Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.01.1989, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 05.01.1989, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 5. janúar 1989 \fiKun jutUi molar - Grín - Gagnrýni - Vangaveltur Umsjón: Emil Páll „Ég var að ræna banka“ Bankaræninginn umræddi fór sem kunnugt er á puttan- um hingað suður Reykjanes- braut. Fékk hann far með góðkunningja okkar hér á Víkurfréttum. A leiðinni urðu m.a. þessi orðaskipti milli þeirra: Fyrst spurði bíl- stjórinn „hvað ert þú að starfa?“ „Ég var nú bara að ræna banka“ sagði komu- maðurinn. „Er svolítið gott að hafa upp úr því?“ spurði þá bílstjórinn. „Já, ég hafði 400 þúsund í þetta skipti“ svaraði bankaræninginn og tók upp 400 þúsund krónur og sýndi ökumanninum. Eft- irmálarnir urðu að sjálf- sögðu þeir að ökumaðurinn lét lögregluna í Keflavík þeg- ar vita, þegar farþeginn var farinn út á móts við lögreglu- stöðina í Keflavík. Bankaræningi Er margnefndur banka- ræningi var handtekinn í Leifsstöð á dögunum bar þar að tvo flugstjóra er vissu ekki um atburði dagsins. Voru þeir að koma inn í landið er þeir mættu tveimur tollvörð- um með kauða milli sín. Varð þá öðrum flugstjóran- um að orði: „Halda mætti að hér væri bankaræningi á ferð“. Hörku útgáfutíðni Á því ári sem nú er nýlok- ið gerðist það í fyrsta sinn að Víkurfréttir voru gefnar út 51 viku. Aðeins í vikunni eft- ir verslunarmannahelgi féll útgáfan niður. Samanlagður síðufjöldi á síðasta ári var 1112 eða tæpar 22 síður að meðaltali í viku hverri. Árið áður urðu blöðin alls 59 sem stafaði af því að tvö blöð voru gefin út í viku hverri á tímabilinu febrúar til maí það ár. Það ár var metár í síðufjölda eða samtals 1166 sem gera tæpar 20 síður að jafnaði hverju sinni. Það ár var tekið langt frí um jól og nýár auk hálfs mánaðar frís um verslunarmannahelgi. 10. árgangur á tæpum níu árum Nú hefst 10. árgangur Vík- urfrétta að því er fram kem- ur á forsíðu blaðsins. Blaðið á þó ekki 10 ára afmæli fyrr en eftir rúmt eitt og hálft ár eða í ágúst 1990. Stafar þetta af því að fyrsti árgangurinn var aðeins frá því í ágúst 1980 og til áramóta en þá tók 2. við og síðan koll af kolli um hver áramót. Yfirmaður ársins 1988 Vikublaðið Pressan hefur tilnefnt Karl West yfirmann ársins ’88 í framhaldi af vin- sældakönnun blaðsins. Karl var verslunarstjóri Hag- kaups í Njarðvík á árunum 1982 til 1987 að hann tók við verslunarstjórn Hagkaups í Kringlunni. Hann er búsett- ur í Keflavík. Lögfræðingarnir og slökkviliðið Nú á skömmum tíma í kringum jólin hefur slökkvi- lið BS tvisvar verið kallað út vegna bruna hjá lögfræðing- um. Fyrst var það bruni á skrifborði eins og síðan í bíl annars. Nú bíða menn þar á bæ spenntir eftir því hver verði þriðji lögfræðingurinn sem fær þjónustu liðsins, ef marka má regluna „allt er þegar þrennt er“. Fljótfærni ráðherrans.... Ekki eru allir sáttir við þá ákvörðun Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkis- ráðherra að skipta á Finn- boga Björnssyni og Guð- finni Sigurvinssyni í varnar- málanefnd. Fáum finnst nokkuð athugavert þó ráð- herra skipti um til að koma sínum flokksmanni að en hitt líta menn öðrum augum, að nú eru þarna þrír Keflvík- ingar í nefndinni en enginn fulltrúi frá öðrum byggðar- lögum hér á skaganum. ....en hitt þó verra Mönnum líst þó enn verr á þá yfirsjón ráðherrans að skipa mann í nefndina, sem er starfsmaður varnarliðsins, þó svo að hann sé í launa- lausu fríi. Efast menn ekkert að hann muni gera sitt besta sem og aðrir nefndarmenn. Hitt hlýtur þó að eiga eftir að koma upp, þ.e. vandamálið hvernig starfsmaður VL geti tekið á máli sem húsbóndi þess, eins og varnarmála- nefnd í raun á að starfa. Verður hann þá að starfa beggja megin borðsins?Með skipun þessari ætlast ráð- herra til þess, en varla erslíkt hægt. Mikil dreifíng Nú eru Víkurfréttir eitt fárra vikublaða hér á landi komið í upplagseftirlit Versl- unarráðs, enda ekkert að fela hvað upplag og dreifingu varðar. En auk dreifingar um öll Suðurnes hefur dreifing út fyrir svæðið auk- ist jafnt og þétt og er nú svo komið að um 400 blöð eru send til áskrifenda vikulega út um land, auk tæplega 50 sem fara til áskrifenda víða út um heim, þ.e. til margra Evrópulanda, Bandaríkj- anna, Israel ogjafnvel víðar. Góðar póstsamgöngur Hver hefði trúað því fyrir nokkrum árum að Víkur- fréttir sem settar eru í póst í Keflavík á fimmtudegi væru komnar til viðtakenda í Bandaríkjunum á þriðjudeg- inum næst á eftir? Þetta er þó raunin, þó menn tali um slæmar póstsamgöngur á það ekki við í þessu tilfelli. DANSSKÓLI AUÐAR HARALDS HAFNARGÖTU 31 - KEFLAVÍK - SÍMI 13030 lnnritun stendur y frá kl. 14-19 alla virka daga. Kennt á miövikudögum og laugardögurr1- Haralds. /fðalkennarr. Auður n____ L ock’n RoH ama-, unglinga- 9 hjónahópar yrir allt hresst fótk L öiium aidri. Sérnámskeið eða <ennt með oðrum dönsum- H JÓN OG E»N- stakungar • samkvæmisdansar • Standard og 9° dansarnir • suður-amerisKir • Rock og tjútt bybjendaH0PAR ° framhald Fyrir börn og unglir*ga • dnns- oq songvar Leikir, dans 09 6.8 ára, tyrir born 3-^ara ldrl 9-11 ara,12ara .Diskó/ SamWf ^Bockn rc». jazz/dansar oy Tött dansar - ny sp ATH: Kennsla heíst miðvikudaginn 11. jau. Afhending skírteina sunnudaginn 8. jan. kl. 16-18.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.