Víkurfréttir - 02.03.1989, Side 9
mndiuM*
Breyttir möguleikar varðandi Keflavíkurflugvöll:
Aukið kæli-
rými vantar
Fimmtudagur 2. mars 1989 9
Mikill fjöldi frummælcnda voru á fundinum, scm Ijallaði um möjjulcika til
atvinnuuppbyggjngar í nágrcnni Keflavíkurflugvallar. Scst licr cinn
frummælcnda, Ólafur Davíðsson framkvæmdastjóri l'élags íslcnskra iðn-
rckcnda, lcngst t.v. Aðrir á myndinni cru .lón l'. Unndórsson framkvæmda-
stjóri Atvinnuþróunarfclags Suðurncsja, cn liann var ráðstcfnustjóri, og
Guðjón Guðmundsson, Iramkvæmdastjóri SSS.
Það eru ótal möguleikar til
varðandi nýtingu Keílavíkur-
flugvallar en aukið kælirými
vantar, svo viðunandi verði.
Þetta kom m.a. fram á fjöl-
mennri ráðstefnu Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum
og Atvinnuþróunarfélags Suð-
urnesja, sem haldin var á Flug
Hóteli um síðustu helgi.
Margt áhugavert kom fram
á fundinum og var að heyra á
fundarmönnum að þeir væru
ánægðir með niðurstöðuna að
honum loknum. Árni S. Árna-
son flutti samantekt um fund-
inn í dagskrárlok og kom þar
m.a. fram að styst væri að fara
flugleiðina frá Islandi til Asíu,
frá Evrópu, en í Asíulöndum
er mikil fiskneysla og aukið
laxeldi hér á landi gæti skapað
okkur mikla möguleika þar.
Reyndar kom fram á fundin-
um að Islendingar eiga kost á
að flytja um 60 tonn af frakt
með Flying Tigers í hverri ferð
en hingað til hafa einungis ver-
ið flutt út um 10 tonn í ferð.
Okkar hefðbundnu fiskteg-
undir ganga ekki eins vel í
Asíuþjóðirnar eins og á verður
kosið, heldur hafa lítið nýttar
tegundir mælst vel fyrir og þar
er möguleiki á að fjölga at-
vinnutækifærum hér. Þá eru
tilbúnir réttir einnig vinsælir
hjá Asíuþjóðum.
Nokkur skortur er á kæli-
rými við Keflavíkurflugvöll og
er orðið nauðsynlegt að byggja
kæligeymslur svo aðstaða fisk-
útflytjenda verði viðunandi,
þannig að alltaf sé hægt að
halda þeim fiski, sem flutturer
út, nægilega ferskum og að
hann þurfi ekki að standa úti á
hlaði.
Ráðstcfnan var vcl sótt af áhugafólki um atvinnumál. Ljósmyndir: hbb.
Filmumóttaka
í FRÍSTUND
...JÁ OG ÞÚ FÆRÐ OKEYPIS
LITFILMU í KAUPBÆTI MEÐ
HVERRI FRAMKÖLLUN... ^
FERMINGARGJAFIR
í MIKLU ÚRVALI
MYNDAVÉLAR
OLYMPUS
KODAK OG RICOH
Ljósmyndavörur;
þrífætur, flöss o.fl.
35 mm filmur.
fiístund
Hólmgaróur 2, 230 Keflavík, Sími 15005
Holtsgata 26, 260 Njarðvík, Sími 12002