Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.01.1989, Page 9

Víkurfréttir - 05.01.1989, Page 9
mun jtiW* Fimmtudagur 5. janúar 1989 Kvenfélag Grindavíkur: Gaf Samtökum um kvennaathvarf peningaupphæö Kvenfélag Grindavíkur hef- ur afhent Sannökum um kvennaathvarf peningagjöf upp á 51 þúsund krónur. Er það von félagsins og ósk að fleiri kvenfélögeða kvenfél- agasamtök veiti þessari starf- semi athygli. Markmiðið með fjárframlagi þessu er að draga úr neyð athvarfsins og glæða það birtu og yl eins og reynt er að gera á öðrum heimilum fyr- ir jól. Guðveig Sigurðardóttir, formaður Kvenfélags Grindavíkur, í miðið ásamt fulltrúum kvennaathvarfs- ins. Togara- kaupin orðin að veru- leika Báðir HK-togararnir, Að- alvík og Bergvík, fluttust um áramót yfir á Skagfirðinga. Voru þeir ísaðir í Njarðvík- urhöfn og fóru þaðan ti! veiða núánýjaárinu.Erþess þó vænst að Bergvíkin landi úr fyrstu tveimur til þremur veiðiferðunum í Njarðvík. Drangey, sem nú mun hljóta nafnið Aðalvík, er væntanleg hingað suður i dag. En Hraðfrystihús Keflavíkur tók við þvi skipi um áramót en þá var það á Akureyri. Samkvæmt upplýsingum blaðsins virðast önnuráform Suðurnesjamanna um tog- arakaup, sem voru í athug- un, vera dottin upp fyrir, a.m.k. að sinni. Enn óvissa í lækna- málinu í Grindavík Hæstiréttur hefur fellt úr gildi úrskurð héraðsdóms vegna kröfu Ríkisendur- skoðunar um aðgang að sjúkraskrám heilsugæslunn- ar í Grindavík. Er niðurstaða Hæstaréttar byggð á því að úrskurðurinn, sem kærður var til Hæstaréttar, sé við- tækari en krafa Ríkisendur- skoðunar. Mun Ríkisendurskoðun því leggja fram aðra kröfu sama efnis. Er þess að vænta næstu daga að héraðsdómur kveði upp úrskurð vegna kröfunnar. Sendum I Suðurnesja- U mönnum y okkar bestu l' óskir um \ farsælt nýtt \ ár með þökk fyrir það liðna m. SPARISJOÐURINN ' -SJÓÐUR SUÐURNESJAMANNA

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.