Víkurfréttir - 08.06.1989, Page 1
Aðalverktakar búnir að
kaupa Sparisjóðshúsið
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum blaðsins eru ís-
lenskir aðalverktakar s.f. á
Keflavikurflugvelli búnir að
kaupa stórhýsi Sparisjóðsins
við Tjarnargötu í Keflavík.
Jafnframt hefur verið samið
um það að Sparisjóðurinn
leigi til mjög langs tíma kjall-
ara hússins og jarðhæð, en
stefnt að því að opinberir að-
ilar komi á efstu hæðina.
Mun þetta vera í fvrsta
sinn í sögu íAV sem það fyr-
irtæki fjárfestir í fasteignum
utan Reykjavíkursvæðisins.
Fram að þessu hefur mest
borið á fjárfestingum fyrir-
tækisins á Höfðabakka í
Reykjavík.
Samkvæmt sömu heimild-
um mun fyrirtækið ljúka öll-
um framkvæmdum við húsið
að utan s.s. lóðina nú í sum-
ar. En stefnt er að því að
ljúka framkvæmdum við
sjálft húsið á einu ári. Verður
allt verkið boðið út meðal
heimamanna, en þeirra
starfsmenn munu hvergi
koma þar nærri.
fékk leyfið
Umsókn Björns Vífils
Þorleifssonar um vínveiting-
ar að Hafnargötu 19 í Kefla-
vík kom til umræðu á fundi
bæjarstjórnar Keflavíkur nú
á þriðjudag. Aður hafði mál-
ið komið til kasta stjórnar-
innar og þá vísað til áfengis-
varnanefndar, sem vísaði í
samþykkt bæjarstjórnarinn-
ar frá því í mars sl. um að
ekki verði um fjölgun vín-
veitingastaða á þessu ári.
Urðu miklar umræður um
málið nú og fylgdust flestall-
ir þeir veitingamenn, sem
hafa sjálfstæðan rekstur í
Keflavík, með umræðunum
af áheyrendapöllum. Fór at-
kvæðagreiðslan þannig að
fjórir bæjarfulltrúar, Guð-
finnur Sigurvinsson, Jón 01-
afur Jónsson, Ingólfur Fals-
son og Garðar Oddgeirsson,
greiddu atkvæði með tillögu
frá Jóni Ólafi um að um-
sóknin yrði samþykkt, þrír
bæjarfulltrúar sátu hjá,
Anna Margrét Guðmunds-
dóttir, Drífa Sigfúsdóttir og
Hannes Einarsson. Tveir
greiddu atkvæði á móti, þeir
Þorsteinn Arnason og Vil-
hjálmur Ketilsson.
Fór því svo að málið var
samþykkt. Hefðu hins vegar
báðir þeirra, sem greiddu at-
kvæði á móti, setið hjá, hefði
málið fallið á ónógri þátt-
töku.
Skert þjónusta
Sjúkrahússins
Vegna kröfu stjórnvaida
um niðurskurð rekstrarút-
gjalda við Sjúkrahús Kefla-
víkurlæknishéraðs hefur
stjórn SK gripið til þess ráðs
að draga enn frekar úr starf-
semi og þjónustu sjúkra-
hússins í ár.
Felur samdrátlurinn m.a.
það í sér að skurðstofa verð-
" ur lokuð í þrjá mánuði á ár-
inu, þar af í tvo mánuði nú
yfir sumartímann. Þá verður
nokkrum stofum á almennri
legudeild lokað. Takmarkar
þetta verulega fjölda aldr-
aðra, sem hægt er að taka inn
til hvíldarinnlagnar úr
heimahúsum og styttir legu-
tímann.
Þá verður þjónusta fæð-
ingadeildar minnkuð. Sæng-
urlegudögum verður fækkað
úr sex í fjóra, eins o^g nú er á
Landsspítalanum. I vissum
tilfellum gæti því þurft að
vísa fæðandi konum til
Reykjavíkur. Mun mæðra-
eftirlitið veita nánari upplýs-
ingar um þennan þátt.
Slysaþjónusta verður þó
eins og verið hefur. Eins von-
ast stjórnin til að þessar ráð-
stafanir í sumar verði til þess
að starfsemi SK geti verið
með eðlilegum hætti út árið.
isostar
Perluvöðvar Magnúsar
Það var sannkölluð
„kroppasýning" í Glaum-
bergi sl. laugardag, en þá var
í fyrsta skipti haldið sérstakt
„Perlukvöld", sem sam-
nefnd þrekmiðstöð í Kefla-
vík stóð fyrir. Hápunktur
kvöldsins var þegar Magnús
Hauksson, aðal „vöðva-
búnt“ Suðurnesja, kom fram
á sviðið í öllu sínu „veldi“ og
dansaði við mikinn fögnuð
viðstaddra gesta, sem fylltu
Glaumbergið. Ljósm.: pket.
Vítaverður
akstur kærður
Lögreglunni i Keflavík var
um helgina tilkynnt í þrígang
um vítaverðan akstur. Eitt
tilfellanna var á Garðvegi, en
hin í Keflavík. Tókst lögregl-
unni að ná tali af einum
hinna ákærðu, annar verður
kærður þar sem vitað er hver
var á ferðinni, en sá þriðji
slapp undan réttvísinni að
þessu sinni.
Bættar öryggisráðstafanir
við Bláa lónið:
„Munum koma
í veg fyrir
annað slys“
„Við munum gera allt sem
í okkar valdi stendur til að
koma í veg fyrir annað slys.
Það verður iagað allt það sem
ekki er í lagi,“ sagði Guð-
mundur Guðbjörnsson, einn
rekstraraðila baðhússins við
Bláa lónið.
Síðustu daga hafa öryggis-
ráðstafanir við lónið verið
bættar til muna. Búið er að
strengja öryggislínu þvert
yfir lónið, en innan hennar er
með öllu óheimilt að vera á
vindsængum. Þá er einnig
unnið að því að koma fyrir
skiltum með afstöðumynd-
um af lóninu og sýna þar t.d.
öryggislínuna, dýpi í lóninu
og allar eyjar ásamt fleiru.
Þá verða einnig settar upp
fleiri og betri merkingar.
Starfsmenn Bláa lónsins
hafa nú lítinn árabát til um-
ráða og eru nú teknar hita-
stigsmælingar reglulega um
allt lón. Einnig eru uppi hug-
myndir um að setja hita-
skynjara víða um lónið sem
létu vita um hitastig með
merkjum.