Víkurfréttir - 02.03.1989, Page 16
16 Fimmtudagur 2. mars 1989
ATVINNA
Starfsfólk vantar í almenna fisk-
vinnu.
JLÁJ
—-—?—; ÍSLENSKUR GÆÐAFISKUR HF
Brekkustíg 40, sími 14103.
Bakaríið í Grindavík:
Bakaranemi
Bakaríið í Grindavík óskar eftir að ráða
duglegan og reglusaman nema í bakaraiðn.
Bílpróf æskilegt. Uppl. í síma 68554 og
68130.
NUDDSTOFAN
SÓLEY
Hef opnað nuddstofu að
Hafnargötu 37a, II. hæð,
með gula sólbekkinn frá Sól-
baðsstofunni Sóley. Slökunar-
nudd m.a. gegn vöðvabólgu.
Sími 11616 frá 18-22 mánud. til
föstud. og frá 14-22 sunnudaga.
vw \ \ \ i / / / /,
.NUDDSTOFAN
llafnargötu 37a, II. hæð - Keflavík
Vilt þú eitthvað
nýtt?
N
Whg&í&'
TANGÓ
TJARNARGÖTU 3
TANGÓ KEFLAVÍK TANGÓ
LAUGAVEGI KRINGLUNNI
Halldór Rafjnarsson, framkvæmdastjóri I lúsaness, við flugvallargirðinguna, þar sem byggingaverktakar al'Suður-
nesjunt fá ekki að hjóða í framkvæmdir né vinna fyrir Í.A.V. Fyrir innan má sjá vinnuskúra I.A.V. oggluggaefni.en
nú standa t.d. yl'ir byggingar á rúmlega 200 blokkaríbúðum fyrir Varnarliðið. Ljósm.: hbb.
\>iKur<
jUM%
Næg verkefni í byggingaiðnaði á Keflavíkurflugvelli:
„Fáum hvergi að
koma nálægt"
- segir Halldór Ragnarsson hjá Húsanesi
Nú í vetur hefur verið unnið að því við Bolungarvík að reisa rat-
sjárstöð og er það sama uppi á teningnum á Stokksnesi við Horna-
fjörð. Á þessum stöðum fá heimamenn að bjóða í verkið og byggja.
Á sama tíma er verið að byggja ratsjárstöð á Miðnesheiði og miklar
framkvæmdir eru í Helguvík, en heimamenn eiga þess ekki kost að
bjóða í verkið.
Að vonum eru heimamenn óánægðir með þessa framvindu mála
og tókum við tali nýverið Halldór Ragnarsson, framkvæmdastjóra
Húsaness, en það fyrirtæki hefur orðið að leita út fyrir svæðið eftir
verkefnum.
í síðustu viku voru síðan um
60 tonn af tækjum fyrirtækis-
ins sett í skip í Njarðvíkurhöfn
og flutt austur á Höfn í Horna-
firði, þar sem fyrirtækið mun
reisa fjórtán íbúðirfyrirbæjar-
félagið,- Hvert er álit Halldórs
Ragnarssonar hjá Húsanesi?
„Okkar álit er að íslenskir Að-
alverktakar eigi að reyna að
hafa fastan starfsmannafjölda
í hverri iðngrein og ef það
kemur þensla hjá þeim, þegar
mikið er að gera, þá finnst
okkur að Í.A.V. eigi að leita
til fyrirtækjanna á Suðurnesj-
um til þess að brúa bilið, sem
myndast í þenslunni.
Eins og ástandið er í dag, þá
hörmum við mjög að þurfa að
búa við þessi skilyrði, þar sem
Keflavík er að verða svefnbær
fyrir Keflavíkurflugvöll, þar
sem eru næg verkefni í bygg-
ingariðnaði en við fáum hvergi
að koma nærri.
Þungamiðjan og mergur
málsins er sá að Islenskir aðal-
verktakar hafa lausráðið til sín
menn yfir sumartímann, þeg-
ar mestar annir eru, og síðan
sagt þeim upp fyrirvaralaust
og þá erum við orðnir nokkurs
konar ruslakista fyrir þá.
Sem dæmi um það hvernig
Í.A.V. verndar hagsmuni sína,
þá veit ég að búið var að lofa
Suðurnesjaverktökum að full-
gera tvö fjölbýlishús að innan
en þegar á reyndi, þá sendu
Í.A.V. frá sér bréf þarsem þeir
töldu að af tæknilegum ástæð-
um gætu þeir ekki séð af því
verkefni og drógu þeir verkið
til baka.“
-Þetta verkefni sem þið eruð
komnir í á Höfn í Hornafirði,
er það þá neyðarúrræði meðan
ekkert breytist hér á Suður-
nesjum?
„Á síðastliðnu ári gátum við
útvegað 35 manns atvinnu í
þessari iðngrein, en samdrátt-
urinn hefur orðið mikill fyrir
neðan girðingu og nú erum við
einungis með 16 manns, þrátt
fyrir þetta verkefni á Höfn.
Þetta er að vísu ekki í fyrsta
skipti sem við þurfum að leita
út fyrir svæðið eftir verkefn-
um, því í hitteðfyrra tókum við
að okkur að reisa seiðaeldis-
stöð austur í Grímsnesi. Það
má geta þess að Keflavíkurbær
verður að sjá á eftir aðstöðu-
gjöldum hvað þessi verk varð-
ar, því þau gjöld greiðast í
þeim byggðarlögum, þar sem
verkið er unnið.“
-Er ekki kostnaðarsamt að
þurfa yfir hálft landið til þess
að fá verkefni?
„Kostnaðurinn við það að
koina tækjunum austurogaft-
ur heim er um 800 þúsund
krónur og þá er allt uppihald
og ferðir starfsmanna eftir.
Það gengur ekki upp að
verktakar af Suðurnesjum
þurfi að fara yfír hálft landið
til þess að sækja verkefni og
því hvet ég alla ráðamenn bæj-
arins og þá sem áhrif hafa á at-
vinnulífið að leggja þessu máli
lið, því aðgerða er þörf,“ sagði
Halldór Ragnarsson að lok-
um.
Tæki og efni í cigu Húsaness var selt um borð í strandfcrðaskipið Fsju og
llutt til Hafnar i llornatiröi í síðustu viku. Ljósm.: epj.
Opið á laugardögum kl. 14 - 16.
Aörir timar eftir samkomulagi.
Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769.