Víkurfréttir - 12.10.1989, Blaðsíða 20
arhólf á Ströndinni
Síðustu vikur hefur mikið
verið um að ekið væri á rollur á
Reykjanesbraut eftir að dimma
tekur. Hefur þetta komið nokk-
uð spánskt fyrir sjónir, þar sem
á Ströndinni er beitihólf, sem
nú virðist ekki vera í notkun.
Samkvæmt upplýsingum
Theodórs Guðlaugssonar,
smala, slepptu bændur fénu út
úr hólfinu á miðvikudag í síð-
ustu viku. En um það sem hér
er á ferðinni vildi hann ekki tjá
sig.
Vilhjálmur Grímsson, sveit-
arstjóri í Vogum, sagði hins
vegar í samtali við blaðið að
viðkomandi hólf væri gróður-
snautt og því hefði fénu verið
hleypt niður fyrir veg og ofan í
fjöru, en hvers vegna svo-
nefndum vegarollum fjölgaði
vissi hann ekki.
Kindamálin eru í miklum
ólestri, en á sínum tíma átti að
girða meðfram Reykjanes-
brautinni alveg inn í Hafnar-
fjörð. Var búið að mæla fyrir
girðingunni og framkvæmdir
að hefjast er landbúnaðar-
ráðuneytið stöðvaði fram-
kvæmdirnar. Eru málin nú á
erfiðum tímapunkti, að sögn
Vilhjálms.
Um fjármálin á Suðurnesj-
um sagðist Vilhjálmur hafa
sjálfstæða skoðun þar á mál-
um. Vildi hann að samkomu-
lag næðist um að ekki kæmi til
fjölgun, hvorki á fénaði né
bændum. í staðinn fengju lög-
býlin að halda sínum kvóta í 5
ár, en þá tæki við vörsluskylda
enda myndi fénaði þá smá
fækka. Sagði hann þá bændur,
sem stunduðu búfénað, flesta
menn, sem gætu ekki stundað
aðra iðju og því ætti að leyfa
þeim að stunda þetta með skil-
yrðum í fimm ár.
Lögregla og slökkvilið á Melbrautinni í Garði á föstudag.
Ljósm.: epj.
Slökkviliðið
gabbað
fjórum sinnum
Hásetahlut-
ur 300 þús.
Togarinn Aðalvík KIi 95 kom
inn til löndunar á ntánudag. Um
var að ræða fyrstu veiðiferð
skipsins eftir ntiklar breytingar
sem unnar voru á Akureyri og
þar með er skipið orðið að al-
frystiskipi.
V;ir skipið að veiðutn í þrjár
vikur og aflinn 134.4 totin af
frystum og flökuðum þorski,
sem fór beint á erlendan mark-
að. Aflaverðmætið en 27 millj-
ónir 290 þúsund og reiknast
hásetahiuturinn því vera um
294 þúsund krónur.
Símabilanir
í Garði
Þrátt fyrir verkfall rafeinda-
virkja hjá Pósti og síma og
lleiri opinberum aðilum, hefur
símakerfíð á Suðurnesjum
staðist nokkuð vel. Hefur það
komið mest á óvart hvað
gamla símstöðin í Keflavík
hefur haldist inni, en það er
þakkað því hve niikið hefur
verið létt á þeirri stöð/ið und-
anförnu.
Að sögn Björgvins Lúthers-
sonar, símstöðvarstjóra, hafa
nokkur númer fallið út, s.s.
númer er byrja á 271.. í Garði.
En vegna verkfallsins hefur
ekki verið gert við umrædd
númer.
Rokkskemmtun
í Glaumbergi
Fjórum sinnum, með nokk-
urra vikna millibili, hefur slökk-
vilið Brunavarna Suðurnesja
verið gabbað að Melbraut í
Garði. I öll skiptin er það ungl-
ingsstrákur sem hringir undir
nafni, þó aldrei hinu sama, og
tilkynnir rólegri röddu um eld í
húsi, ekki alltaf því sama, við
umrædda götu. Þrisvar sinnum
hefur hann hringt í brunasím-
ann, en á föstudag hringdi hann
í síma lögreglunnar i Keflavík.
I þremur tilfellanna hefur
slökkviliðið farið með látum á
staðinn, en í einu tilfellanna
var bifreið frá Eldvarnaeftirlit-
inu stödd í nágrenni við til-
kynntan eldstað og fór á stað-
inn og gat afturkallað áður en
slökkvibifreið fór af stað.
Þar sem hér getur verið um
mjög hættulegt athæfi að ræða,
t.d. ef slys eða eldur kemur
upp á sama tíma og hluti af
mannskapnum staddur í slíku
útkalli, er nú unnið að því að
ftnna hinn seka. Eru allir þeir
sem gætu gefið einhverjar vís-
bendingar beðnir um að koma
þeim til lögreglunnar.
Hundur
veldur
bílslysi
Stúlka, sem var að hlaupa
undan hundi á Faxabraut á
föstudag, lenti fyrir bíl. Ekki
mun hún hafa slasast alvar-
lega, en var þó flutt til læknis
til öryggis.
Mun stúlkan hafa hlaupið
út á götuna með þeim afleið-
ingum að bifreiðin ók utan í
annan fót hennar. Hundurinn
slapp hins vegar alveg.
Stór hluti þeirra skemmtikrafta er fram koma í sýningunni „Rokk, sviti og pilsaþytur“, sem frumsýnt
verður um helgina í Glaumbergi. Ljósm.: pket.
Ný rokkdagskrá, „Rokk,
sviti og pilsaþytur", verður
frumflutt í Glaumbergi næsta
laugardagskvöld. Þátttakend-
ur í dagskránni eru ekki af
verri endanum, heldur nokkr-
ir af þekktustu söngvurum
þessa lands: Einar Júlíusson,
Anna Vilhjálms, Bjarni Ara og
Guðmundur Hermannsson.
Fjórir dansarar taka þátt í sýn-
ingunni, annars vegar þau Jói
Bach og María og hins vegar
Jón Ólafur og Eydís, en þetta
eru allt kunnir dansarar frá
Auði Haralds.
Boðið verður upp á tvírétt-
aðan kvöldverð en einnig verð-
ur hægt að sjá skemmtunina
án þess að fara í matinn. Að
sögn Vals Á. Gunnarssonar í
Glaumbergi er hér um mjög
skemmtilega dagskrá að ræða
og er verði stillt mjög í hóf, en
með tvíréttuðum kvöldverði
kostar aðeins 2500 kr. inn á
skemmtunina.
1
m ■ 11 s mmm m j. —— m m i
TRÉ : /\
SPÖN PARKET
TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR, IÐAVÖLLUM 7, KEFLAVÍK, SÍMI 14700
MUNDI
Skyldi ekki hafa verið hundur
í bílstjóranum?
Vegarollum fjölgar:
Gróðursnautt beit-