Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.07.1989, Page 10

Víkurfréttir - 27.07.1989, Page 10
yfiKun 10 Fimmtudagur 27. júlí 1989 Oldboys-lið Reynis og Oldboys-lið Vogs Boltfélags. Góðir gestir hjá Reynismönnum Menn voru kátir og glaðir í íþróttahúsinu í Sandgerði sl. föstudagskvöld en þá fór fram lokahátíð heimsóknar gesta frá vinabæ Sandgerðis í Færeyjum, Vogi. Varþað knattspyrnufélag Vogs, Vogs Boltfélag, sem hafði dvalið í Sandgerði um vikutíma. Var þetta stór við- burður fyrir knattspyrnufélagið Reyni í Sandgerði og Vogs Boltfélag, því 30 ár eru liðin frá því þessi félög léku síðast sam- an. Færeysku gestirnir, tæplega 40 manna hópur, komu til Sandgerðis laugardaginn 15. júlí og á sunnudeginum léku þeir fyrstu leikina. Voru Fær- eyingarnir bæði með liðið sem keppti við Sandgerðinga fyrir 30 árum og einnig meistara- ílokkslið. Satt best að segja lögðu Færeyingarnir old boys- lið Reynismanna með tveimur mörkum gegn einu. Það var hinn léttfætti framherji Sand- gerðinga, John Hill, sem gerði tilraun til að bjarga andliti Reynismanna og skoraði eina mark Reynis með glæsilegu skallamarki. Það gekk aftur á móti betur hjá meistaraflokki Sandgerðis gegn meistaraflokki Vogs Boltfélag. Þar fóru heima- menn með sigur af hólmi, 3:2. A meðan á heimsókninni stóð lék Vogs Boltfélag einnig við Njarðvíkinga og sigraði þá með þremur mörkum gegn engu. A þriðjudag í síðustu viku buðu síðan Víðismenn færeysku gestunum á bikar- leikinn Víðir-Fram og síðan í kaffi í félagsheimilinu að leik loknum. Þórður Olafsson hjá knattspyrnufélaginu Reyni vildi koma á framfæri sérstöku þakklæti til nágranna sinna í Víði fyrir þetta boð. A miðvikudeginum var far- ið með gestina í heilmikla öku- ferð um suðurlandsundirlend- ið. Var byrjað á Þingvöllumog síðan haldið á Laugarvatn, þar sem Stefán, veitingamaður á Vitanum, tók á móti ferða- löngum með matarveislu. Frá Laugarvatni var farið að Gull- fossi og Geysi og þaðan til baka til Hveragerðis. Þegar líða tók að lokum ferðarinnar var Færeyingun- um boðið að skoða mannvirki Hitaveitu Suðurnesja og einn- ig bauð hitaveitan gestunum í mat. Þá fóru allir í Bláa lónið. Lokadagur heimsóknarinn- ar var síðan sl. föstudag. Þá léku old boys Reynis og old boys Vogs Boltfélag og sigr- uðu Reynismenn þar með tveimur mörkum gegn einu. Meistaraflokkur Reynis- manna sigraði einnig með tveimur mörkum gegn engu. Um kvöldið var síðan haldin mikil veisla í íþróttahúsinu, sem á milli 260 og 270 manns sóttu. Þar var Færeyingafélag- ið á Suðurnesjum mætt til leiks og sýndi þjóðdansa. Stefán á Vitanum og Axel hjá Veislu- þjónustunni sáu um veitingar þetta kvöld. Að loknum mat voru veittar viðurkenningar til Knattspyrnufélagsins Reynis og sveitarstjórnar Miðnes- hrepps frá sveitarstjórninni í Vogi og það sama gerði sveit- arstjórnin í Sandgerði. Færeyska hljómsveitin Vík- ingband hélt síðan uppi stans- lausu stuði á mannskapnum langt fram undir morgun, en gestirnir héldu heim á hádegi sl. laugardag. Stjórn Knattspyrnufélags- ins Reynis vill koma á fram- færi þakklæti til þeirra fyrir- tækja og einstaklinga sem studdu við bakið á félaginu, svo það gæti tekið á móti gest- unum. Mikill fjöldi fólks var viðstatt lokahátíð í íþróttahúsinu í Sandgerði. Formaður Vogs Boltfélags afhenti Rcynismönnum mynd frá Færeyjum ... .. . og Pétur Brynjarsson, formaður Reynis, afhcnti á móti mynd af Sand- gerði. Rúnar sló nokkur högg með undraverðum árangri, enda með leiðsögn eins frægasta golfkennara heints, John Jacobs. Rúnar þorir ekki í golf Sýndi ótrúlega snilli er hann fór í kennslu til eins kunnasta golfkennara heims Sandgerðingurinn Rúnar Marvinsson, einn þekktasti matargerðarmaður íslend- inga, matreiddi sérstaklega fyrir heimskunnan golfkenn- ara, John Jacobs, sem kom í heimsókn til íslands fyrir skömmu. Rúnargrillaðisilung og lax fyrir kappann og 16 heppna kylfinga, sem unnu sér inn kennslu hjá John Jacobs, setn fram fór í Hvammsvík í Hvalfirði. Ólafur Skúlason, laxeldismaður með meiru, sem er mörgum Suðurnesjamönn- um að góðu kunnur, stóð fyrir heimsókn Jacobs og setti upp golfmót áður í Hvammsvík, þar sem 16 bestu unnu sér inn kennslu hjá hinum kunna kennara. í Hvammsvík er 9 liolu golf- völlur og veiðivatn, sem hefur fengið orð á sig fyrir að vera golf- og veiðiparadís. Jacobs þessi er mikill veiðidellumað- ur og það varð kveikjan að komu hans hingað. Þennan dag sem hann kenndi íslend- ingunum sextán skrapp Rúnar Marvinsson, Sandgerðingur- inn síungi, upp í Hvammsvík með grillið og matreiddi feng- inn sem Jacobs hafði fengið í Hvammsvík. Jacobs var yftr sig ánægður með íslenska sil- unginn og laxinn en heimtaði einnig að fá að sýna Rúnari nokkur atriði í golfi í staðinn. Rúnar tók af sér svuntuna, hlustaði vel á Jacobs í smá- stund og sló svo nokkur golf- högg með ótrúlegum árangri. Svo vel gekk hjá Rúnari að hann rétti Jacobs kylfuna aft- ur skömmu síðar og sagðist ekki þora meiru, hann mætti nefnilega ekki vera að því að fá delluna. .Stórlaxar", hver á sinu sviði. F.v.: Rúnar Marvinsson, John Jacobs og Ólafur Skúla- son. Ljósmyndir: pket. VlKUR Fimmtudagur 27. júlí 1989 11 Landsmót í golfi hefst á Hólmsvelli í Leiru á mánudag: Stefnir - segir Sigurður Jónsson, mótsstjóri Landsmóts í golfi 1989 „Það væri stórkostlegt ef nafna mínum Sigurðssyni tækist að verja íslandsmeistaratitilinn hér á heimavelli sínum og að Keren Sævarsdóttir næði að sigra í meistaraflokki kvenna,“ segir Sigurður Jónsson, mótsstjóri. Ljósm.: pket. „Það stefnir í mjög góða þátttöku enda allt til þess fallið svo það geti orðið. Völlurinn er í toppstandi, veðurspár hagstæð- ar og breyting verður á niður- röðun flokka í mótið. Allt þetta gæti orðið til þess að búast má við meiri þátttöku en nokkru sinni fyrr,“ sagði Sigurður Jónsson, mótsstjóri Landsmóts í golfi, sem byrjar á Hólmsvelli í Leiru næsta mánudag, 31. júlí, og stendur til laugardagsins 5. ágúst. Golfklúbbur Suðurnesja hélt síðast Landsmót árið 1986, sem þá var haldið „með stæl“, sællar minningar. Þá var unnið sannkallað afrek á framkvæmdasviðinu því skömmu fyrir mótið var 18 holu völlur vígður og einnig nýtt klúbbhús. Það má því segja að undirbúningsvinnan sé léttari fyrir þetta mót en engu að síður er margt sem þarf að gera þegar búist er við á milli 250 og 300 þátttakend- um. Sérstök Landsmótsnefnd, skipuð þeim Sigurði Jónssyni, sem er mótsstjóri, Kristjáni Einarssyni, dómara, Hirti Kristjánssyni, Ástu Pálsdótt- ur, Jóni Pálma Skarphéðins- syni, Ómari Jóhannssyni og Páli Ketilssyni, hefur séð um mestallan undirbúning fyrir mótið, auk fleiri félaga í GS. Metþátttaka? -Þú talar um 250-300 þátt- takendur. Er ekki erfitt að halda svona stórl mót? „Jú, þetta krefst mikillar skipulagningar. Keppendur gætu orðið um 300 og því var brugðið á það ráð að láta þrjá flokka af sjö byrja á mánudeg- • Það má segja að golfíþróttin sé að ná heljartökum á Suður- nesjamönnum, því ótrúleg fjölg- un hefur átt sér stað í Golf- klúbbi Suðurnesja í sumar. Tæplega eitt hundrað nýir fél- agar hafa skráð sig i klúbbinn sem nú telur yfir fjögur hundr- uð... inum. Það eru flokkar, þar sem skorið er á þátttökufjölda eftir tvo daga, þannig að þá verður auðveldara að ræsa alla út á þriðja degi mótsins þegar hinir fjórir flokkarnir byrja. Einnig held ég að þetta geti orðið til þess að þátttakan verði meiri, því u.þ.b. helm- ingur keppenda lýkur þátt- töku sinni á fímmtudeginum og getur því farið með fjöl- skyldum sínum eitthvað um verslunarmannahelgina ef þeir hafa áhuga á því. Annars má búast við miklum mannfjölda hér í Leirunni þessa Lands- mótsviku, sem að sjálfsögðu nær hámarki síðasta keppnis- daginn, þegar meistararnir • Einn þátttakandi í Landsmót- inu í golfi óskaði eftir því að fá að nota golfbíl þegar hann léki. Það leyfi var fúslega veitt en þetta verður í fyrsta skipti sem það gerist. Eigandi bílsins og umræddur kylfingur er enginn annar en einn af Kennedy- bræðrunum á Akureyri, Skúli Ágústsson, sem mun sérstak- lega fiytja bílinn suður af þessu tilefni... leika síðasta hringinn. En allt fer þetta eftir veðri og veður- spár fyrir næstu viku lofa góðu, norðanátt og sól, þannig að við erum mjög bjartsýn.“ Siggi og Karen í baráttunni -Eigið þið von á fólki frá landsbyggðinni til Suðurnesja vegna mótsins? „Já, það má eiga von á talsverðum hópi utan af landi. Við þurfum ekki að kvíða skorti á gistirými því nóg hót- elpláss eru í boði.“ • Það er viðtekin venja að Ein- herjar, klúbbur þeirra sem hafa farið holu í höggi, haldi sitt ár- lega mót rétt fyrir Landsmót á viðkomandi velli. Einherjamót- ið verður á laugardaginn en þeir kylfingar sem ekki hafa farið holu i höggi kalla þcnnan flokk jafnan grísapungaklúbbinn... framkvœmdir verið á honum í sumar? „Það verður vígð ný flöt á 4. brautinni, sem verður tekin í notkun í Landsmótinu og svo er stutt síðan að það var lögð ný flöt á Bergvíkurholunni. Að öðru leyti hafa litlar sem engar nýframkvæmdir verið á vellinum í sumar.“ -Að lokum, Sigurður, viltu spá einhverju um úrslit? „Það væri stórkostlegt ef nafna mínum Sigurðssyni tæk- ist að verja Islandsmeistaratit- ilinn hér á heimavelli sínum og Karen Sævarsdóttir næði að sigra í meistaraflokki kvenna. En það stefnir allt í geysi- spennandi og harða keppni í öllum flokkum og ég held að við Suðurnesjamenn teflum fram góðum kylfingum í öllum flokkum. En ég vil að lokum hvetja Suðurnesjamenn til að fjölmenna í Leiruna og fylgjast með skemmtilegu móti og bestu kylfmgum landsins berj- ast um Islandsmeistaratitla,“ sagði Sigurður Jónsson, móts- stjóri Landsmóts í golfi. -Þú segir að völlurinn sé í góðu ástandi. Hafa einhverjar i met- ★★★★★★ Það er heitt og notalegt hjá okkur alla daga! Ætlar þú að kíkja? BAÐHÚSIÐ VIÐ BLÁA LÓNIÐ Opið alla daga frá 10-22 ★★★★★★★★★

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.