Víkurfréttir - 02.03.1989, Síða 1
mun
SBK
kaupir
Steindór
í framhaldi af athugun
Sérleyfisbifreiða Keflavíkur
á hagkvæmni sameiningar
við hópferðabifreiðarekstur
Steindórs Sigurðssonar var
Steindóri gert tilboð í rekst-
ur hans á mánudag. Hefur
Steindór nú tekið tilboði
þessu með smávægilegum
breytingum.
Samkvæmt heimildum
blaðsins er talið nokkuð ör-
uggt að þar með verði kaup
þessi að veruleika en bæjar-
stjórn Keflavíkur mun þó
eiga síðasta orðið í þeim efn-
um á fundi sínum á þriðju-
dag.
Enn hefur þó ekki verið
fastákveðið hvenær afhend-
ing rekstursins fer fram en
þau mál munu þó skýrast á
næstu dögum. Auk hópferð-
aaksturs hefur Steindór m.a.
séð um skólaakstur, akstur
með vinnuhópa, strætis-
vagnaakstur milli hverfa í
Njarðvík og til Keflavíkur og
sérleyfisferðir milli Keflavík-
ur og Grindavíkur.
áfengi út af vellinum. Mun
smygl þetta hafa staðið yfir í
nokkra mánuði.
Hafa Bandaríkjamennirn-
ir játað að hafa selt íslend-
ingunum áfengið. Er málið
þó enn í rannsókn en Þorgeir
taldi þó ekki stætt á því að
/hafa mennina í gæsluvarð-
haldi.
Hótel Keflavík
tekur Kristínu
á leigu
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum standa nú yfir -
samningar ntilli Hótels
Kristínu í Njarðvík og Hót-
els Keflavík um að síðar-
nefndi aðilinn taki hitt hótel-
ið á leigu. Bæði hótelin mun þó
verða rekin áfram undir nú-
verandi nöfnurn.
Með þessum leigusamn-
ingi telur Hótel Keflavík sig
hafa yfír jafn miklu hótel-
plássi að ráða og Flug Hótel.
Eftir að þessi leigusamn-
ingur hefur verið gerður og
Steindór selt bíláflota sinn
og reksturinn til SBK er að-
eins eftir húspláss þar sem
verkstæði Steindórs er nú
með til ráðstöfunar af eigum
Steindórs að Holtsgötu 49 í
Njarðvík.
9. tbl. 10. árg.
Fimmtudagur 2. mars 1989
Fegurðardrottning Suðurnesja krýnd á laugardag
Fegurðaidrottninf’ Suðurnesja 1989 verður valin í Glaumbergi n.k. laugardagskvöld. Stúlkurnar hafa verið ístöðugum tejingum frá ára-
mótum og er nú komið að stóru stundinni. Stúlkurnar níu, sem þátt taka, heita (efri röð f. v.J: Guðmunda Sigurðardóttir, Ragnheiður
Guðný Ragnarsdóttir, Þórdís Árný Sigurjónsdóttir, Linda Olafsdóttir og Valdís Asta Aðalsteinsdóttir. Meðri röð frá vinstri: Súsanna
Fróðadóttir, Helga Jóhannsdóttir, Elfa Guttormsdóttir og Una Kristín Stefánsdóttir. Ljósm.:pket.
9000 tonn af loðnu
Nú cr búið að landa rúm-
lega 9000 tonnum af loðnu
hér á Suðurnesjum síðustu
tvær vikur, þar af um 6000
tonnunt í vikunni sem leið.
í Keflavíkurhöfn landaði
Dagfari einu sinni 440 tonn-
um. Sjávarborg landaði ljór-
um sinnum í Sandgerði í síð-
ustu viku, samtals 2620
tonnum og Dagfari þrisvar,
970 tonnum samtals. I
Grindavík iandaði Hábergið
tvisvar, samtals 776tonnum,
Sunnuberg einu sinni, 432
tonnum, Keflvíkingur tvisv-
ar, samtals 650 tonnum og
Vaðlaberg 170 tonnunt úr
einni ferð.
Loðnan sent borist hefur á
land hefur verið mjög smá,
sem hefur verið vandamál.
Frystingu er nú víðast hvar
Iokið, en nú er verið að und-
irbúa fyrirtæki til hrogna-
töku en hún geturstaðið yfir
í um hálfan ntánuð.
Smygl af Vellinum:
Á 2. hundrað
flöskur
Fjórir íslendingar og þrír
bandarískir hermenn hafa að
undanförnu verið í ströngum
yfirheyrslum hjá lögreglunni
á Keflavíkurflugvelli. Að
sögn Þorgcirs Þorsteinsson-
ar, lögreglustjóra, hafa
bandaríkjamennirnir játað
að hópurinn hafi smyglað á
annað hundrað flöskum af
Hitaveituvatn til íþróttamannvirkja:
70%
lækkun
„Mikið hagsmunamál fyrir okkur“,
segir Hafsteinn Guðmundsson
Stjórn Hitaveitu Suður-
nesja hefur samþykkt að
lækka útsöluverð á heitu
vatni til sundlauga og
íþróttamannvirkja niður í
30% af útsöluverði, eða úr 42
kr. tonnið í 12,60 kr. Er
gjaldtakan þá svipuð og hjá
Hitaveitu Reykjavíkur.
Að sögn Hafsteins Guð-
mundssonar, formanns
íþróttaráðs Keflavíkur, nota
íþróttainannvirkin í Kefla-
vík 150 tonn af heitu vatni á
sólarhring, þar af sundlaug-
in 100 tonn. Eftir að nýja
laugin verður komin í gagnið
verður notkunin 250-300
tonn á sólarhring.
Miðað við þetta er lækk-
unin þegar l'A milljón króna
á ári, eins og málin eru í
Keflavík í dag, en sparnaður-
inn mun nema um 2/i millj-
ón þegar sundmiðstöðin
verður komin í gagnið.
„Þetta er því mikið hags-
munamál fyrir okkur. Er
íþróttaráð því mjög þakklátt
stjórn hitaveitunnar fyrir
þessar breytingar," sagði
Hafsteinn.