Víkurfréttir - 27.07.1989, Síða 5
VIKUR
Víkingur IIIÍS 280 kominn til nýrrar heimahafnar í Sandgerði.
Breytingar á fiskiskipaflota
Sandgerðinga:
Kaup, sala
og úrelding
All nokkrar sviptingar
urðu síðasta föstudag í út-
gerðarmálum Sandgerðinga.
Um morguninn kom þangað
nýkeyptur 149 tonna stálbát-
ur, sem kemur í stað annars
124 tonna stálbáts sem í
haust verður úreltur. Um
kvöldið var síðan gengið frá
sölu á 176 tonna stálbáti frá
Sandgerði.
Sá sem keyptur hefur ver-
ið heitir Víkingur III ÍS 280
og kemur frá ísafirði. Er það
Jóhann Guðbrandsson sem
kaupir bátinn en bátur hans,
Sandgerðingur GK 268, mun
verða úreltur þegar humar-
úthaldinu lýkur.
Mummi GK 120, sem varí
eigu Rafns h.f., hefur verið
seldur Jökli h.f., Raufar-
höfn, sem gefið hefur bátn-
um nýtt nafn, AtlanúpurÞH
263.
Mummi GK 120 sem nú hefur verið seldur og um leið fengið nafn-
ið Atlanúpur ÞH 263. Ljósmyndir: epj.
Övissa með
Mariane
Danielsen
Nú, tæpum tveimur mán-
uðum eftir að danska strand-
skipið Mariane Danielsen
var dregið út til viðgerðar í
Póllandi, hefur viðgerð enn
ekki hafist. Mun það bæði
stafa af verkföllum í Pól-
landi og öðrum orsökum.
Lyngholt s.f. í Vogum,
sem er eigandi skipsins, hef-
ur nú auglýst skipið til sölu
þar sem samningar við Finn-
boga Kjeld tókust ekki, en
meðan unnið var að undir-
búningi viðgerðarinnar við
bryggju í Njarðvík var Finn-
bogi talinn koma sterklega
til greina sem kaupandi
skipsins.
Fimmtudagur 27. júlí 1989 5
SÆTAFERÐIR
verða frá Sérleyfisbifreiðum Keflavíkur í
• HÚNAVER
• VESTMANN AEY JAR
• GALTALÆK
Boðið verður upp á ,,ferðapakka“ alla leið með far-
gjöldum og aðgöngumiða á hátíðarsvæði. Sala hefst
nk. mánudag. Nánari upplýsingar í afgreiðslu SBK í
síma 15551 og 15444.
S érleyfisbifreiðir
Keflavíkur
i
SKYTTURNAR
- hittu í mark á Glóðinni
- Þær slógu í gegn á nýrri og
breyttri Glóð um síðustu
helgi og héldu uppi frá-
bærri stemningu. Við
höldum að sjálfsögðu
áfram með Glóðarstuðið
og Skytturnar mæta aftur
um helgina og spila til kl. 03
föstudags- og laugardagskvöld
STEIKARBAR
Lamba-, nauta- og grísasteikur með
góðu meðlæti. Þú borðar eins og þú
getur fyrir aðeins 1480 krónur.