Víkurfréttir - 19.04.1989, Blaðsíða 10
VÍKUR
10
Miðvikudagur 19. apríl 1989
jUttU
Féll fram af
klettum
Ölvaður maður gckk fram
af klettabrúninni bak við
Boggabar í Keflavík í síðustu
viku. Hrapaði hann niður
bjargið en hafnaði á syllu og
fór því ekki alla leið niður.
Var lögregla og sjúkrabíll
kallað á staðinn og hinn slas-
aði fluttur á sjúkrahús, en
fékk að fara heim að skoðun
lokinni.
Auglýsing um
svæðisskipulag
Suðurnesja
1987 - 2007
Samkvæmt 17. gr. skipulagslaga nr.
19/1964 er hér með lýst eftir athugasemd-
um við tillögu að svæðisskipulagi Suður-
nesja 1987-2007.
Skipulagstillaga þessi nær yfir núverandi
og fyrirhugaða byggð á Suðurnesjum og
aðra starfsemi á svæðinu á skipulagstíma-
bilinu.
Tillaga að svæðisskipulagi Suðurnesja
1987-2007 ásamt greinargerð liggur frammi
almenningi til sýnis frá 21. apríl til 5. júní
nk. á venjulegum skrifstofutíma. Sýningar-
staðir eru:
1. Grindavík: Bæjarskrifstofur, Víkur-
braut 42.
2. Hafnir: Hreppsskrifstofur, Djúpa-
vogi 1.
3. Sandgerði: Hreppsskrifstofurnar,
Tjarnargötu 4.
4. Garður: Hreppsskrifstofurnar, Mel-
braut 3.
5. Keflavík: Bæjarskrifstofur, Hafnar-
götu 12.
6. Njarðvík: Bæjarskrifstofur, Fitjum,
Ytri-Njarðvík.
7. Keflavíkurflugvöllur: Skrifstofa flug-
vallarstjóra, Flugstöð Leifs Eiríkss.
8. Vogar: Hreppsskrifstofur, Iðndalur
2.
9. Samband sveitarfélaga á Suðurnesj-
um, Vesturbraut 10A, Keílavík.
Athugasemdum við skipulagstillöguna skal
skila á framangreindum stöðum fyrir 20.
júní 1989 og skulu þær vera skriflegar.
Þeipsem ekki gera athugasemdir innan til-
skilins frests teljast samþykkir tillögunni.
Samvinnunefnd um skipulagsmál
á Suðurnesjum.
/
Skipulagsstjóri ríkisins.
Lúðrasveit Tonlistarskólans í Kcflavík.
Ljósm.: Nýmynd
Tónleikar í Ytri-
Njarðvíkurkirkju
Lúðrasveit Tónlistarskól-
ans í Keflavík mun halda
tónleika í Y-Njarðvíkur-
kirkju miðvikudaginn 26.
apríi og hefjast þeir kl. 21:00
(9:00).
A efnisskrá verður m.a.
samspil málm- og tréblás-
araflokka, auk þess sem
hljómsveitin leikur saman
nokkur lög.
L.T.K. hefur starfað um
nokkurra ára skeið. Sl. tvö ár
hafa verið annasöm og við-
burðarík í sögu hljómsveit-
arinnar. Sumarið 1988 gerði
sveitin góða reisu um Dan-
mörku og Svíþjóð, en einnig
hefur sveitin leikið mikið hér
heima, við hin ýmsu tækifæri
og haldið sjálfstæða tón-
leika.
Á 40 ára afmælishátíð
Keflavíkurbæjar vakti sveit- y
in athygli fyrir góða spila-
mennsku.
Allir eru hjartanlega vel-
komnir á tónleikana í Y-
Njarðvíkurkirkju á miðviku-
dag í næstu viku meðan hús-
rúm leyfir.
Baðstrandarlíf á
Garðskaga
Hann minnti svo sannar-
lega á amerískar kvikmyndir
um baðstrandarlíf, þar sem
kaldir sveinar leika sér á
brimbrettum í öldurótinu en
léttklæddar meyjar fylgjast
með úr landi.
Það var lítið um léttklædd-
ar stúlkur á Garðskaga síð-
ustu helgi vetrar, enda veðrið
ekki til þess, en þessi maður,
sem mun vera af amerísku
bergi brotinn, lét sig hafa
það og æddi í sjó fram með
brimbrettið og hugðist
spreyta sig í öldunum utan
við Garðskagallös.
Aldrei þessu vant, þá var
lítill öldugangur við Flösina,
þannig að brimbrettakapp-
inn náði sér aldrei á strik og
varð að gefast upp að lokum,
því brimleysið hafði betur.
Hvað dettur Ameríkönum í
huga að gera næst?
Ljósm.: hbb
mun
jUttlt
Miövikudagur 19. apríl 1989 11
Þú kemst í
sumarskap í
Bláa lóninul
óskum Suðurnesja-
nönnum gleðilegs og
sólríks sumars.
Við erum komin í
iumarskap. - Sjaums
í Bláa lónmu.
Opið alla daga kl. 10-22.
Baðhúsið við
BLÁA LÓNIÐ
r
w fí.*: ^ \
Bæjarstjórar fjöl-
menna til Suðurnesja
Árlegur fundur fram-
kvæmdastjóra kaupstað-
anna hér á landi. þ.e. bæjar-
stjóranna, mun verða hald-
inn að þessu sinni hér á Suð-
urnesjum 4.-6. maí nk. Hafa
bæjarstjórarnir komið sam-
an árlega sem fyrr segir, síð-
ast á Isafirði og Bolungar-
vík, þar áður á Akureyri. Nú
eru það bæjarfélögin þrjú á
Suðurnesjum sem eru gest-
gjafarnir, Njarðvík. Keflavík
og Grindavík.
Rétt til þátttöku eiga allir
bæjarstjórarnir. 30 að tölu,
ásamt mökum. Munu þeir
gista á Flug Hóteli í Kella-
vík, en mjög fjölbreytt dag-
skrá hefur verið útbúin fyrir
hópinn, sem kemur hingað á
uppstigningardag, 4. maí, og
fer aftur þann 6. Um er að
ræða kynningar á svæðinu.
fundarhöld og ýmsar uppá-
komur.
Strand Mariane Danielsen:
Kostnaður Grindvík-
víkinga um 5 millj.
Kostnaður við björgun
olíu, glussavökva og annars
er mengun gæti valdið úr
danska skipinu Mariane
Danielsen á fyrstu dögum
eftir strandið við Grindavík
er tæpar 5 milljónir króna,
að sögn Jóns Gunnars Stel'-
ánssonar, bæjarstjóra í
Grindavík. Mun tryggingar-
félag skipsins endurgreiða
kostnað þennan. Voru það
aðallega félagar úr slysa-
varnadeildinni Þorbirni,
slökkviliði Grindavíktir og
starfsmenn olíufélags er
unnu verk þetta.
Vegna björgunar skipsins
hefur bæjarstjórn Grinda-
víkur ákveðið að senda þeim
aðilum, er stóðu að því að ná
skipinu út, þakkarbréf og
óska þeim allra heilla um
leið. En bæjarstjórnin hafði
haft miklar áhyggjur af
björgun skipsins og m.a. sett
þær reglur að ef ekki tækist
að fjarlægja það af strand-
stað fyrir 15. apríl, yrði það
gert á kostnað hlutaðeig-
andi.
Tónlistarskólinn
í Keílavík:
Gítartón-
leikar á
morgun,
fyrsta
sumardag
Hinrik D. Bjarnason er
ungur gítarleikari úr Reykja-
vík, sem stefnir að því að
ljúka burtfararprófi í vor frá
Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar. Hann ætlar
að halda tónleika á sal Tón-
listarskólans í Keflavík á
morgun, sumardaginn
fyrsta, og hefjast tónleikarn-
ir kl. 16.00 og standa í rétt
rúma klukkustund. Á
efnisskrá eru verk eftir Bach,
I. Albénis, R. de Vise, F. Sor
og John Speight.
Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill á meðan hús-
rúm leyfir.
Forskólatónleikar og
skólaslit forskólans verða
nk. laugardag, 22. apríl, kl.
II. 00. Foreldrar eru hvattir
til að mæta með börnum sín-
um.
Bifreiðaeigendur
ATHUGIÐ!
Allar almennar bílaviðgerðir
Annast þjónustu-fyrirSubaru, Nissan, Daihatsu, Volvo, Mazda og Honda.
Einnig smurþjónusta, Ijósastillingar, perusala og Ijósaviðgerðir.
Bifreiðaverkstæði • Grófin 8 • Sími 11266
INGOLFS ÞORSTEINSSONAR