Víkurfréttir - 08.06.1989, Blaðsíða 7
\IÍKUK
{uM%
Fimmtudagur 8. júní 1989 7
Bakkus I
bllveltu
Því miður er nokkuð um
það að Bakkus bregði sér i
ökuferðir og þurfti Grinda-
víkurlögreglan að hafa af-
skipti af tveimur slíkum í síð-
ustu viku. Annan þeirranáði
lögreglan að stöðva áður en
illa fór, en hinn náði að velta
bifreið í Staðarhverfi í
Grindavík aðfaranótt
sunnudagsins. Engin slys
urðu á fólki í veltunni.
Drengur brák-
aði hnéskel
Ungur drengur datt af
léttu bifhjóli á bak við versl-
unina Staðarkjör í Grinda-
vík á föstudagskvöld. Við
fallið brákaði drengurinn
hnéskel og þurfti því á að-
stoð að halda. Nærstaddir
kölluðu til lögregluna í
Grindavík og kom hún
drengnum í réttar hendur.
Grindavík:
Umferðarnefnd
Keflavíkur:
BIFREIÐ FANNST
Á SJÁVARBOTNI
Bifreið fannst í Grindavík-
urhöfn sl. mánudagsmorg-
un. Maður, sem leið átti um
höfnina, tók eftir að bifreið
var á hvolfi í sjónum viðsvo-
kallaða Svírabryggju. Lét
hann lögregluna í Grinda-
vík þegar, vita. Var bíllinn
hífður upp af hafsbotni á
mánudag. Reyndist þetta
vera Mazda 323 station, ár-
gerð 1980.
Hafði bifreiðin legið lengi í
sjó, þar sem mikill gróður
hafði fests á bifreiðina. Lög-
reglunni í Grindavík hefur
tekist að hafa upp á eiganda
bifreiðarinnar. Síðast þegar
Mazdan sást, þá stóð hún við
Hraðfrystihús Grindavíkur i
nóvember á síðasta ári. Var
bíllinn ógangfær og því hef-
ur honunt verið ýtt fram af
brvggjunni.
Ekki er vitað hverjir voru
þarna að verki og því óskar
lögreglan í Grindavík eftir
vitnum, sem kunna að hafa
séð þegar grænni station
Mözdu var ýtt út á bryggj-
una seint á síðasta ári.
Ekki hraða-
hindrun í
Háaleitið
Umferðarnefnd Keflavík-
ur tók nýlega fyrir erindi
íbúa við Háaleiti, sem greint
hefur verið frá hér í blaðinu
og fjallar um ósk um tvær
hraðahindranir og að gerð
verði einstefnuakstursgata í
Háaleiti.
Nefndin sá ekki ástæðu til
að settar verði hraðahindr-
anir á götuna, að því er fram
kemur í bókun nefndarinn-
ar. En jafnframt getur nefnd-
in fallist á að sett verði ein-
stefna á götuna, þannig að
akstursstefna verði frá
Sunnubraut að Skólavegi.
Verði sett einstefna á götuna
má ganga þannig frá inn-
akstursenda götunnar að
skýrt komi fram að urn íbúð-
argötu sé að ræða, segir í áliti
nefndarinnar.
gjörónýtur hefur honum nú verið kontið á haugu. t.jósm.: hbb.
Eitt umslag - Engin bið
*
*
*
*
n
n
n
i
sPMismm
KEFLAVlK - NJARÐVIK - GARÐUR - GRINDAVIK
Þarftu að leggja inn, greiða reikninga
eða millifæra? Þó er Snarþjónusta
Sparisjóðsins góð leið, ef þú vilt losna
við biðröð. Komið og kynnið ykkur
þessa nýju þjónustu Sparisjóðsins.
n
*
*
*
*
*
*
*
*
*
********************************
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
• •
p L O N T U S A L A
DRANGAVÖLLUM 3, KEFLAVÍK,
OPNAR LAUGARDAGINN 27. MAÍ
Fjölbreytt
úrval af
garðplöntum.
Tré, runnar
og limgerði.
Blóm, rósir
og kvistir.
Lífrænn
áburður.
Vikur og
blómaker.
Opið virka daga
frá kl. 13-22, laugar-
daga kl. 10-18 og
sunnudaga kl. 13-17.
ATH:
Sama verð
og í Reykjavík
EUROCARD