Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.04.1989, Síða 20

Víkurfréttir - 19.04.1989, Síða 20
yfiKun {liUit Miðvikudagur 19. apríl 1989 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Vallargötu 15 - Símar 14717, 15717. Fer slökkviliðs- skólinn ekki í ..Broadstreet"? Nú í nokkur misseri er leyf- isveiting fyrir uppsetningu skóla og æfmgasvæði fyrir slökkviliðsmenn á Suðurnesj- um búin að vera að veltast í kerfinu. Um er að ræða að- stöðu sem Brunamálastofnun ríkisins mun annast, þar sem rústirnar eru ofan við Sól- brekkur á Vogastapaoggengu einu sinni undir nafninu „Broadstreet". Að sögn brunamálastjóra hefur málið nú farið þrjá hringi í kerfinu en situr engu að síður fast og nú hjá Varnar- máladeild. Sagði hann ástæð- una vera ótta við mengun er kæmist í vatnsbólin t.d. við brennslu á olíu. Þessi ótti væri þó með öllu ástæðulaus, þar sem olíunotkun er hverfandi lítil á staðnum. Snerist málið því fremur um að þeir, sem um málið væru að fjalla, vissu ekki um hvað það snerist. Samkvæmt öðrum heimild- um, þá væri hægt að nota að- stöðu slökkviliðsins á Kefla- víkurflugvelli þegar verið er að æfa sig með olíuelda og því þarf þetta atriði ekki að tefja málið. En mál þetta snýst um að þarna verði komið upp skóla fýrir alla slökkviliðs- menn landsins og því gæti spunnist ýmis þjónusta fyrir Suðurnesjamenn í kringum þetta, svo sem leiga á hótelher- bergjum o.fl. En hvað segir Varnarmála- deild um málið og hvað tefur það? Gefum Þorsteini Ingólfs- syni orðið: „Vegna mengunar- slyssins á Keflavíkurflugvelli á sínum tíma hafa menn verð hræddir við að gefa samþykki fyrir þessu. Eg á þó von á að það verði innan tíðar sem það gerist en vinnuhópur sá, sem fjallar um fyrrnefnda mengun, fjallar einnig um þetta mál.“ Réttindalaus ökumaður tekinn á ofsahraða Á laugardag stóð lögregl- an í Keflavík ökumann að því að aka á 123 km hraða á Reykjanesbraut. Um var að ræða ökumann, sem áður hafði verið sviptur ökurétt- indum ævilangt. Hefur að undanförnu verið mikið um kvartanir til lögreglunnar yfir of hröðum akstri í Kefla- vík, Sandgerði og víðar. En vegna mannfæðar hjá lög- reglunni hefur eftirlit með þessum þætti dottið nokkuð niður. Dæmið hér að framan sýnir hvað gerist þegar rad- arnum er brugðið á loft. Afli smábáta: Bjarni KE-23 þriðji hæsti á landinu Fiskifréttir birtu í síðustu viku skrá yfiraflahæstusmá- báta á siðasta ári. Þar kemur fram að Bjarni KE 23 er í 3. sæti yfir landið, með 322 tonn. Skiptist afli Bjarna þannig að 155 tonn eru þorskur, 66 tonn ýsa, 56 tonn steinbítur og 45 tonn annað. Skipstjóri og eigandi Bjarna er Haukur Bjarnason í Keflavík. Næsti Suðurnesjabáturinn er Víðir KE 101 í 7. sæti með 272 tonn. Þá er Hrefna GK 58 í 22. sæti og Matti KE í 25. sæti. Tvær í öruggum vexti. Sparisjóðurinn - fyrir þig og þína . .. .-'J Kristinn Gestsson, skipstjóri á Aðalvík KE-95. Skipið reyndist ágætlega í fyrstu veiðiferðinni, að Itans sögn. Skipið er nú á grálúðuveiðuin. Fyrsti frystitúr Aðalvíkur KE-95: 100 þús. á tonnið Togarinn Aðalvík KE-95 kom úr sinni fyrstu veiðiferð sem alfrystiskip síðasta mið- vikudag með 150 tonn affryst- um afurðum, sem er um 300 tonn af llski upp úr sjó, en Að- alvík var á karfaveiðum. Aflaverðmæti úr veiðiferð- inni var rúmar 15 milljónir króna, sem gera um 100.000 krónur á tonnið. „Skipið kom ágætlega út úr þessari l'yrstu veiðiferð sem frystiskip. Afkastagetan er að vísu takmörkuð eins og skipið er búið í dag. Við getum unnið upp undir 25 tonn af fiski úr sjó á sólarhring, en á svona skipi þarf að vera hægt aðtaka á móti toppum. VOðverðumað vinna allan afla um leið og hann.kentur um borð og get- um ekkert geymt á dekki,“ sagði Kristinn Gestsson, skip- stjóri á Aðalvíkinni, í samtali við blaðið. -Eru ekki breytt viðhorf til veiðanna, eftir að farið er að frysta aflann um borð? „Viðhorfin til veiðanna hafa sannarlega breyst. Hér áður fyrr var það markmiðið að fiska sem mest og koma sem bestum afla á land, en á frysti- skipunum reynum við að halda uppi sem stöðugastri vinnslu og við erum alltaf að vinna nýtt hráefni. Það er erf- itt að lýsa þessu, þar sem um er að ræða gjörólíka starfshætti um borð.“ -Hvernig er hráefnið unnið um borð? „Karfinn er hausskorinn og heilfrystur þannig í 20 kg öskj- um, sem seldar eru á Japans- markað. Karfinn var flokkað- ur í fjóra stærðarflokka en samtals gerði þetta rúmlega 7300 kassa til útflutnings, eftir 19 daga útiveru.“ -Nú erjið þið að fara á annars konar veiðar? „Vfið höfum ákveðið að þessi túr (en skipið hélt út síð- asta laugardag) verði eingöngu grálúðuveiðiferð. Það lítur vel út með verð ágrá- lúðu en við megum veiða 550 tonn, sem gerir 385 tonn af heilfrystri lúðu. Skipið getur tekið um 180 tonn af heilfrystum afurðum, þannig að um er að ræða rúm- lega tvo túra á grálúðu. Við verðum 22 um borð og það verður óhemju vinna hjá mannskapnum, cn hver veiði- ferð tekur um þrjár vikur,“ sagði Kristinn Gestsson, skip- stjóri á Aðalvík, að lokum. Gripinn glóðvolgur Lögreglan í Keflavík stóð skömmu fyrir miðnætti á fimmtudagskvöld mann að verki við aðstela bíl. Var lög- reglan á eftirlitsferð er hún stóð viðkomandi aðila að verki. Hafði hann þá farið inn hjá Bílanesi í Njarðvík og tekið þaðan bíllykla og sat hann undir stýri bílsins er að honum var komið. Þá unnu krakkar skemmdarverk á bíl og hjól- hýsi er stóð fyrir utan Bíla- sölu Brynleifs í Keflavík. Voru þeir búnir að brjóta ljós er komið var að þeim. I — J _ m X TRÉ /V SPON PARKET TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR IÐAVÖLLUM 7 KEFLAVÍK SÍMI 14700 „Mér skilst að bæjarstjórinn hafi aðallega verið pirraður yfir að alltaf var á tali hjá símstöðvarstjóranum . . .

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.