Víkurfréttir - 26.01.1989, Blaðsíða 20
Fimmtudagur 26. janúar 1989
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15 - Símar 14717, 15717.
TÉKKAREIKNINGUR
SPURÐU SPARISJÓÐINN
11 ' ' SUÐURNESJ . ■ \ »
20 þús. tonna aflaminnkun
Elding veldur
tjóni á sendi-
búnaðiI
Þorbirni
Tæpur 140.000 tonna aíli
barst á land hér á Suðurnesj-
um á síðasta ári samkvæmt
bráðabirgðatölum Fiskifélags
íslands. Miðað við endanlegar
tölur fyrir árið 1987 er hér um
20.000 tonna aflasamdrátt að
ræða.
Þrátt fyrir minnkandi afla
varð töluverð aukning í Kefla-
vík, eða sem nemur 7.476
tonnum. Samtals varð afli í
Keflavík 39.389 tonn rniðað
við 31.913 tonn 1987. Þar af
var loðna 7.313 tonn, þorskur
17.910 tonn og ýsa 2.449 tonn.
Grindavík stóð svo til í stað
með 68.322 tonn á síðasta ári
miðað við 67.351 tonn 1987.
Loðna var rúmlega helmingur
aflans eða 38.011 tonn, þorsk-
ur 11.742 tonn og ýsa 1.785
tonn.
1 Sandgerði varð aflasam-
dráttur upp á 11.544 tonn, en
þar komu á land 30.481 tonn á
síðasta ári en 42.025 tonn árið
1987. Munar hér mestu um
minnkun á loðnuafla sem fór
úr 20.590 tonnum í 8.835 tonn.
Aukning varð á þorskafla, en á
land komu 11.834 tonn og
2.470 tonn af ýsu.
Afli 1 Garðinum minnkaði
mikið á síðasta ári, því þá voru
einungis vigtuð 133 tonn þar
miðað við 12.699 tonn árið
1987. Þorskafli fór úr 6.633
tonnum í 114 og ýsa úr 957
tonnum í 11 tonn.
I Vogum bárust aðeins 84
tonn af þorski á land en 1987
var 3.684 tonna afla landað
þar. Þá var engu landað í
Höfnum samkvæmt upplýs-
ingum Fiskifélags Islands en í
Höfnum var 1040 tonnum
landað árið 1987.
Strákarnir sem fóru i gúmmíbátinn ásamt skipstjóra sínum eftir þessa frækilegu björgun í ólgusjó. F.v.
Oddur Sæmundsson, skipstjóri, Sigurður Kristinsson og Valdimar Birgisson. Ljósm.: hbb
Frækileg björgun
í ólgusjó
Flotbryggjan
í Sandgerði:
Fram-
kvæmdir
vel á veg
komnar
Framkvæmdir við llot-
bryggjuna í Sandgerði eru
komnar vel á veg og síðasta
mánudag var unnið við að
steypa landganginn að
bryggjunni. Megnið af
bryggjunni sjálfri er komið á
flot sunnan við nýja viðlegu-
kantinn í Sandgerði.
Að sögn starlsmanns á
hafnarvigtinni í Sandgerði,
þá tekur ekki langan tíma að
Ijúka verkinu, þegar veður
gefst til framkvæmda.
Flotbyrggjan í Sandgerði
Afrek skipverjanna á Staf-
nesi KE 130, 18 sjómilur
norður af Garðskaga á mið-
vikudag í síðustu viku. þykir
mjög frækilegt._ Þarna hafði
skipverji af Agústi Guð-
mundssyni úr Vogum fallið í
hafið er hann fór út með
netafærislykkju.
Þeir á Stafnesinu voru
nærstaddir og því kallaði
skipstjóri Ágústar í þá og
óskaði aðstoðar en mjög illa
gckk að ná manninum aftur
inn í bát sinn. Skutu þeir á
Stafnesinu þegar út gúmmí-
báti og í hann stukku skip-
verjarnir Sigurður Kristins-
son og Valdimar Birgisson
og það áður en báturinn var
blásinn upp.
Með hliðarskrúfu Staf-
nessins tókst skipstjóra þess,
Oddi Sæmundssyni, að ýta
gúmmíbátnum þangað sem
maðurinn var í sjónum.
Gekk vel að ná honum um
borð í gúmmíbátinn þrátt
fyrir að veður væri slæmt, 6
vindstig og ólgusjór.
Þrátt fyrir að maðurinn
hafi ekki verið nema nokkr-
ar mínútur í sjónum var hon-
urn orðið mjög kalt,enda lík-
amshiti kominn í 33,5°.
Hafði Oddur því samband
við lækni og síðan kom þyrla
Landhelgisgæslunnar og
flutti manninn á Borgarspít-
alann i Reykjavík, þar sem
hann náði sér fljótlega. Að
sögn Odds var þarna um sek-
únduspursmál að ræða.
TRÉ-X
TRÉ-X INNIHURÐIR
TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR IÐAVÖLLUM 7 KEFLAVÍK SÍMI 14700
Nokkrar skemmdir urðu á
sendibúnaði í eigu björgun-
arsveita á Suðurnesjum næst
síðasta laugardag er eldingu
laust niður í búnaðinn.
Það var sama dag, að
nota átti svokallaða frið-
þjófa eða píptæki, en þá kom
í ljós að sendibúnaðurinn
fyrir tækin, sem staðsettur er
á Þorbirni við Grindavík,
var óvirkur.
Þá var það í síðustu viku
að björgunarsveitirnar fóru
upp í Þorbjörn og kom þá í
Ijós að eldingu hafði lostið
niður í búnaðinn og gert
hann óvirkan. Varsendibún-
aðurinn tekinn niður og
varahlutir pantaðir.
Þegar blaðið hafði sam-
band við Árna Árnason, for-
mann BS-öryggis, síðasta
föstudag voru varahlutirnir
ekki komnir til landsins en
að hans sögn er tjónið á
sendibúnaðinum töluvert og
gæti orðið kostnaðarsamt.
Grindavík:
Eldur í
fólksbíl
Tilkynnt var um að eldur
væri laus í fólksbifreið, sem
stóð við Verbraut í Grinda-
vík, aðfaranótt síðasta
fimmtudags.
Það var kl. þrjú um nótt-
ina sem lögreglu barst til-
kynningin og þegar slökkvi-
lið og lögregla komu á stað-
inn var bifreiðin, sem er af
Peugeot 405 gerð, alelda.
Sendibifreið stóð við hliðina
á fólksbílnum og var lakkið á
honum farið að sviðna.
Tókst lögreglumönnunum
að fjarlægja hann áður en I
óefni var komið. Peugeotinn
er gjörónýtur eftir brunann.
Skipsstrand, elding, bilabruni,'
vélsleðaölvun og sjúkrabils-
fæðing. Það er alltaf santa
fjörið þarna í Grindavík . . .