Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.01.1989, Qupperneq 11

Víkurfréttir - 05.01.1989, Qupperneq 11
10 Fimmtudagur 5. janúar 1989 mun jiitUt Víkurfrétta- annáll 1988 Það gerðist ýmislegt markvert á því herrans ári 1988, sem nú er liðið í aldanna skaut. Frétta- deild Víkurfrétta ætlar að rifja upp í fáum orðum það sem gerð- ist á liðnu ári, bæði í máli og myndum. Hér er ekki um að ræða úttekt á stærstu og bestu, eða verstu frétt hvers mánaðar, heldur einungis lauslegt og gróft yfirlit yfir atburði liðins árs. JANÚAR I janúar fór fram afhending á fyrstu Subaru-flóðabílunum, sem lentu í flóðum í Drammen í Noregi. Það voru þremenningar úr Keflavík sem fluttu bílana til landsins. Eldey hf. keypti tvö fiskiskip. Fjölmenni var hjá Þorvaldi Karli er hann ræddi um hjónabandið og fréttir fóru að berast af því að verið væri að selja skip af svæðinu. FEBRÚAR Hafið tók sinn toll á árinu. Hrafn Sveinbjarnarson III strandaði við innsiglinguna til Grindavíkur um miðjan febrúar og náðist ekki á flot aftur. Mannbjörg varð. Það er ekki sömu sögu að segja úr janúar- mánuði, en þá fórst Bergþór KE og með honum tveir menn. Þrír björguðust. I marsmánuði fórst MenninqarvaUa naarvaua -afl VfNESJA w Menningarvaka Suðurnesja |>ótti takast vel. íslensku liðin á NM í golfi, sem lialdið var í Leiru, urður í 3. sæti á mótinu. Þrír Suðurnesjamenn kepptu, þau Sigurður Sigurðsson, Karen Sævarsdóttir og Hilmar Björgvinsson. síðan Knarrarnes KE ásamt þriggja manna áhöfn. Fiskverk- endur fóru fram ágengisfellingu ella yrðu engir samningar og Fiskmarkaður Suðurnesja sló öllum öðrum við hvað sölu varð- ar. MARS Guðbjörg Fríða Guðmunds- dóttir var krýnd Fegurðar- drottning Suðurnesja 1988 í Glaumbergi í marsmánuði. Al- vopnaðir hermenn fóru á Hafn- argöturúntinn og voru stöðvað- ir af lögreglu. Urvalsdeildarlið ÍBK í körfubolta átti ,,bágt“ enda voru Ftmm leikmenn liðs- ins á hækjum vegna meiðsla og Garðmenn vildu endurheimta Helguvíkina. APRÍL Menningarvaka Suðurnesja var endurvakin í lok mars. Margt góðra gesta mætti á vökuna, sem þótti takast vel. Strax í byrjun apríl hófust vaktir á slökkvi- stöðinni allan sólarhringinn. Sandgerðingar mótmæltu að brætt væri í bræðslunni, þegar vindátt stóð yfir byggðarlagið. Gámur fauk á bíl í Njarðvík og lagði hann saman. Mesta mildi var að ekki yrði stórslys. Fram kom í apríl að kostnaður við flutning vatnsbóla Keflavíkur og Njarðvíkur í kjölfar olíulek- ans á Keflavíkurflugvelli væri um 70 til 80 milljónir. MAÍ Verslunarmenn í Verslunar- mannafélagi Suðurnesja fóru í verkfall í endaðan apríl og til átaka kom m.a. í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Njarðvíkurbær skrifaði undir samning við Meistarahús hf., þar sem meist- arahús fékk úthlutað 11 lóðum við Starmóa og myndi fyrirtæk- ið sjá um að reisa þar hús ásamt gatnagerð. Miklir rekstrarerfið- leikar komu upp hjá eina fisk- vinnslufyrirtækinu í Höfnum og fyrsta skóflustungan var tekin að viðbyggingu við íþróttahúsið í Keflavík og bæjarstjórn Kefla- víkur hafði áhyggjur af hárri Utsala hófst í dag! Stórkostlegur afslátturl AÞENA Verslunin Hafnargötu 36 - Keflavík ■ ' ; Happdrætti Háskólans býður nú langhæstu vinninga á íslandi: 5 milljónir sem gefa 25 milljónir á tromp og 45 milljónir á númerið allt. Sannkölluö auöæfi! En stóru vinningarnir eru fleiri því aö milljón króna vinningar eru alls 108. Heildarupphæö til vinningshafa er rúmur milljarður og áttahundruö milljónir. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnines ______________ fallprósentu í Fjölbraut. JÚNÍ Ibúar í Gerðahreppi héldu upp á 80 ára afmæli hreppsins þann 17. júní. Var margt gert til skemmtunar og m.a. var bökuð rjómaterta sem dugði öllum íbú- um hreppsins. Nýtt og glæsilegt hótel opnaði í Keflavík. Heil- brigðiseftirlitið fór herferð um Suðurnesin og hreinsaði lóðir á kostnað eigenda. Nýir verka- mannabústaðir voru teknir í notkun i Keflavík en bygginga- tími þeirra var aðeins tveir mán- uðir á íbúð. Slátrun í Grindavík var úr sögunni og Glaumberg lokaði á óbreytta varnarliðs- menn. JÚLÍ I góðviðrinu í sumar voru haldn- ar ófáar grillveislur utandyra. Foreldrarnir á Tjarnarseli grill- uðu pulsur handa krökkunum, sem mæltist vel fyrir. Mikil Guðbjörg Fríða Guðmundsdóltir var kjörin Fegurðardrottning Suðurnesja 1988. aukning varð á umferðarlaga- brotum ökumanna, m.a. voru margir teknir ölvaðir. I júlí voru 200 Suðurnesjamenn réttinda- lausir í kjölfar þess að hafa verið sviptir ökuleyft vegna ölvunar. Vangaveltur voru um það hvort Steindór keypti SBK og miklar deilur sköpuðust vegna fyrir- hugaðrar laxeldisstöðvar á Garðskaga. ÁGÚST Norðurlandamótið í golft var haldið á Hólmsvelli í Leiru í ágúst. Mikill fjöldi golfara frá Norðurlöndunum tóku þátt í mótinu. Nýir líkamsræktar- bekkir slógu í gegn á Suðurnesj- um og opnuðu tværslíkarstofur með stuttu millibili. Lögreglan fékk að gjöf öflugt björgunar- tæki til þess að ná föstu fólki úr bílum. Vangaveltur voru uppi um það hvort sjúkrahúsið stæði ekki undir nafni og sjúkrahúsið var einnig kært fyrir ranga lækn- ismeðferð. Heimtur hjá laxeldis- stöðinni Vogalax brugðust þetta árið. Mikill húsnæðisskortur var í Vogum og miklar annir hjá sjúkraflutningsmönnum hjá BS og voru dæmi um það að allir bílar væru í útkalli á sama tíma. SEPTEMBER A sama tíma og rætt var um tvö- Samantekt: m ur< juWt földun Reykjanesbrautar í sept- ember, þá var lagt gúmmímal- Róstursamt var i Lcifsstöð i kjölfar verkfalls Verslunarntannafélags Suð- urnesja. bik á hættulegasta vegarkaflann í Kúagerði. Guðbjörg Fríða, Fegurðardrottning Suðurnesja, keppti í „Queen of the world“. ÍBK beið lægri hlut í úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar og Sæbjörg hafði nóg að gera á ár- inu við það að sækja vélarvana báta, sem sumir komu langt að. Menn byrjuðu að karpa um fyrirhugaða staðsetningu „ríkis- ins“ í Hólmgarðinum. Eiríkur Alexandersson var ráðinn úti- bússtjóri Utvegsbankans og Guðjón Stefánsson kaupfélags- stjóri hjá Kaupfélagi Suður- nesja. Fjölbrautaskólinn boðaði hertan aga og betra nám en Holtaskóli átti í erfiðleikum með það að fá mannskap með réttindi. I lok september bárust síðan fréttir af því að HK ætlaði að skipta á báðum sínum togur- um fyrir einn að norðan. OKTÓBER I lok september og byrjun októ- ber komu upp samstarfsörðug- leikar innan stjórnar DS sem leiddu til langra deilna. í fram- haldi af þessu var jafnvel hætta á að Brunavarnir splundruðust. Nýja slökkvistöðin í Grindavík varð fokheld og Ragnar Örn opnaði nýtt og endurbætt Sjáv- argull. Keflavíkurbær rukkaði nágrannasveitarfélög um 5 milljónir í skólagjöld. Víkur- fréttir upplýstu um stór gat í fjárhag IBK en ráðið skuldaði þá um 8 milljónir króna. Atvinnu- horfur á Suðurnesjum voru slæmar í október og útlending- ar á atvinnuleysisskrá. Kven- maður settist í framkvæmda- stjórastól Aðalstöðvarinnar og Geir Sverrisson vann silfur á OL fatlaðra. NÓVEMBER Togaramál HK voru enn í brennidepli og fréttir að berast að hin ýmsu fyrirtæki væru að selja skip sín. Það voru þó ekki allir að selja og nokkur skip komu úr miklum endurbótum með haustinu og nýtt Stafnes KE kom til landsins. Vinnsla hófst í nýbyggingu Nesfisks í Garði, ellefu mánuðum eftir stórbruna. A aðalfundi Sam- bands sveitarfélaga á Suðurnesj- Hilmar Bragi um kom fram ótti vegna þróun- arinnar í sjávarútvegi. Fjöldi manns var sviptur atvinnuleys- isbótum vegna misnotkunar. Kaupfélagið að Hafnargötu 30 varð eldi að bráð og róstusamt varð í miðbæ Keflavíkur um Z' 588I Hafið tók sinn toll á árinu oy m.a. strandaði llrafn Sveinbjaruarson III. við Grindavik og náf ist ekki á llot aftur. miðjan nóvember og atlaga gerð að lögreglunni. Birtu Víkurfrétt- ir myndir úr róstunum, auk þess sem fjallað var um umræður í bæjarstjórn Keflavíkur. Ársþing IBK var haldið í nóvember og þar kom fram að skuldir knatt- spyrnuráðs væru 10 milljón króna „slys". DESEMBER Það mátti búast við að það birti örlítið til á Suðurnesjum í byrjun desember en þá stóðu yfir þreif- ingar eftir þrem togurum. Birtan var ekki alstaðar, því fjórði hver félagi í samtökum gjaldþrota einstaklinga er frá Suðurnesjum. Sjö tilboð bárust í sorphirðu á Suðurnesjum en þau fóru öll í ruslið. Heilsugæslu- 'læknirinn í Grindavík neitaði rannsókn á sjúkraskrám og lög- reglan í Grindavík er með ófull- nægjandi vinnuaðstöðu. Hita- veitan var hlunnfarin hjá RARIK og Anna Lea létti leik- fimihóp hjá sér um 100 kíló. Suðurnesjamenn borða hálft tonn af skötu á Þorláksmessu og flugeldastríð ríkti milli ÍBK og björgunaraðila í Keflavík og Njarðvík. Fimmtudagur 5. janúar 1989 11 Unglingar í miðbæ Kefiavíkur gcrðu aðsúg að lögrcglu og brotist var inn i verslun Kaupfélags Suðurnesja að Hafnargötu 30. Þjófarnir voru gripnir glóðvolgir rétt eftir verknaðinn. NÝ NÁMSKEIÐ AÐ BYRJA Frábært æfingakerfi, sem hlotið hefur viðurkenningu. SAMEINAR: brennslu, styrkingu og þol. Sjáðu árangur á styttri tíma en áður. SPLUNKUNÝTT „SVITAKERFI“ í aukatímum föstudaga og laugardaga. FYRIR BÆÐI KYNIN 8 strákar í síðasta mánuði. Batnandi mönnum er best að lifa . .. Innritun í SÓLEY laugardaginn 7. janúar kl. 12.30-14.30. Komið á undan í ókeypis svitatíma kl. 11 og gangið frá innritun á eftir. BERTA Sími 13676

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.