Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.03.1989, Page 12

Víkurfréttir - 02.03.1989, Page 12
víkuh 12 Fimmtudagur 2. mars 1989 HJÓLHÝSI ’89 módelið af 16 feta Monza er komið. Eigum einnig eitt ’88 árgerð af 28 feta hjólhýsi (viðarklætt). Húsin eru einnig fáanleg á Spáni upp komin á lóð. H. Hafsteinsson Skútuhrauni 7 Sími 91-651033 og 985-21895 ATVINNA Starfskraftur óskast i Þvottahöllina. Hálfs- dagsstarf kemur til greina. Upplýsingar á staðnum, Grófinni 17 a. L v.J ik Þvottahöllin M x . ,, t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát litla drengsins okkar og bróður, ÁSTÞÓRS HELGASONAR, liirkitcig 37, Kcriavik. F.h. aðstandenda Astriður Sigþórsdóttir Helgi Sveinbjörnsson Sólveig Harpa Helgadóttir Skúli Hclgason Greiðslukortaþjónusta VÍKURlRÚniR Keflavík: Sambýli fyrir geðsjúka Á fundi bæjarstjórnar Keflavíkur í síðustu viku lögðu þeir Garðar Oddgeirs- son og Ingólfur Falsson fram eftirfarandi tillögu: „Bæjarstjórn Keflavíkur samþykkir að koma upp „sambýli" (eða áfangastað) fyrir geðsjúka. Skal það gert svo fljótt sem nokkur kostur er.“ í greinargerð með tillögu þeirra féldga segir að ntikil þörf sé á að koma upp að- stöðu fyrir geðsjúka í Kefla- vík. Til að bvrja með er mest aðkallandi að koma upp dagvistun fyrir þessa sjúkl- inga. I dag er enginn staður í Keflavík, þar sent þessir sjúklingargeta dvalist, nema í heimahúsunv. Mjög erfitt sc að fá inni á sjúkrahúsum eða öðrum stofnunum, nenva í skamman tíma hverju sinni. Fékk tillaga þeirra Garð- ars og Ingólfs jákvæða um- fjöllun hjá bæjarfulltrúum, sem töldu nauðsynlegt að skoða hana vel. Var tillagan borin upp og samþykkt að vísa henni til umsagnar fél- agsmálaráðs. Hraunsvík eða Baldvinsson Uppi í slipp í Njarðvík hef- ur síðan snemma í haust staðið 56 tonna eikarbátur sem ber nafnið Hraunsvík GK 68 og er frá Grindavík, að ætla mætti. Bátur þessi var um svipað leiti og hann kom í slippinn seldur til Ak- ureyrar, þar sem Samherji h.f. ætlaði sér að nýta kvóta hans fyrir togara sína. Síðar kom að því að út- gerðin í Grindavík, sem áður átti bátinn, keypti sér annan bát sem átti að bera Hrauns- víkurnafnið og númerið GK 68. Samkvæmt opinberum skrám fékk sá bátur viðkom- andi nafn og númer fyrir jól- in og þá var sá eldri skráður undir nafninu Baldvinsson EA 410 í opinberum skrám. En þó nú sé komið fram í mars stendurgamli báturinn enn uppi í Njarðvíkurslipp með sama gamla nafni og númeri. Hraunsvík GK 68 í Njarðvíkurslipp í dag. Ljósm.: epj. jutUi Keflavík: Rekstur leiktækja- salar leyfður Friðrik Srnári Friðriksson hefur óskað eftir því að fá leyfi fyrir uppsetningu leik- tækjasalar að Hafnargötu 26 í Keflavík. Var málið tekið fvrir á fundi bæjarstjórnar Keilavíkur í síðustu viku og cftirfarandi samþykkt: „Bæjarstjórn Kellavíkur samþykkir að uppfylltum settum reglum að F. Smára Friðrikssyni verði veitt leyfi til reksturs leiktækjasalar að Hafnargötu 26, Keflavík." Var það Anna Margrét Guðmundsdóttir sem bar upp þessa tillögu og var hún samþykkt samhljóða. Alþjóðlegur bænadagur kvenna Hinn alþjóðlegi bænadag- ur kvenna verður í Y-Njarð- víkurkirkju föstudaginn 3. mars 1989 kl. 20.30. I mörg undanfarin ár hal'a konur á Suðurnesjum sam- einast í bæn fyrsta föstudag í marsmánuði. Á dagskrá verður m.a. söngur, upplest- ur, hugvekja og ýmis tónlist- aratriði. Þessi dagur hefur í mörg ár sameinað konur um heint allan. Sú er von þeirra er að þessum bænadegi standa hér á Suðurnesjum að svo megi eins verða'nú. Undirbúningsnefndin hvetur allar konur til að vera með og eiga góða stund sam- an í Y-Njarðvíkurkirkju um- rætt föstudagskvöld. SJOVA ALMENNAR Nýtt félag með sterkar rætur UMBOÐSMAÐUR: GEIR REYNISSON HAFNARGÖTU 54 KEFLAVÍK SÍMI 13099

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.