Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.01.1989, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 26.01.1989, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 26. janúar 1989 mun jutUt molar Gagnrýni - Grín - Vangaveltur Góðir viðskiptavinir... „Fátt er svo með öllu illt.“ Þessi málsháttur kemur upp í huga manna þegar rætt er um skipverjana sem voru á danska skipinu, er strandaði við Grindavík. Eftir að þeir voru fluttir á land fengu þeir gistingu á Flug Hóteli í Keflavík og herma sögur að þeir séu duglegir við- skiptavinir á barnum þar. Má því segja að það sé eina glætan í þessari hörmungar- sögu. Menningarleysið lak inn Á mánudag urðu nemend- ur í Fjölbrautaskólanum, kennarar o.fl. varir við að leki var í nýbyggingu Fjöl- brautaskólans við Sunnu- braut. Voru gárungarnir fljótir að finna það út að hér væri það ekki vitið sem væri að leka út, heldur menning- arleysið að leka inn... Alveg í skýjunum Þá er búið að opna tilboð- in í þjónustu Flugleiða í Leifsstöð. Eitt tilboðanna var sannarlega í skýjunum enda frá fyrirtæki er nefnist Ský h.f., þ.e. frá Jósep Val- geirssyni o.tl. Ertilboð þetta 1000 til 1100 milljónum hærra en hin tilboðin sjö. fáninn dreginn upp um borð einn fána og það nánast í hálfa stöng. Fannst mönn- um að nær hefði verið að draga upp danska fánann eða jafnvel tóma bjórkassa. Guðmundur á Brekku Guðmundur Ingvarsson, yfirkokkur á Glóðinni, hef- ur nú llutt sig um set og tekið við starfi á Brekkunni. Jafn- framt hefur hann ásamt konu sinni tekið við rekstri Tomma-borgara á Fitjum. Hefur Ragnar Halldórs gestaleyfi? Samkvæmt túlkun lög- reglustjórans á Keflavíkur- flugvelli er hluti af Móa- hverfi í Njarðvík I lögsagnar- umdæmi hans en hinn lilut- inn i lögsagnarumdæmi lög- reglustjórans í Njarðvík. Kemur þetta fram annars staðar í blaðinu, þar sem hann ræðir um lögsagnar- umdæmi sitt. Samkvæmt strangri túlkun hljóta þeir íbúar, sem búa í efstu húsun- um í hverfi þessu, þar meðað þurfa gestaleyfi frá fiugvall- arlögreglunni, þurfi þeir að heimsækja konu sína í svefn- herbergi þeirra hjóna. Já, hún er ekki öll eins vitleysan. Fækkunin Jóa og Karli að kenna? íslenski fáninn í hálfa stöng Um fátt er meira talað í Grindavík þessa dagana en strand danska skipsins á dögunum. Sem dæmi um furðulegar athafnir yfir- manna skipsins benda menn á að um kl. 8.30 að morgni laugardagsins, þ.e. daginn eftir strandið, var íslenski Margir eru undrandi á ákvörðun ríkisvaldsins um að skera niður í mannahaldi lögreglunnar, eins og gerst hefur hér á Suðurnesjum. Það mætti eflaust skera nið- ur léttvægari þætti en lög- gæsluna. Svo virðist sem þetta hafi farið misjafnlega í lögreglumenn, því kona ein, sem hringdi á varðstofuna i Kefiavík fyrir skömmu til að Björgunarsveitin Ægir, Garði: AÐALFUNDUR verður haldinn í Slysavarnarhúsinu, sunnu- daginn 29. janúar kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Styrktarfélag aldraðra Suðurnesjum: AÐALFUNDUR verður haldinn laugardaginn 4. febrúar kl. 14 að Suðurgötu 12-14. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin spyrjast fyrir um færð á Reykjanesbraut, fékk ein- ungis heljarinnar ræðu um það hversu fáir væru í lög- regluliðinu og því væri eng- inn mannskapur til að svara til um svona mál. Lögreglu- maðurinn endaði svar sitt með því að segja við konuna að hún gæti bara hringt í þingmennina, Jóhann Ein- varðsson og Karl Steinar, og alveg eins spurt þá um færð- ina á Reykjanesbrautinni... Gott skap og þjónustulund Meira um lögregluna. í ófærðinni um síðustu helgi voru lögreglubílarnir mikið á ferðinni og aðstoðuðu öku- menn, sem voru búnir að festa sig í sköflunum. Þeir þurftu einnig að aðstoða vegna tíðra árekstra og smá óhappa hér og þar og höfðu góða skapið og þjónustu- lundina að leiðarljósi... Jón Gunnar bankastjóri? Misprentun og prentvillur koma oft skemmtilega út. Þegar Hallur Hallsson, fréttamaður RÚV, tók viðtal við Jón Gunnar Stefánsson, bæjarstjóra í Grindavík, vegna skipsstrandsins var hann titlaður bankastjóri í myndtexta. Nokkrum mín- útum síðar var það þó leið- rétt nema að RUV hafi verið að uppljóstra einhverju leyndarmáli. Er þriðji bank- inn kannski á leiðinni til Grindavíkur? Robbi skorinn upp „Já, það er búið að skera hann Robba upp og er verið að tjasla honum saman eftir að hann fékk eldingu í sig. Líður honum eftir atvikum og kemst vonandi til vinnu nú um helgina. Þurfti að fá björgunarsveit til að ná í hann eftir óhapp þetta.“ Svona hljóðað frásögn manns nokkurs í viðurvist molahöfundar. Eins og flesta er sjálfsagt farið að gruna er hér ekki um að ræða einhvern mann sem Róbert heitir, heldur róbótinn á Þorbirni sem sér um þjón- ustu fyrir fjarskipti og ,,píp- kerfi“ björgunarsveitanna á Suðurnesjum. Hafa gárung- arnir nefnt róbót þennan Robba og um næst síðustu helgi sló eldingu niðurí hann og því varð hann óvirkur í um vikutíma meðan viðgerð fór fram. Hermann hættur hjá Húsanesi Hermann Ragnarsson, formaður stjórnar DS, hefur látið af störfum framkvæmd- astjóra við verktakafyrirtæk- ið Húsanes s.f., a.m.k. að sinni. Við starfi hans hafa þeir Halldór bróðir hans og Margeir Þorgeirsson tekið í sameiningu. Ragnar Örn framlengir Ragnar Örn Pétursson veitingamaður hefur fram- lengt verktakasamningi sín- um við Flugleiði varðandi veitingareksturinn í Leifs- stöð. Framlengist samning- ur hans nú unt tvö ár. Olsen-búnaðurinn stóð sig vel Er skipverjarnir á Stafnesi unnu þrekvirkið við björgun skipverja af Ágústi Guð- Umsjón: Emil Páll mundssyni sannaði Olsen- sleppibúnaðurinn gildi sitt. Lét Oddur Sæmundsson, skipstjóri á Stafnesinu, hafa eftir sér að hefði hann ekki haft búnað þennan til að skjóta út gúmmíbátnum, hefði hann ekki viljað bjóða I þetta, þar sem þarna skiptu sekúndurnar máli. Sam-bruni Vegna umræðna um sam- einingu Brunabótafélags Is- lands ogSamvinnutrygginga var einn orðheppinn hér suður með sjó fijótur að finna nafn á hið nýja trygg- ingafélag. Þetta nafn erSam- bruni. Stolin fréttaskot Þeir fjölmiðlar sem greiða fyrir fréttaskot hafa í æ rík- ari mæli orðið varir við það að síðdegis á fimmtudögum er mikið hringt í þá og lesið upp úr Víkurfréttum. Hérer að sjálfsögðu verið að mis- nota hugmyndina um frétta- skot með því aðstelafréttum úr öðrum Ijölmiðli og fá greitt fyrir það. Er vitað til þess að verið er að leita lausna til að koma í veg fyrir slik fréttaskot. Þrælarí í Rockville Islenskt starfsfólk í Rock- ville-stöðinni á Miðnesheiði er ekki allt yfir sig hrifið þessa dagana. Sumu finnst að nánast sé gengið á því og það pískað út, því störf séu þar vanmönnuð. Hefur þvl jafnvel flogið í hug að kæra vinnuveitanda sinn fyrir þrælarí. Er vitað að málið er þegar komið til viðkomandi stéttarfélags og víðar. Orðhvatur: Um frægð og frama íslendings Menn liafa löngum sóst eft- ir frægð og frama og er sama hver á í hlut, frægðin hefur kitlað hégómagirnd flestra. Heimsfrægð er sú tegund frægðar sem menn hafa löng- um sett ofar annari frægð. En fáum íslendingum hefur hlotnast sá heiður að verða heimsfrægir. Suðumesjamönnum hel'ur stundum hlotnast sú upphefð að verða landsfrægir og þá oftast að endemum. En heimsfrægðin hefur látið á sér standa þessum útkjálkamönn- um til handa. Raunar má deila hart um það hvenær menn eru orðnir heimsfrægir. T.d. var Banda- ríkjamaður spurður að því á dögunum hvort hann þekkti Lindu Pétursdóttur. „Eg verð að viðurkenna að ég vissi ekki einu sinni að þið framleidduð bifreiðar“ svar- aði kaninn. Það þótti á árum áður jafn- gilda heimsfrægð fyrir íslend- ing ef hann var sæmilega þekktur í Kaupmannahöfn, og eins þótti Keflvíkingi merki- legt ef hann þekktist í henni Reykjavík. En nú ber nýrra við. Kefl- víkingur og þá um leið íslend- ingur, Jóhann nokkur Ein- varðsson, er orðinn frægur í Sovétríkjunum. Pravda, það víðlesna skyldulesefni þar eystra, varði heilli síðu, að því að manni skilst, undir það að segja frá því hversu vondur kall Jóhann Einvarðsson sé og var þetta allt saman haft eftir manni að nafni: Jú Kúsnesov (Jú þessi mun vera frændi sov- éska skákmeistarans Nei, sem var hérlendis árið 1972). Jú þessi mun hafa setið í Finn- landi er hann skrifaði „frétt- ina“, þannig að Jóhann okkar virðist vera frægur í Finn- landi. Okkur Suðurnesjamönnum þykir þessi frægð Jóhanns þingmanns Einvarðssonar harla skrítin því að margt fólk útí Garði veit ekkert hver maðurinn er, né heldur hvar hann vinnur. Þetta síðasta hlýtur þó að teljast meðmæli með Jóhanni því á meðan ekki allir vita hver hann er, getur hann held- ur ekki verið mjög svo vondur kall.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.