Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.10.1989, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 12.10.1989, Blaðsíða 13
Neytendur - Verðkannanir Þrjár Suðurnesjabúðir með hagstæðara verð Birtar hafa verið niðurstöð- ur úr fyrstu verðkönnun Neyt- endafélags Suðurnesja. Nær könnunin yfír hæsta og lægsta verð á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Það var verð á hreinlætisvörum sem kannað var. I niðurstöðum könnunar- innar kemur fram að Suður- nesjaverslanir eru lægri í verð- um í átta tilfellum af tuttugu, þegar borið er saman hæsta verð á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Þrjár verslan- ir á Suðurnesjum bjóða jafn- framt hagstæðari verð en þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu. Eru það verslunin Staðarkjör í Grindavík, sem býður lægsta verð á Gillette raksápu, versl- un Kaupfélags Suðurnesja í Garði, sem býður ódýrustu handsápuna og Hagkaup, sem hefur á boðstólum ódýrasta ÍVA þvottaefnið. Þegar borin eru saman hæstu verð á höfuðborgar- svæðinu og á Suðurnesjum kemur í ljós að munurinn á milli verða er yfirleitt sáralítill og sama kemur í ljós þegar lægstu verð eru borin saman og því standa Suðurnes nokk- uð vel að vígi. Odýr búsáhöld Verðlagsstofnun hefur sent frá sér verðkönnun á 24 tegund- um búsáhalda, sem gerð var í 33 verslunum á Reykjavíkursvæð- inu og út um allt land. Þrjár Suðurnesjaverslanir eru í könn- uninni, þ.e. Hagkaup, Fitjum, Samkaup og Stapafell. Athygli vekur að í mörgum tilfellanna er ódýrara að versla hér syðra en t.d. í verslunum í Hótel Kristína endurreist Eigendur Hótels Kristínu í Njarðvík, fjölskylda Steindórs Sigurðssonar, hafa á ný tekið við rekstri hótelsins. Hótel- stjóri er Helga Steindórsdótt- ir. Hófu þau reksturinn að nýju nú í upphafl vikunnar og hefur aðsóknin verið mjög góð það sem af er. Mun reksturinn verða með svipuðu sniði og hann var, áður en hótelið var leigt Hótel Keflavík. Síldá Fisk- markaönum Fiskmarkaður Suðurnesja mun á komandi síldarvertíð bjóða upp á þá þjónustu að taka síld í umboðssölu, líkt og gert var á síðustu vertíð, að sögn Fiskifrétta. í fyrra voru seld 2500 tonn á vegum markaðar- ins og sagði Olafur Þór Jó- hannsson, framkvæmdastjóri FMS, í samtali við Fiskifréttir að þessi nýbreytni líkaði vel. Hefur kynningarbréf á þess- ari þjónustu Fiskmarkaðar Suðurnesja hf. nú verið sent öllum útgerðarfélögum sem gera út síldarbáta á komandi vertíð og þeim aðilum sem hyggjast frysta síld á vertíð- inni. Þar er tekið sérstaklega fram að ekki er um uppboðs- markað að ræða, heldur yrði síldin seld í samræmi við Verð- lagsráðsverð. Reykjavík þ.m.t. í Kringlunni. Þó að í örfáum tilfellum megi finna ódýrari verslun í Reykja- vík. I tveimur tilfellum er þó dýrasta varan á Suðurnesjum og í jafnmörgum tilfellum er lang ódýrasta varan á landinu hér á Suðurnesjum. Dýrustu vörurnar á Suður- nesjum, miðað við könnun þessa, eru Lancier vatnsglas, 27 cl, sem fæst ekki í Samkaup eða Hagkaup en kostar 75 kr. í Stapafelli, og Thermos hita- kanna model 90-100, sem fæst í Samkaup á 1.359 kr. I báðum tilfellunum, þar sem ódýrast er að versla á Suð- urnesjum, er um Thermos hitabrúsa að ræða. Tegund 11 fæst í Hagkaup, Fitjum, á 699 kr. og tegund 21 fæst í Stapa- felli á 998 kr. G Haust- tilboð 25% útborgun, eftirstöðvar vaxtalaust í 12-18 mánuði Volvo 245 GL station árg.’83, sjálfsk., ek. 94 þ.590.000 Ch. Monza ’87, sjálfsk., ek. 46 þús. 590.000 M. Benz 200 árg.'82, sjálfsk., ek. 110 þús. 590.000 M. Benz 250 árg.’80, ek. 128 þús. 570.000 Opel Ascona árg.’80, sjálfsk., toppl., ek. 60 þ. 590.000 Ford Sierra 2.0 árg.’83 V6, ek. 75 þús. 490.000 Subaru Hatchb. 4X4 árg.’83, ek. 91 þús. 280.000 Ch. Malibu V6 sjálfsk. árg.’79, ek. 141 þús. 170.000 AMC Concord árg.’80, sjálfsk., ek. 128 þús. 190.000 Ch. Chevette árg.’80, ek. 33 þús. 190.000 Ch. Nova Concorse árg.’77, ek. 120 þús. 120.000 BMW 320 árg.’82, ek. 110 þús. 390.000 t kvöld, fimmtudag. ili BfLASALAN Grófin 8, Keflavík. Sími 14690 - 14692. _________13_ Vikurfréttir 12. okt. 1989 Nærföt ódýrust í Öldunni og Paloma Verðlagsstofnun hefur gert verðkönnun á nærfatnaði í 48 verslunum víða um land. Kemur þar fram að verð á umræddum vöruflokkum er mjög gott á Suðurnesjum í samanburði við t.d. Reykjavík, þar sem það er yfirleitt mikið hærra en hér á svæðinu. I könnun þessari varskoðað verð á 15 vörutegundum 1 um- ræddum vöruflokki í Sam- kaup, Rósalind, Öldunni, Pal- óma og Rún. Virðist vöruverð- ið vera nokkuð jafnt í þessum Suðurnesjaverslunum, þó kemur Palóma, Grindavík, best út og á raunar lægsta verðið á landinu í einu tilfelli. Þar er um að ræða Hugson sokkabuxur, figur slip glanz, sem fást á 216 krónur í um- ræddri verslun. Þá kemur Ald- an, Sandgerði, einnig allvel út úr skoðun þessari, þó báðar þessar verslanir eigi það sam- eiginlegt að vera ekki alltaf lægstar Suðurnesjaverslana. ÁTAK í LÍKAMSRÆKT Frjáls mæting í allt. Þú getur byrjað hvenær sem er. mam Sarkort veitir þér aðgang að þrektœkja- sal, erobikktímum og sauna. EROBIKK BRENNSLUKERFI LÍTIÐ HOPP EROBIKK með lóðum og stól fyrir hresst fólk sem vill mikinn árangur sameinar styrkingu og brennslu. PULTIMAR HITI - SVITI - STUÐ - PUÐ Þrektæjasalur Persónuleg ráðgjöf Ingvar Guðmunds- iþróttakennari. son Brekkustíg 39, Sími 14828. Opið i hédeginu kl. 11.30-13.30 og frá 16-22 mánud.-föstud. - Opið laugard. frá kl. 10-16.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.