Víkurfréttir - 19.04.1989, Qupperneq 9
VÆilLCÍmu*
Reiðhjölin tekin fram
Þá er sumarið loks að
ganga í garð, öllum til mikill-
ar ánægju. Þessi unga
blómarós, Berglind Guð-
laugsdóttir, tók fram reið-
hjólið sitt í sólskininu nú ný-
verið og þurrkaði af því
óhreinindin eftir langan og
erfiðan vetur.
Það að taka fram reiðhjól-
in minnirokkurbílstjóranaá
það að framundan er mjög
hættulegur tími í umferðinni,
hraðinn eykst og allir ungu
hjólreiðamennirnir fara á
stjá, sumir í fyrsta skipti á
nýju hjólunum sínum. í allri
gleðinni yfir því að geta loks-
ins hjólaði í góða veðrinu, þá
vill umferðin oft gleymast.
Ökumenn! Verum því vak-
andi í umferðinni og förum að
öliu með gát.
Kaupleiguíbúðir í Sandgerði:
Vilja auðvelda fólki að
koma þaki yfir höfuðið
Miðvikudagur 19. apríl 1989 9
Munið
Getraunanumer
ÍBK: 230
Nefnd sú er sér um bygg-
ingu almennra kaupleigu-
íbúða í Miðneshreppi aug-
lýsti í síðustu viku eftir til-
boðum í að fullgera einnar
hæðar einbýlishús, ásamt
bílskúr við Vallargötu 3 í
Sandgerði.
Stefán Jón Bjarnason,
sveitarstjóri í Miðneshreppi,
sagði í samtali við blaðið að
sveitarfélagið væri nú að
vinna að því að byggja íbúðir
á auðum lóðum í byggðar-
laginu og ein leið til þess væri
að reisa kaupleiguíbúðir.
Sagði Stefán að um leið og
leyfi fást fyrir slíkum bygg-
ingum yrði reynt að byggja á
auðum lóðum.
Stefán sagði að í byggðar-
laginu væri nokkuð um hús-
grunna, þar sem engar fram-
kvæmdir hefðu verið í allt að
fimm ár. Því væri það stefna
sveitarfélagsins að auðvelda
fólki að koma þaki yfir höf-
uðið með því að fá heimildir
til byggingar kaupleigu-
íbúða.
Orðsending til
greinahöfunda
Af marggefnu tilefni viljum við ítreka þær 'reglur er
gilda um aðsendar greinar til birtingar í Víkurfréttum.
Greinin fjalli um Suðurnesjamálefni og sé ekki send
öðrum fjölmiðli til birtingar. Lengd greinarinnar sé helst
ekki lengri en ein og hálf síða (A-4) ogsé vélrituð með línu-
bili l1/:. Sé hún handskrifuð verður skriftin að vera vel
læsileg.
Skilafrestur er í síðasta lagi föstudag fyrir birtingu. Ber-
ist greinin eftir það áskiljum við okkur rétt til að fresta
birtingu og/eða stytta greinina.
Eigi greinar að birtast undir dulnefni, verður hið rétta
nafn höfundar, heimilisfang og kennitala að fylgja með, en
með þær upplýsingar verður farið sem trúnaðarmál, sé
þess óskað.
mun
fUttfo
FÖGNUM SUMRI
A GLOÐINNI
Barinn opinn til kl.
03 í kvöld, síðasta
vetrardag. Kveðjum
vetur í góðri stemn-
ingu með píanóleik
og huggulegheitum.
Fögnum svo sumri
með Eyjólfi Kristjánssyni, Bítlavini, á fimmtu-
dagskvöld, sumardaginn fyrsta. Eyfi kemur og leikur
öll sín bestu lög og fleiri til. Opið kl. 22-01.
Um helgina verður opið föstudags- og laugardagskvöld
til kl. 03. Góðar veitingar í neðri sal.
Gleðilegt
sumar!