Víkurfréttir - 30.03.1988, Blaðsíða 15
yfiKun
4*uut
Miðvikudagur 30. mars 1988 15
Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja:
Samþykkti
150 þús. kr. til
menningar-
mála
Aðalfundur Kaupfélags
Suðurnesja var haldinn í
Glaumbergi, Keflavík, laugar-
daginn 26. mars sl.
Fundarstjórar voru kjörnir
Jóhann Einvarðsson og Olaf-
ur Gunnlaugsson og ritarar
þeir Skúli Skúlason og Eiríkur
Hermannsson.
I skýrslu stjórnar kemur
m.a. fram að félagsmönnum
hefur fækkað um 28 og eru fél-
agsmenn því 3491 og þar af
549 utan félagssvæðis.
Á síðasta ári opnaði kaup-
félagið verslun í Garðinum og
af því tilefni var Knattspyrnu-
félaginu Víði og Litla Ieikfél-
aginu færðar 50 þús. krónurað
gjöf, hvoru félagi.
Á launaskrá hjá félaginu
voru 173 manns, 76 í fullu
starfi og 97 í hlutastarfi.
Hlutafé í Hraðfrystihúsi
Keflavíkur var aukið um 5
milljónir á síðasta ári en sam-
tals var fjárfest fyrir 10.692.
000 á síðasta ári.
Kaupfélagið í Vogum ferað
öllum líkindum í nýtt húsnæði
í apríl.
Á fundinum var samþykkt
að verja 150 þúsundum til
menningarmála á Suðurnesj-
um og skiptist fjárhæðin þann-
ig: 50 þúsund í ferðalýsingu
um Suðurnes, sem Rótarý-
klúbbur Keflavíkur ætlar að
gefa út, 50 þúsund til Menn-
ingarvöku Suðurnesja, 25 þús-
und til Frakklandsferðar
barna í Holtaskóla og 25
þúsund til þátttöku í Olympíu-
leikum aldraðra en það mun
vera Garðmaðurinn Jóhann
Jónsson sem nýtir þennan
styrk frá KS.____________
Viltu
ferðast
ódýrt?
Færeyjaferðin verður að
veruleika. Lagt verður af stað
að kveldi 8. júní kl. 9-l0ogek-
ið til Seyðisfjarðar og siglt með
Norrænu til Færeyja. Rútan
sem flytur hópinn austur fer
með og ekur um með íslensku-
mælandi fararstjóra, kunnum
eyjunum, og skoðar það merk-
asta sem þær hafa upp á að
bjóða fyrir ferðamenn. Gist
verður í farfuglaheimilinu í
Þórshöfn, sem er vel staðsett í
bænum.
Athugið, þetta er tilvalin
fjölskylduferð, því boðið er
upp á glæsilegan barnaafslátt
og engum þarf að leiðast um
borð í Norrænu, því um er að
ræða fljótandi lúxushótel sem
býður upp á fjölbreytt
skemmtanalíf fyrir börn og
fullorðna, þó sigling sé ekki
löng.
Allir velkomnir um borð.
Ferðanefnd
Frá
Brunabót
Frumkvæði Brunabóta-
félagsins er fólgið í því,
að í stað þess að bjóða mark-
aðnum eins og félögin hafa
gert til þessa hefðbundnar
tryggingagreinar með samræmdum skilmálum
og iðgjöldum, þá snýr félagið sér beint að
hverjum einstökum tryggingataka og spyr
hann: Hvaða áhættur ert þú að taka í þínum
rekstri og þínu lífi?
Þegar vátryggingarþörfin liggur fyrir eftir
sameiginlega skoðun áhættunnar er pakkinn
sniðinn með samsettum tryggingum í samræmi
við vátryggingaþörfina.
Helstu einkenni pakkans eru öruggari
vátryggingarvernd, einfaldari framkvæmd
vátryggingarinnar og hagstæðari iðgjöld. Að
ógleymdu höfuðeinkenninu: Þú sníður þinn
pakka sjálfur.
Brunabótafélagið hefur fullgert og sett á
markað með mjög góðum árangri pakka fyrir:
O sveitarstjórnir
O verslunarfyrirtæki
O iðnaðarfyrirtæki
Nú býður félagið einnig pakka fyrir:
O fjölskyldur
O ýmsir sérpakkar
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
Umboö Kei'lavík - Njarövík - Vogar - Garöur
Haínargötu 58, Keflavík, símar 13510, 13511, 14880