Víkurfréttir - 12.10.1989, Blaðsíða 11
10
Ferð þroskaheftra til Biersdorf
Vikurfréttir
12. okt. 1989
11
Til Þýskalands
fyrir kleinur
Valur, Ási, Hannes, Guðni, Reynir og Guðrún Halla fyrir utan sumarhúsið.
Hugmyndin að þessari ferð
kviknaði í byrjun ársins 1989.
Var fljótlega byrjað að spá í þá
staði sem kæmu til greina og
stuttu seinna varð Þýskaland
fyrir valinu, sumarhús í Biers-
dorf. Við gerðum okkur grein
fyrir því að svona ferð myndi
kosta mikið, þó svo að Flug-
leiðir gæfu okkur mikinn af-
slátt. Var því farið að huga að
því hvernig hægt væri að fjár-
magna svona ferð. Niðurstað-
an varð sú að á hverjum föstu-
degi í margar vikur bökuðu
starfsmenn Ragnarssels klein-
ur sem þeir seldu, ásamt
nokkrum foreldrum, inn við
blómabíl. Á 1. maí varhaldinn
basar og kaffisala í Iðnsveina-
félagshúsinu. Tókum við einn-
ig upp það ráð að biðja fyrir-
tæki á Suðurnesjum um styrk.
Með allri þessari vinnu tókst
okkur að safna peningum fyrir
ferðinni. Miðað var við aðekki
færu fleiri í ferðina en 8 ungl-
ingar, 4 starfsmenn og bíl-
stjóri.
Viljum við þakka öllum sem
gerðu okkur kleift að fara
þessa ferð, fyrirtækjum ogein-
staklingum, eins öllum sem
lögðu fram vinnu sína við
kleinubakstur o.fl.
Við þökkum krökkunum
fyrir ógleymanlega samveru.
Það sannaðist að þroskaheftir
hafa mikið erindi til útlanda,
bæði til gamans og þroska.
Starfsfólk Ragnarssels.
Helgi, Reynir, Hannes og Villi sprauta á bolta.
MUNIÐ
LOTTÓIÐ.
IBK
Viðtalið
MEÐ ALLT A UTOPNU
Spjallað við íslandsmeistarana í rallakstri, bræðurna Ölaf og Halldór Sigurjónssyni
„Við erum búnir að vera
ótrúlega heppnir í sumar, höf-
um aðeins eyðilagt 26 hjólbarða
til þessa,“ sögðu þeir bræður
Olafur og Halldór Sigurjóns-
synir í samtali við Víkurfréttir
að loknu svokölluðu Borgar-
fjarðarralli um síðustu helgi. I
því ralli gulltryggðu þeir ís-
landsmeistaratiti! sinn í rallinu
þetta árið. Ennþá er ein keppni
eftir og fer hún fram 28. októ-
ber.
Það hefur lítið farið fyrir
þeim bræðrum til þessa, þó svo
þeir hafi byrjað keppni fyrir al-
vöru árið 1978. í sumar hafa
þeir hins vegar gert öðrum og
þekktari mönnum úr rallheim-
inum lífið leitt, með því að
vinna hvern sigurinn á fætur
öðrum og því hinir fallið í
skuggann. En hver er ástæðan
fyrir þessari velgengni og
hvernig er þessi íþrótt? Víkur-
fréttir tóku rallarana tali og
hér kemur árangurinn.
Velgengnin bílnum
að þakka
„Það sem ég held að hafi
skipt höfuðmáli varðandi vel-
gengni okkar í sumar, er að við
keyptum okkur annan bíl á
síðastliðnum vetri og það hef-
ur skipt sköpum í sumar. Við
höfum verið heppnir með bíl,
því það er hann sem skiptir
öllu máli þegar út í baráttuna
er komið,“ sagði Halldór, þeg-
ar hann var spurður út í vel-
gengnina á liðnu sumri.
Olafur og Halldór aka á
Talbot ’81 með 250 hestafla
vél, en boddýið er að vísu öllu
yngra eða ’85. „Bíllinn fór víst
ansi skrautlega veltu í Odáða-
hrauni, þannig að skipta varð
um allt boddýið,“ sagði Ólaf-
ur um ástæðurnar fyrir hinu
nýlega yfirbragði á bílnum.
Bílvelta og
heddpakkning
-Þrátt fyrir gott gengi í sum-
ar, þá hefur þetta ekki allt
gengið áfallalaust?
„Nei, síður en svo. Við fór-
um einu sinni af stað í keppni
með bilaða blöndunga og fyrir
vikið urðum við að sætta okk-
ur við annað sætið. I annari
keppni hjá okkur fór hedd-
pakkning um miðja keppnina,
Halldór Sigurjónsson
Ólafur Sigurjónsson
en við vorum búnir að vinna
okkur upp gott forskot og
náðum því að halda fyrsta sæt-
inu allt til loka.“
-Og ein velta?
„Já, við afrekuðum það að
velta bifreiðinni einn hring í
Meðallandi í _ alþjóðakeppn-
inni í sumar. Ástæða veltunn-
ar var of hægur akstur. Það er
nú einu sinni þannig í rall-
akstrinum að eftir því sem bíl-
arnir fara hægar, þeim mun
erfiðara er að hafa stjórn á
þeim,“ sagði Ólafur.
Miklar öryggiskröfur
-Er nokkuð mál að drepa sig
á þessu?
„Það er stórmál að fara sér
að voða í þessum bílum, þar
sem gerðar eru topp kröfur um
öryggismál. Bíllinn getur ekki
lagst saman, þar sem við erum
með sterk öryggisbúr. Þáerum
við spenntir í öryggisbelti með
fjórföldu öryggi og einnig með
hjálma.“
-Hver er ykkar erfiðasti
andstæðingur?
„Steingrímur Ingason er án
efa okkar erfiðasti andstæð-
ingur. Hann er sá eini sem gat
staðið í okkur í keppnunum í
sumar.“
-Er ekki rígur milli kepp-
enda meðan á keppni stendur?
„í rallakstrinum er beitt
mikilli sálfræði. Við gerum allt
til að æsa upp andstæðinginn.
Okkar helsta vopn, og það
skemmtilegasta, er að við
skoðum fyrstu leiðirnar mjög
vel fyrir keppni og keyrum síð-
an allt á útopnu í upphafi
hverrar keppni og náum þann-
ig langbestu tímunum.
Þessir sigrar hjá okkur hafa
allir unnist á þennan hátt. Við
höfum náð miklu forskoti
strax í upphafi keppni,“sögðu
þeir bræður.
Á yflr 200 km hraða
-Er einhver sérleið í uppá-
haldi hjá ykkur?
„Þetta er rándýrt sport. Við
höfum ekkert leitað eftir aug-
lýsingum á bílinn, eins og
margir gera til að fjármagna
þetta. Aðalkostnaðurinn felst í
nýjum hjólbörðum og við-
haldi. Við höfum verið mjög
heppnir í sumar hvað hjól-
barða varðar, höfum einungis
eyðilagt 26 dekk. Allur okkar
Talbot-bifreið þeirra hefur komið vel út í sumar.
Ljósmyndir: Gunnlaugur Rögnvaldsson
„Ætli það sé ekki Lyngdals-
heiðin. Þar eigum við Islands-
met í hraða. Við höfum sett
nokkur met á sérleiðum í sum-
ar, en meðalhraðinn okkar á
Lyngdalsheiði er 133 km á
klukkustund. Hraðinn á bíln-
um getur þó á köflum farið yf-
ir 200 km á klst. en við skulum
ekkert vera að segja frá því.
Guttarnir aka víst nógu hratt
fyrir.“
-Er þetta ekki dýrt og tíma-
frekt sport?
frítími fer í þetta og meira til.
Það hefur verið lítið um sum-
arfrí í sumar.“
Byggist upp á
samvinnu
-Nú hafið þið náð þetta
langt hér á landi. Á ekkert að
fara út fyrir landsteinana?
„Það er ekki á dagskránni
hjá okkur að keppa úti. Það er
víst nógu dýrt að standa í
þessu hér heima.“
-Nú hefur Ólafur annast
aksturinn í sumar. Hvor ykk-
ar hefur nú meira að gera í
bílnum?
„Þetta byggist allt upp á
mikilli samvinnu ökumanns
og aðstoðarökumanns. Eg sit
undir stýri og það má segja að
Halldór mati mig á því sem ég
á að gera, því hann annast það
að segja til um það hvernig
leiðin er, hvenær næsta beygja
kemur og þvíumlíkt. Eg sé
hins vegar um bensíngjöfina,
gírana og rúðuþurrkurnar,“
sagði Ólafur.
Öflugt viðgerðarlið
-Nú standið þið ekki einir í
þessu. Það fylgir ykkur mikið
viðgerðarlið.
„I sumar hafa starfað með
okkur sex strákar í viðgerðum
og hafa þeir staðið sig frábær-
lega og haldið bílnum gang-
andi. Þegar það hafa verið
tveggja daga keppnir hafa þeir
gert bílinn upp á kvöldin fyrir
slag næsta dags. Þeir eru
einnig alltaf tilbúnir með nýja
hjólbarða og eldsneyti að lok-
inni hverri sérleið. Það er víst
að enginn sigur hefði unnist í
sumar, ef við hefðum ekki haft
þessa stráka,“ sögðu þeir
bræður.
-Að endingu. Næsta keppni
er 28. október. Á ekki bara að
taka þessu rólega?
„Síður en svo. Nú erum við
öruggir með titilinn og ætlum
því að leyfa okkur að keyra
hveljuna á útopnu frá upphafi
til enda. Við ætlum að keyra
eins og vitleysingar og gefum
ekkert eftir fyrsta sætið,“
sögðu þeir Ólafur og Halldór
Sigurjónssynir, Bílbótarbræð-
urnir, að lokum.
Viðtal: Hilmar B. Bárðarson
Tónlistarskólinn í Keflavík
Víkurfréttir
12. okt. 1989
Tónleikar í kvöld og laugardag
Júlíana Rún Indriðadóttir
heldur píanótónleika í kvöld,
fímmtudaginn 12. október kl.
20.30 í Tónlistarskólanum í
Keflavík.
Júlíana Rún er Reykvíking-
ur, fædd árið 1965. Hún hefur
stundað nám í píanóleik við
Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar síðan 1979, fyrst
hjá Erni Magnússyni, þá Guð-
rúnu Guðmundsdóttur og
loks síðustu 6 árin hjá Brynju
Guttormsdóttur.
Júlíana er að ljúka prófi frá
Tónskóla Sigursveins í þessum
mánuði. Fyrri hluta prófsins
lauk hún í nóvember 1988 en
þá flutti hún píanókonsert K
488 eftir Mozart ásamt hljóm-
sveit Bústaðakirkju.
Á tónleikunum í kvöld flyt-
ur Júlíana Rún verk eftir
Bach, Beethoven, Alban Berg,
Skrjabin og Chopin.
Áðgangur er ókeypis og öll-
um heimill á meðan húsrúm
leyfir.
Laugardaginn 14. okt. nk.
verða fyrstu laugardagstón-
leikar tónlistarskólans í vetur.
Tónleikarnir eru haldnir
fyrsta eða annan laugardag í
hverjum mánuði og hefjast kl.
13.00. Þar koma nemendur
skólans fram og leika á hin
ýmsu hljóðfæri eða syngja.
Þessir tónleikar taka yfirleitt
innan við klukkustund og er
því lokið fyrir kl. 14.00. Að-
gangur er ókeypis.
Suðurnesjamenn eru hvattir
til að koma ogeiga ánægjulega
stund með nemendum skól-
Bambo b'eWr
Gefbef
Nan 'Pun
barnarFalur
rrroió'k..
39.00
479.00
169.00
156.00
244.00
45-00
0pP(,vo«aW'...74.00
79.00
\NC PaPp'r
E.\dhusr0"ur
rú\'ur •
4 i Pk-
Sparr
jttaeln'
VCtYú
VCtVó'
sjampó
pumPu
I djós
RoVa'
ieWKeK •
'/2 \
H n<
^andsápa
3 S
134.00
116.00
74.00
39.00
38.00
69.00
Slotts stnneP •
S\0tts tómaisósa ••
GevaVta ttatt' ..
Wlaarnó"^^
\-\ausl^eX
..............
^jó'KU^ ......
Hobnobs ke* ■
Homb'esX ........
Hraunbttar stór P*-
/Eðt-bt'ar stór P*-
nar bauntr V2 ds. •
Ora 9reena
0ra 9U' k°rn ........
CooaP^8'6'^ .........'
coee<ioss'ðrpV •••
UbB^................
CooPrekeX.........
Coop ^rernkeX.....
AuKiö
vöru-
útva\
1A7.00
109.00
199-00
248.00
84.00
109.00
109-00
79.00
69.00
144.00
135.00
49.00
96.00
238.00
179.00
84.00
39.00
63.00
U>
Brekkustíg 39 Njarðvík