Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.01.1989, Page 18

Víkurfréttir - 26.01.1989, Page 18
18 Fimmtudagur 26. janúar 1989 VlKUR juiUt Sagt eftir leikinn ... Kris Fadness, þjálfari UMFN: „Við gcrðum allt bcturcn Kcfl- víkingar. Fórum fyrst og frcmst með jiví hugarfari að lcika góðan körfubolta, cngu öðru. Það tókst og cg cr svo sannarlcga glaður. Keflvíkingar söknuðu Magga Guðfinns illilega i þessum leik. Við vorum vel undirbúnir undir þcssa leiki. Eg var hér yfir jólin, undirbjó okkur vel, við lögðurn allt í sölurnar, lékum vcl og upp- skárum cftir því.“ Teitur Örlygsson, UMFN: „Við mcgum ckki ofmetnast eflir þessa sigra cn stefnum engu að síður á að vcrja titilinn. Okkur gekk vel í þessum leik og gerðum það scm þjálfarinn lagði fyrir okkur." Hreiðar Hreiðarsson, fyrirliði UMFN: „Mikið cr gott að þcssir leikir eru búnir og mikið var gott að vinna. Við náðum að stöðva skot- mcnnina þeirra og hittum vel. Þcim gekk illa og gáfust hrein- lega upp í lokin." Axel Nikulásson, ÍBK: „Njarðvíkingar léku betur en við og áttu sigurinn skilið. En við erum ckki hættir og munum cin- bcita okkur að dcildinni. 'l'ak á okkur? Það má vcl vcra að þcir liafi citthvcrt sálfræðilegt tak á okkur." Lee Nober, þjálfari ÍBK: „Þctta var ckki okkar dagur, það gekk ckkert upp. Það þýðir ekki að gráta þetta. Við komum aftur og gcrum bctur. I littnin var mjög léleg og hafði úrslitaáhrif í þcssum leik.“ Léleg hittni Kefivíkingum gekk ótrúlega illa að finna körfuna, sérstak- lcga þcim Jóni Kr. og Guðjóni, en þcir tóku saman 48 skot og hittu aðeins úr 6 þeirra. Engin 3ja stiga karfa Ekkert 3ja stiga skot rataði rétta boðleið hjá Kefivíkingum. Þeir tóku 23 slík skot og liittu ekki úr neinu þeirra, sem er ótrújega dapur árangur. Ná Njarðvíkingar fram hefndum? Njarðvíkingar drógust gegn Haukum í 8 liða úrslitum bikar- keppninnar. Þcir hafa harma að hefna eftir að Haukarsigruðu þá í úrslitum úrvalsdeildarinnar í fyrra nokkuð óvænt. Óskar aftur með ÍBK Óskar Nikulásson, bróðir Ax- els, er kominn heim frá námi í Bandaríkjunum og lék sinn fyrsta leik í nokkurárfyrir liðið. Hann kom inná þegar2 mínútur voru til leikhlés og leysti Axel bróður sinn af og stóð sig ágæt- lega. Óþarfa hasar Það var ekki bara mikið fjör á meðal áhorfenda. Spennan var gífurleg hjá leikmönnum og þjálfurum liðanna. Alit sprakk þó í háaloft í seinni hálfieik, þeg- ar stympiyigar urðu með þeim Kristni Emarssyni og Nökkva Jónssyni, með þeim afleiðingum að þeir voru báðir útilokaðir frá leiknum. Kristinn Albertsson, annar dómara Ieiksins, sagði að honum lokiyum að þeir yrðu báðir kærðir fyrir þetta atvik en Nökkvi slæmdi m.a. hendi til Kristins. UMFN með aðra hönd á Bikarnum „Ég vona að Njarðvíkingar verði bikarmeistarar, því þeir verða ekki íslandsmeistarar," sagði Jón Kr. Gíslason, fyrirliði ÍBK, eftir háðuglega útreið gegn Njarðvíkingum í seinni bikarleik liðanna í Iþróttahúsi Keflavíkurá föstudagskvöldið. UMFN skoraði 86 stig gegn 61 og leiddu í leikhléi með 10 stigum, 47:37. Já, Njarðvíkingar eru þar með búnir með erfiðasta hjallann í bik- arvörninni og verða líklega ekki i vandræðum með að afgreiða Haukana í 8 liða úrslitum. Þeir voru í essinu sínu gegn Kefivíking- um, þrátt fyrir troðfullt hús þar sem mun fieiri voru á bandi heimamanna, sem þurfa enn að biða eftir titli, alla vega í bikarn- um. Það var aðeins í fyrri helmingi fyrri hálfleiks sem Keflvíkingar veittu Njarðvíkingum mótspyrnu og leiddu framan af, mest fyrir til- stilli Axels Nikulássonar, sem var nánast eini maðurinn í Kefiavíkur- liðinu sem sýndi sitt rétta andlit. Axel skoraði 9 af fyrstu 20 stigum IBK, sem var 2 stigum yfir þegar bikarmeistararnir stilltu „skot- fiaugar“ sínar með ótrúlegum ár- angri. Teitur og Friðrik Rúnars skoruðu hvor um sig tvær 3ja stiga körfur og Hreiðar og Helgi bættu báðir við einni körfu án þess að heimamenn næðu að svara fyrir sig. Var því staðan allt í einu orðin 34:20 fyrir Njarðvík. Kefivíkingar klóruðu í bakkann fyrir leikhlé en eftir það héldu Njarðvíkingar ,,skotárásinni“ áfram og má segja að fyrrnefndur kafii hafi gert út um leikinn. Kefi- víkingar náðu sér aldrei á strik aft- ur, með Axel í villuvandræðum á bekknum og þá Nonna Kr. og Guðjón í slíku óstuði að annað eins hefur ekki sést. Að undan- skildum slagsmálum milli leik- manna, þegar leikurinn stöðvaðist í 10 mínútur vegna þess, er ekki annað markvert af honum aðsegja en það að Njarðvíkingar gerðu allt sem þeir vildu á meðan andstæð- ingar þeirra gátu ekkert gert rétt. Stórsigur Njarðvíkinga varð stað- reynd, 86:61. Mjög sanngjarn sig- ur var í höfn og sumir segja að þeir séu komnir með aðra ef ekki báð- ar hendur á bikarinn. Stigahæstir: ÍBK: Axel 17, Sig. Ing. 14,Guð- jón 10 og Jón Kr. 8. UMFN: Teitur 19, Hreiðar 16, Friðrik Ragn. 16 og ísak 13. N0BER REKINN Stjórn Körfuknattlciksdcildar ÍBK ákvað á þriðjudagskvöldið að reka Lee Nober, þjálfara liðs- ins. Keflvíkingar munu hafa feng- ið sig fullsadda af samskiptaörð- uglcikum sínum við hann, scm þó fylltu mælinn þcgar hann setti Magnús Guðfinnsson út úr liðinu í tvo lciki fyrir að mæta ckki á æf- ingar. Samkvæmt árciðanlegum hcimildum Víkurfrétta voru lcik- menn ÍBK ósáttir við vinnubrögð Nobers, sem hélt uppi miklum og ströngum aga. Jón Kr. Gislason, fyrirliði ÍBK, liefur tckið við þjálfun liðsins en ekki hefur verið ákvcðið hver verður aðstoðarmaður hans. Nóg að gera í körfunni Grindvíkingar leika aftur gegn Haukum n.k. sunnudag í Grinda- vík en nú í Flugleiðadeildinni. A sama tíma leika Keflvíkingar við Val á Hlíðarcnda ogNjarðvíking- ar við KR í Hagaskóla. I kvöld, fimmtudag, verður ná- grannaslagur milli Grindvíkinga og Kcflvíkinga í 1. deild kvenna í íþróttahúsi Kcflavíkur kl. 20. Sandgerðingar hafa staðið sig vel í 1. dcild og leika við Snæfell í Sandgerði á laugardag kl. 14. A þriðjudag, 31. janúar, eigast erkifjcndurnir ÍBK og UMFN við í 3ja sinn í þessum mánuði í Njarðvík kl. 20. Strax að þeim lcik loknum eigast 1. flokkar lið- anna við. Er þetta amcrísk glima cða körfubolti? Hart barist i nágrannaslagnum, scm slóð undir nal'ni. Ljósm.: hbb. Pálmar afgreiddi Grindvíkinga Enn einu sinni reyndist Pálmar Sigurðsson Suður- nesjamönnum erfiður er Itann tók til sinna ráða á lokamínútunum í leik UMFG og Hauka í Hafnar- firði og kom sínum mönnum í 8 liða úrslitin. Grindvíking- ar virtust vera með leikinn í sínum höndum og voru yfir, 60:54, en þá komu 15 stig í röð frá Pálmari og félögum. Pálmar gulltryggði síðan sig- urinn með því að skora síð- ustu tvö stigin 4 sek. fyrir leikslok. Guðmundur Brag- ason var atkvæðamestur Grindvíkinga, skoraði 18 sfig, Steinþór gerði 14 og Ástþór 13. Einn af stuðningsmönn- um Grindvíkinga var ekki par sáttur við dómgæslu Bergs Steingrímssonar í leiknum við Hauka á fimmtudagskvöldið og sló hann í andlitið og kastaði síðan í hann glerflösku. Eiga Grindvíkingar von á kæru vegna þessa alvarlega máls. Sex Suðurnesjamenn I landsliðinu í pílukasti Sex Suðurnesjamenn eru í landsliði íslands í pílukasti, sem heldur utan á sunnudag til keppni við Svía og Dani. Þetta eru þeir Pétur og Guðjón Haukssynir, Kristinn Kristins- son, Óskar Þórmundsson, Ægir Ágústsson og Gunnar Schram. Auk þeirra eru í lið- inu þeir Tómas Bartlett og Emil Þ. Emilsson úr Reykja- vík. Liðsstjóri og fararstjóri er Friðrik Diego. Landsliðið lék æfingaleik við pressulið um sl. helgi en í pressunni voru fimm Suður- nesjamenn, þeir Óskar Hall- dórsson, sem upphaflega var valinn i landsliðið en komst ekki með í ferðina, Magnús Daðason, Ævar Finnsson, Einar Heiðarsson og Magnús Kristinsson auk þriggja ann- arra. Frá því er skemmst að segja að landsliðið vann yfir- burðasigur á pressuliðinu, 7:1 í einmenningi, 4:0 í tvímenningi og 2:0 í 4ra manna sveita- keppni. Kepptu liðin í félags- heimili lögreglunnar í Kefla- vík. Landslið Islands í pílukasti. Aftari röð f.v.: Emil Þór, Gunnar, Ægir, Guðjón, Tómas og Friðrik fararstjóri. Frcmri röð f.v.: Pétur, Kristinn og Oskar.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.