Víkurfréttir - 27.07.1989, Qupperneq 16
\>íkuk
16 Fimmtudagur 27. júlí 1989
Ytri Njarðvíkurkirkja
Sunnudagur 31. júlí:
Messa kl. 11. Organisti: Gróa
Hreinsdóttir.
Þorvaldur Karl Hclgason
Hársnyrting fyrir dömur og herra
Hárgreiöslustofan
Vatnsnestorgi
■ Tímapantanir í síma 14848
Keflavík - Afgreiðslustarf
Stúlka óskast til afleysinga vegna sumar-
leyfa.
h/f
Keflavík
Frystihús - Starfsfólk
Starfsfólk óskast, konur og karlar.
BRYNJÓLFUR HF.
SÍMI 14666
Atvinna óskast
Kerfisfræðingur (tölvufræðingur) með bók-
haldsþekkingu óskareftiratvinnu. Gethaf-
ið störf strax. Upplýsingar í síma 13675.
Háþrýstiþvottur
Tek að mér allan háþrýstiþvott. Er óháður
rafmagni. Upplýsingar á kvöldin í síma
13986.
Leikskólinn GIMLI
auglýsir
Það eru laus pláss fyrir og eftir hádegi frá og
með 15. ágúst. Upplýsingarí síma 15707 frá
kl. 14-16.
jUUi*
- Lesendur skrifa - Lesendur skrifa - Lesendur skrifa -
Betri
Eg er Keflvíkingur í húð og
hár og einn þeirra sem alltaf
hafa viljað sjá veg SBK sem
mestan. I vetur, þegar sögur
fóru að berast af kaupum fyr-
irtækisins á hliðstæðu fyrir-
tæki úr Njarðvík, heyrði mað-
ur neikvæða umræðu um að nú
yrðu dagar Sérleyfisbifreiða
Keflavíkur senn taldir. Slíkt
mátti jafnvel heyra af vörum
einstakra bæjarfulltrúa í
Keflavík.
Lítill minnihluti var þó
strax í upphafi þeirrar skoðun-
ar að með tilkomu Steindórs
Sigurðssonar sem fram-
kvæmdastjóra SBK og kaup-
um á bílaflota hans yrði hægt
að lyfta fyrirtækinu í fyrra
horf. Þessum hópi, sem fór
fjölgandi í, fylgdi ég. Nú ersvo
komið að þessar væntingar haf
komið að þessar væntingar
hafa séð dagsins ljós, þökk sé
kraftaverkamanninum Stein-
dóri Sigurðssyni óg þeim sem
fylgdu bæjarstjóranum í þessu
máli.
Nú sér maður SBK bíla nán-
ast hvar sem er. A hálendinu,
austfjörðum, Borgarfirði,
Hálfur
amerí-
kani
fær
út-
hlutun
Óskað hefur verið eftir
birtingu á eftirfarandi fyrir-
spurn frá starfsmannahópi:
Hvers vegna var stúlku,
sem er hálfur ameríkani og
er gift kana, veitt íbúð hjá
verkamannabústöðum í
Keflavík?
Til að fá svör við þessari
fyrirspurn hafði blaðið sam-
band við viðkomandi aðila.
Þar kom fram að þar sem
viðkomandi stúlka á ekki
lögheimili í Keflavík hafi
umsókn hennar verið vísað
til stjórnar verkamannabú-
staða í Njarðvík, en þar hef-
ur hún lögheimili. Stjórn
verkamannabústaða í Njarð-
vík hefur hins vegar hvorki
úthlutað viðkomandi aðila
né neinum öðrum íbúð. Virð-
ist því vera um misskilning
að ræða varðandi það að við-
komandi stúlka hafí fengið
íbúð úr verkamannabú-
staðakerfinu.
tíð hjá SBK
norðurlandi og jafnvel er svo
komið að maður mætti ekki
hópi hópferðabíla án þess að
einn þeirra eða fleiri séu frá
SBK. Þó vel gangi megum við
þó ekki gleyma að þetta fyrir-
tæki er í eigu okkar Keflvík-
inga og því eigum við, sam-
borgarar þessa bæjar svo og
aðrir nágrannar okkar, að
standa samhuga með þessu
fyrirtæki, þvi það veitir ekki af
að einu fyrirtæki a.m.k. gangi
vel hér syðra.
Keflvíkingur
Hópferðabifreið frá SBK stödd í gamalli síldarþró á Fáskrúðsfirði
í síðustu viku. Ljósm.: hbb.
Þakkir
til Hag-
kaups
Nú fyrirskömmu varég að
versla í Hagkaupum, Njarð-
vík, sem er í sjálfu sér ekkert
merkilegt. En það sem mér
fannst aftur merkilegt var
það, að er ég kom heim upp-
götvaði ég að smá skekkja
var í samlagningu.
Eg gerði mér ekki vonir
um að fá það leiðrétt, þar
sem að eftir að heim kom
voru að sjálfsögðu sannanir
brostnar. En ég gerði þó til-
raun og hringdi. í símann
kom maður sem sagðist heita
Guðni. Hann sagði ekkert
sjálfsagðara en að leiðrétta
þetta. „Ég færi þér bara mis-
muninn,“ sagði hann og
gerði.
Þetta kalla ég vel að verki
staðið. Nóg mun vera um hitt
sem er þó oftar getið um,
bæði í verslun og öðru.
Jakob Indriðason
Auglýsingasímamir eru
14717 og 15717.
Mun
_____ Munið
(fZtfk Lottóið °9
Getraunirnar
Í.B.K.