta er ekki í
fyrsta sinn sem hún kemur
hingað til lands. Fyrir 7 árum
síðan kom hún hingað sem
skiptinemi á vegum AFS og
dvaldi þá hjá Guðmundi í 3
mánuði. Sterkt samband
myndaðist fljótlega milli fjöl-
skyldu Guðmundar og Noru,
sem hefur haldist allar götur
siðan og heimsækir hún vini
sína í Keflavík í hvert sinn sem
því verður við komið.
Missti föður sinn
ung að árum
Nora Colton sagði í stuttu
samtali við Víkur-fréttir að
það hefði verið sér ákaflega
ELDHÚS-
innréttingar
Kjölur selur frönsku
MOBALPA-eldhús-
innréttingarnar.
Mikið úrval í efnum,
litum og verði.
Hjá Kili í Reykjavík
eru uppsett eldhús.
Hjá Kili í Keflavík eru
stórar myndir sem
sýna fjölda
innréttinga.
Lítið inn, skoðið úr-
valið og athugið
verðið.
Það borgar sig.
KJÖLUR
Keflavlk, siml 2121
KJÖLUR
Reykjavik, sfml 21490, 21846
mikilvægt að kynnast fólki
eins og fjölskyldu Guð-
mundar. „Þegar ég kom
: hingað 1980 þá var ég 18 ára
I og hafði misst föður minn á
| unga aldri. Mér var strax
í tekiðopnumörmumogfljót-
lega varð ég eins og ein úr
fjölskyldunni og sjötta dóttir
þeirra Guðmundar og Guð-
rúnar Guðmundsdóttur.
Gott samband skapaðist
milli mín og Guðmundar,
sem kom mér í föður stað og
ég nýt þess í hvert sinn sem ég
á þess kost að koma og heim-
sækja fjölskyldu mína í
Keflavík.
íslenska vatnið
alveg æði
Nora Colton er frá Yumaí
Arizona, 40 þúsund manna
bæ sem er nálægt Mexicó.
Hún sagði að þar væri alltaf
skortur á góðu drykkjar-
vatni og hún nyti þess í rík-
um mæli að drekka íslenska
vatnið, sem hún sagði það
besta i heiminum, alveg æði.
Þá líkaði henni íslenski fisk-
urinn ákaflega vel og raunar
allur íslenskur matur. Nora
nefndi líka mjólkurvörurnar
pg skyrið, sem hún taldi að
Islendingar ættu að flytja út.
Var við nám
í Egyptalandi
Síðastliðið ár hefur Nora
dvalið í Egyptalandi þar sem
hún hefur lagt stund á ara-
bisku og hagfræði Austur-
landa. Guðmundur sagði að
Nora hefði verið illa á sig
komin þegar hún kom hing-
að. „Hún sagði mér að mat-
urinn hefði ekki verið góður
og öllu hreinlæti væri ákaf-
lega ábótavant. Mér skilst að
fátæktin sé með ólíkindum
og fæðist maður fátækur í
þessum löndum, þá sé maður
dæmdur til að verða fátækur
allt sitt líf‘, sagði Guðmund-
ur.
Hefur kynnt ísland
í Bandaríkjunum
Nora hefur gert töluvert af
að kynna Island í Bandaríkj-
unum með því að halda fyrir-
lestra, sýna skuggamyndir
og leika lög frá Islandi. Hún
leikur á píanó og hreifst af
lögum Inga T. Lárussonar,
sem hún hefur leikið á fyrir-
lestrum sínum. Hún sagði að
það hefði verið talsvert áber-
andi hversu lítið fólk hefði
vitað um land og þjóð og
greinilegt að fólk hefði dreg-
ið vísbendingu af nafni
landsins í þessu sambandi.
Ljósm.: bb.
Land og þjóð komu
skemmtilega á óvart
Áður en Nora kom hingað
hafði hún gert sér mynd í
huganum af landi og þjóð.
„En bæði land og þjóð kom
mér skemmtilega á óvart og
þetta er einsþakt samfélag
hér á íslandi. Ég held að þið
gerið ykkur ekki grein fyrir
hvað þið hafið það gott. Það
þekkist hvergi í Bandaríkj-
unum að fólk skilji hús sín
eftir ólæst og mæður skilji
börn sín eftir í barnavagni
fyrir utan verslanir á meðan
þær skreppa inn. Eða þá að
börnin geti verið óhult úti við
leik frá morgni til kvölds.
Þetta er öryggi sem við
þekkjum ekki“.
Er á leið til náms
í London
Héðan ætlar Nora heim til
Bandaríkjanna og hyggst
dvelja hjá móður sinni um
tíma, en síðan liggur leiðin til
Lundúna þar sem hún ætlar
að ljúka doktorsprófi í hag-
fræði eftir 3 ár. Síðan vonast
hún til að fá vinnu hjá Hjálp-
arstofnun Sameinuðu þjóð-
anna eða hliðstæðri stofnun
og aðaláhugamál hennar er
Yemen. „Þar er meðalaldur
fólks 37 ár og fátæktin hrika-
leg. Mig langar að leggja mitt
af mörkum til að bæta
lífskjör þessa fólks, því mín
trú er að við getum ekki öll
setið hjá og horft upp á eymd
og fátækt án þess að spyrna
við fótum“.
Nauðungaruppboð
Að kröfu ýmissa lögmanna, innheimtumanns ríkissjóðs
o.fl. verða eftirtaldir lausafjármunir seldir á nauðungar-
uppboði sem fram fer26. júní 1987 kl. 16 í porti Skipting-
ar hf., Vesturbraut 34, Keflavík:
Ö- 230 Ö-2938 Ö-4695 Ö-7107 Ö-9074
Ö- 405 Ö-3217 Ö-4735 Ö-7358 Ö-9075
Ö- 609 Ö-3227 Ö-4738 Ö-7376 Ö-9100
Ö-1287 Ö-3228 Ö-4809 Ö-7450 Ö-9145
Ö-1341 Ö-3229 Ö-4882 Ö-7480 Ö-9164
Ö-1355 Ö-3273 Ö-4985 Ö-7488 Ö-9165
Ö-1418 Ö-3279 Ö-5082 Ö-7552 Ö-9283
Ö-1710 Ö-3359 Ö-5089 Ö-7646 Ö-9318
Ö-1850 Ö-3398 Ö-5126 Ö-7659 Ö-9402
Ö-1860 Ö-3417 Ö-5259 Ö-8007 Ö-9538
Ö-2100 Ö-3600 Ö-5370 Ö-8022 Ö-9710
Ö-2143 Ö-3664 Ö-5724 Ö-8025 Ö-9722
Ö-2299 Ö-3707 Ö-5903 Ö-8210 G-17855
Ö-2495 Ö-3863 Ö-6007 Ö-8435 R-5423
Ö-2501 Ö-3907 Ö-6009 Ö-8555 R-27286
Ö-2525 Ö-3959 Ö-6037 Ö-8556 R-29543
Ö-2614 Ö-4016 Ö-6356 Ö-8603 R-36159
Ö-2704 Ö-4173 Ö-6512 Ö-8623 R-37046
Ö-2753 Ö-4180 Ö-6713 Ö-8785 R-39763
Ö-2914 Ö-4586 Ö-7039 Ö-8792 U-4442
Ö-2921 Ö-4594 Ö-7061 Ö-8905 X-4241
Ö-9033 Öt-35
Ennfremur verður selt:
Tengivagnar, traktorsgrafa, beltisgrafa Payloader
Michigan 7B hjólaskófla, sjónvörp, ísskápar, hljómflutn-
ingstæki, videótæki, húsqögn, rafmagnslyftari, diesel-
lyftari.
I beinu framhaldi verður selt að Asgarði 2 í Garði
International Harvester jarðýta árg. 1974.
Uppboðshaldarinn i Keflavík, Njarðvík, Grindavik
og Gullbringusýslu