Víkurfréttir - 19.04.1989, Side 7
vii'Aiinfutm
Miðvikudagur 19. apríl 1989
Bílastæðum við
Leifsstöð fjölgað
Þeir annmarkar, sem fram
komu á síðasta vetri vegna
dragsúgs og kulda í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar, hafa
minnkað við lagfæringar á
hitakerfi. Nú er unnið að
lagningu varanlegrar hita-
lagnar frá Fitjum að Leifs-
stöð er leysi af hólmi bráða-
birgðalögn sem verið hefur.
Þá er þess vænst að í sum-
ar verði bætt úr bílastæðis-
vanda sem orsakaði mikil
vandkvæði við stöðina á síð-
asta sumri.
10 ára vígsluafmæli Ytri-Njarðvíkurkirkju:
Hátíðarmessa og
kaffisamsæti
Byggöasafn Suöurnesja
Opið á laugardögum kl. 14 - 16.
Aðrir timar eftir samkomulagi.
Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769.
Miklar framkvæmdir hafa verið í gangi varðandi kirkjuna og umhverfi hennar. Mun hún
fegursta á afmælisdaginn. Ljósm.: hbb
Á morgun, sumardaginn
fyrsta, verður haldið upp á það
í Ytri-Njarðvíkurkirkju að tíu
ár eru liðin frá því að séra Sig-
urbjörn Einarsson biskup
vígði kirkjuna, en það var á
sumardaginn fyrsta 1979.
I tilefni þessara tímamóta
verður afmælishátíð í Njarð-
vík, sem hefst með messu kl.
14, en kirkjukórinn hefur æft
sérstaklega fyrir messuna. Að
guðsþjónustu lokinni er öllum
kirkjugestum boðið til kaffi-
samsætis í félagsheimilinu
Stapa.
Þorvaldur Karl Helgason,
sóknarprestur í Njarðvík,
sagði í samtali við Víkurfréttir
að ýmislegt hefði verið gert á
þessum tíu árum sem liðin
væru frá vígslunni og margar
gjafir borist. Þegar kirkjan var
vígð var hún ekki fullkláruð,
eins og títt er um kirkjur hér á
landi. Þakið var óklárað, en nú
hefur það verið klætt plastdúk,
sem reynst hefur vel. Síðasta
sumar var öll aðkoma að kirkj-
unni stórbætt, lóð lagfærð,
steyptar gangstéttar, plantað
trjám og sett upp ljós með
stéttum.
Inni í kirkjunni hefureinnig
verið lokið við miklar fram-
kvæmdir, s.s. frágang á fund-
arherbergi, safnaðarsal, lokið
við skrifstofu sóknarprests og
eldhús klárað. I kjallara kirkj-
unnar er fönduraðstaða,
geymsla og aðstaða fyrir
kirkjukórinn.
Ytri-Njarðvíkurkirkju hafa
borist margar oggóðargjafirá
þessum tíu árum frá vígslunni.
Kvenfélagið íNjarðvík gaf árið
1984 lítið pípuorgel og Systra-
félagið hefur gefið hverja stór-
gjöfina á fætur annarri, s.s.
steindan glugga yfir altari, eft-
ir Leif Breiðfjörð, nýtt altari,
skírnarfont, búnað á altari og
ýmislegt fleira.
Kirkjan er vel búin tækjum
til fræðslustarfs og hefur yfir
að ráða tölvu, ljósritara,
myndvarpa og skólatöflu.
Þorvaldur Karl sagði að öfl-
ugt safnaðarstarf væri í kirkj-
unni og fljótlega hafi verið
byrjað á því að hafa samveru-
stundir fyrir aldraða. Einnig er
föndur fyrir aldraða í sam-
starfi við Styrktarfélag aldr-
aðra og þá er barnastarf í
kirkjunni yfir vetrarmánuð-
ina.
-Hvað er framundan hjá
kirkjunni?
„Framundan er að ljúka
byggingu kirkjunnar eftir
teikningum arkitekta hennar,
Ormars Þórs Guðmundssonar
og Örnólfs Hall. Lokið verður
við að flísaleggja gólf en búið
er að panta flísar á gólfið, sem
lagðar verða í ágúst eða sept-
ember. Þáverðureinnig komið
fyrir loftræstingu í kirkjunni
og loft í anddyri fullgert.
Dýrasta verkefnið er samt
eftir, sem er nýtt og stærra
pípuorgel. Nokkuð erfitt hef-
ur verið að finna því stað svo
öllum líki, en það er nú í höfn.
Teikningar og tillögur liggja
frammi að 16 radda orgeli,
sem mun koma til með að
kosta 1,2 milljónir danskra
króna, eða 8-9 milljónir ís-
lenskar. Það er söfnuðinum
einum ofraun að kaupa slíkt
hljóðfæri; því er stefnt að því
að láta til skarar skríða innan
tíðar, en fyrst verður lokið við
gólf kirkjunnar,“ sagði Þor-
Baðinnréttingar - allar stærðir
STÍLHREIN
TÍGULEG
Setur
gæðin
valdur Karl Helgason, sóknar-
prestur í Njarðvík, að lokum.
ÞARFTU AÐ LOSNA VIÐ....?
• vöðvabólgu
• appelsínuhúð
• sentimetra \ Æfingastofa
beggu
lllllllllllllllllll
6'2 1 63
.-•* I
Hafnargötu 25
Keflavík
Sími 15433
■ ini. ..UW
----70/----------------
// VIÐ ERUM
// í TAKT VIÐ
// TÍMANN....
°/ Prentum á tölvupappír.
/ Öll almenn prentþjónusta.
Reynið viðskiptin.
Sjáirðu aðra
betri þá
kaupirðu hanal
GRÁGÁS HF.
Vallargotu 14 - 230 Keflavik /q
Simar 11760, 14760