Víkurfréttir - 30.03.1988, Blaðsíða 20
\>iKun
4/hUíí
Miðvikudagur 30. mars 1988
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15. - Símar 14717, 15717.
TÉKKAREIKNINGUR
SPURÐU SPARISJÓÐINN
Opnunarkvöld Menningarvöku Suðurnesja:
„Til marks um kraft og metn-
að þess fólks sem hér býr“
- sagði menntamálaráðherra við setningu Menningarvökunnar
„Þetta opnunarkvöld tókst í alla staði mjög vel og við gerum okk-
ur vonir um að þátttaka i mcnningarvökunni verði góð, enda viða-
mikil og fjölbreytt dagskrá. En það sem hvað mestu máli skiptirer
að við erum búin að koma Suðurnesjunum á „menningarkortið“ ef
svo má segja“ sagði Hjálmar Arnason, skólameistari, að lokinni
Laxncssvöku á opnunarkvöldi á Menningarvöku Suðurnesja sl.
miðvikudagskvöld í Félagsbíói. Hjálmarereinnaf„höfuðpaurum“
og umsjónarmönnum menningarvökunnar, ásamt Magnúsi Gísla-
syni og fleirum. Þeir félagar voru einnig þátttakendur í svipaðri
vöku fyrir 9 árum síðan á Suðurnesjum.
Húsfyllir á
opnunarkvöldi
Húsfyllir var í Félagsbíói á
opnunarkvöldinu sem hófst
með því að Helgi Hólm bauð
gesti velkomna og þá sérstak-
lega heiðursgest kvöldsins, frú
Vigdisi Finnbogadóttur, for-
seta Islands. Fyrstur flutti
ávarp Eiríkur Alexandersson,
framkvæmdastjóri Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum,
fyrir hönd þess hóps er unnið
hefur að undirbúningi menn-
ingarvökunnar.
A eftir Eiríki kom mennta-
málaráðherra, Birgir Isleifur
Gunnarsson, í pontu og setti
vökuna formlega. Hann sagði
m.a.: „Það er vissulega við
hæfi að kenna þessa samkomu
hér í kvöld, setningarathöfn
menningarvökunnar, við
Halldór Laxness, sem hefur
átt stóran þátt í sköpun ís-
lenskrar menningarogauðgun
tungu okkar. Menningarvaka
Suðurnesja er ekki aðeins
menningarsýning heldur og
einnig menningarsköpun.
Hún er til marks um kraft og
metnað, skilning og stolt þess
fólks sem hér býr. Megi hún
verða lýsandi fordæmi fyrir
ibúa í öðrum landshlutum."
Þegar Birgir'hafði lokið máli
sínu tók við fyrsta atriði á
skemmtidagskránni sem var
söngur kirkjukóra Keflavíkur
og Njarðvíkur. Helgi Skúla-
son, leikari, sem er ættaður úr
Keflavík, las síðan kafla úr
bók Laxness, Paradísarheimt,
sem fjallaði að stórum hluta
um Krapa, hest Steinars í
Steinhlíð.
Að loknu stuttu hléi fór
fram afhending á ,,Krapa“,
styttunni sem Erlingur Jóns-
son gerði. Þar sem Nóbels-
skáldið gat ekki mætt tók dótt-
ir hans, Sigríður; við verkinu
fyrir hans hönd. A undan flutti
Valtýr Guðjónsson stutta
ræðu en hann, ásamt fleirum,
átti hugmyndina að gjöfinni.
Þrjú síðustu atriði kvöldsins
voru öll úr verkum skáldsins.
Fyrst söng Hlíf Káradóttir
lagið Barnagælu úr Silfur-
túnglinu við undirleik Gróu
Hreinsdóttur. Félagar úr
Leikfélagi Keflavíkur komu
næstir með stuttan leikþátt úr
Islandsklukkunni og lokaorð-
ið áttu kirkjukórarnir sem
sungu Maístjörnuna.
menninqarvaUa
suDurnvfESJA
Blandaður hópur kirkjukóra Keflavíkur og Njarðvíkur söng
Gleðilega páska!
Víkur-fréttir
Hér eru „oddamenn“ undirbúningshóps menningarvökunnar þeir Hjálmar Árnason, Magnús Gísla-
son og Eiríkur Alexandersson ásamt frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta Islands, og menntamálaráð-
herra, Birgi Isleifi Gunnarssyni og frú. Ljósmyndir: hbb.
Helgi Skúlason las úr Paradísarheimt.
Erum við þá kannski ekki
mcnningarsnauðir?