Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.03.1988, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 30.03.1988, Blaðsíða 9
\IIKUK Menningarvakan: Þrjár málverka- sýningar Nú í dymbilvikunni verða opnaðar þrjár múlverkasýn- ingar á Suðurnesjum í tengsl- um við Menningarvöku Suð- urnesja. Opna þær allar á morgun, skírdag. I Grunnskóla Sandgerðis opnar málverkasýning Hall- dóru Ottósdóttur og Þórunnar Guðmundsdóttur kl. 14. Við það tækifæri flytur Olafur Gunnlaugsson, oddviti Mið- neshrepps, ávarp og nemend- ur úr Tónlistarskóla Miðnes- hrepps syngja. Asta Pálsdóttir, Erlingur Jónsson og Halla Haralds- dóttir standa að málverka- og höggmyndasýningu sem opnar sama dag kl. 15 í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja. Guð- finnur Sigurvinsson, forseti bæjarstjórnar Keflavíkur, flyt- ur ávarp, nemendur frá Tón- listarskólanum í Keflavík flytja tónlist. Þá opnar Sigríður Rósin- karsdóttir málverkasýningu í Festi í Grindavík kl. 17 en þar standa nú yfir vordagar Bóka- safns Grindavíkur. Standa sýningarnar allar yfir fram á páskadag nema sýning þremenninganna, sem stendur fram á kvöld annars í páskum, og eru opnar daglega frá kl. 14 til 22 nema í FSsem er opin 15-22. Breytingar á fyrirtækjum Miðvikudagur 30. mars 1988 9 Setjum aur í dós og kveikjum með því Ijós að bjartari framtíð sjúkra og aldraðra á Suðurnesjum. i im.iihh Setjum aur í dós í nýlegu Lögbirtingablaði birtust nokkrar tilkynningar um breytingar á rekstri fyrir- tækja á Suðurnesjum, m.a. voru þessar fimm þreytingar: Slitið hefur verið fyrirtæk- inu H.B. trésmíði s.f. í Sand- gerði, og eins fyrirtækjunum Skjölun s.f. í Keflavík og Nonna og Bubba s.f. í Kefla- vík. Þá hefur firmað Hjólbarða- þjónustan s.f. í Keflavík verið slitið en Bjarni Valtýsson rek- ur hjólbarðaþjónustu að Hafnargötu 86 sem einkafyrir- tæki. Þá hefur verið ákveðið að slíta sameignarfélaginu Sveinn og Þórhallur s.f. og hefur Þ. Guðjónsson h.f. yfirtekið reksturinn. Aðildarfélög D-álmu sam- takanna hafa að undanförnu dreift dósum til söfnunar fjár- muna í byggingu D-álmunnar við Sjúkrahús Keflavíkur- læknishéraðs. Er þess vænstað Suðurnesjabúar taki söfnun þessari vel eins og síðast þegar söfnun vegna þessa góða mál- efnis stó,ð yfír. Er skorað á Suðurnesjabúa, sem fengið hafa söfnunardós, að gleyma þeim ekki bak við gardínur eða inni í skáp, skila þeim fremur til Sparisjóðsins sem veitir dósum með aurum í viðtöku. Tækifæris- tékkareikningur VŒZlUNRRBfiNKINN Við kynnum TÆKIFÆRISTÉKKAREIKNING VERSLUNARBANKANS ..með allt í einu hefti! -uÍHHUn, tnei péx ! VATNSNESVEGI 14 - SÍMI 15600 Hann býður einstaklingum upp á tækifæri og möguleika sem ekki hafa áður þekkst í einum tékkareikningi, s.s.: • Yfirdráttarheimild ailt að 20.000 kr. • Ðagvexti reiknaða af stöðu reikningsins. • Stighækkandi vexti með hækkandi innstæðu. • Hraðlán og Launalán afgreidd án milligöngu bankastjóra. • Enn hærri vexti á fasta lágmarksinnstæðu. • Bankakort sem veitir aðgang að Hraðbönkum. Tækifæristékkareikningur Ávaxtar veltufé - auðveldar lántöku!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.