Víkurfréttir - 22.10.1987, Page 10
10 Fimmtudagur 22. október 1987
muK
juUh
Lesendasíðan
Er Bandaríkja-
her að reyna
að endurvekja
þrælahald?
Vallarstarfsmaður skrifar og
spyr:
1. Er bandaríski herinn að
reyna að endurvekja þrælahald
hér á Islandi eða eru yfirmenn
hersins að gera herstöðina að
mesta láglaunasvæði á Islandi
og nota til þess íslenskt starfs-
fólk í starfsmannahaldi og
launadeild.?
2. Eru ákvæði í Varnarsamn-
ingi U.S.A. og Islands um að ís-
lenskir starfsmenn hersins skuli
njóta sömu kjara og hæst eru
boðin á íslenskum vinnumark-
aði, þar með talið launaskrið
sem er umtalsvert í dag?
3. Hvernig getur herinn kom-
ist upp með það ár eftir ár að
brjóta íslenska kjarasamninga
með því að vera með stóran
hluta launafólks lausráðið ár
eftir ár með 3ja mánaða endur-
ráðningarákvæðum? A íslensk-
um vinnumarkaði er fólk fast-
ráðið eftir 3-6 mánaða starf hjá
sama vinnuveitanda með 3-6
mánaða uppsagnarfresti eftir
starfsaldri.
4. Eða eru kannski Islending-
ar í lykilstörfum innan hersins
sökudólgarnir með Kaupskrár-
nefnd í broddi fylkingar?
5. Er þetta óöryggi notað til
þess að brjóta niður samstöðu
verkafólks á vallarsvæðinu eða
er málið kannski það að yfir-
menn launa- og starfsmanna-
halds séu launaðir sérstaklega
fyrir að halda launum landa
sinna íalgjörulágmarki.saman-
ber síðustu uppákomu gagnvart
ræstingarfólki í sumar. Ekki er
enn búið að leiðrétta alla þá vit-
leysu er þá var gerð eða lítur
bandaríski herinn svo á að ís-
lenskt verkafólk sé leiguþý
bandarískrar herraþjóðar og
þeir geti farið með það að vild
sinni?
Svari hver sem getur.
„Litur bandariski herinn svo á að íslenskt verkafólk sé leiguþý banda
rískrar herraþjóðar ■ ■ ■ “, spyr bréfritari.
Neytendur:
Dýr ísetning
á pústkerfi
„Einu svörin sem ég t'ékk
frá honum voru þau að
hann hef'ði getað haft reikn-
inginn hærri," sagði Örn
Högnason er hánn kom
með reikning fyrir ísetn-
ingu nýs pústkerfið í bíl
sinn hjá bifreiðaverkstæð-
inu Drifás í Sandgerði, sem
hann segir óeðlilega háan.
Bifreið Arnar var í við-
gerð á verkstæðinu eftir
óhapp sem tryggingarfélag
hans átti að greiða. Hann
sagðist því hafa notað tæki-
færið, úr því að bíllinn var á
verkstæði, og óskað eftir
því að skipt yrði um púst-
kerfi í bílnuni á hans kostn-
að. „Mér brá hins vegar í
brún þegar ég fékk reikn-
inginn í hendur. Rúmlega
18 þús. krónur kostaði við-
gerðin með efni og sölu-
skatti. Ég fór á stúfana og
kannaði livað svona við-
gerð hefði kostað hjá Púst-
þjónustu Bjarkars í Kefla-
vík og fékk cg þær upplýs-
ingar þar að nákvæmlega
eins viðgerð hefði kostað
kr. 9.632,00 með söluskatti.
Þykir mér þetta ansi mikill
munur. Og það er þrennt
sem mér finnst athugavert
við reikninginn. í fyrsta lagi
þvkir mér ótrúlegt aó vinna
við ísetninguna hafi tekið 5
tíma en mér er sagt að slíkt
hel'ði ekki þurf't að taka
meira en 2 tíma. í öðru lagi
rukkar hann mig fyrirsölu-
skatt á pústkerfi sem búið
er að borga söluskatt af og í
þriðja lagi finnst mér dýrt
að greiða 9.674 kr. fyrir
pústkerfi sem kostar hann
ekki nema 5.853 kr. í inn-
kaupum,“ sagði Örn.
Sagðist Örn hafa kvartað
yfír upphæð reikningsins
við eiganda Drifásar sem
þá bauðst til að lækka hann
um 2.400 kr. „Ég greiddi
hins vegar reikninginn að
fullu og þáði ekki endur-
greiðslu og víst er að ég fer
ekki aftur með bíl til þessa
fyrirtækis,“ sagði Örn
Högnason.
SOLUÐ RADIAL
VETRARDEKK
Nú er rétti tíminn til að huga að vetrar-
dekkjunum. - Höfum flestar stærðir af
sóluðum radial-hjólbörðum á lager. -
Frábær inniaðstaða. - Fljót og góð
' 'flÍLlMlil::-
FITJABRAUT 12 - NJARÐVIK'- SÍMI 11399, 11693