Víkurfréttir - 12.10.1989, Blaðsíða 19
IÞROTTIR
Már til Svíþjóðar
„Það er mjög góð aðstaða til
æfinga og keppni í Svíþjóð og
mikil samkeppni. Svíar eiga
mikið af góðu frjálsíþrótta-
fólki,“ sagði Már Hermanns-
son, einn okkar bestu lang-
hlaupara, en hann fór ásamt
unnustu sinni, Sigurbjörgu Jó-
hannesdóttur, til Gautaborgar í
Svíþjóð sl. laugardag.
,,Það hefur lengi verið
draumur hjá mér að fara er-
lendis til æfinga og keppni. Eg
hef ekki ákveðið enn hvaða
félag ég geng í en líklegast
verður það Möndal. Öll að-
staða er til fyrirmyndar í
Gautaborg, nýleg íþróttahöll
og svo er mjög gott að hlaupa
úti, hlaupastígar og garðar úti
um allt.“
Annar íslenskur hlaupari,
Brynjólfur Hilmarsson, sem
býr í Gautaborg, mun aðstoða
Má og Sigurbjörgu til að koma
sér fyrir en þau hafa hug á að
Már Hermannsson
fá sér vinnu en skoða jafn-
framt námsmöguleika í Svía-
ríki.
Firma- og hópa-
keppni UIVIFK
Fyrirhugað er að halda hina ár-
legu firma- og hópakeppni
U.M.F.K. í knattspyrnu i íþrótta-
húsi Keflavíkur dagana 21. og 22.
okt. nk.
Breyting verður á þessari
keppni þar sem fyrirtæki og hópar
geta skráð sig til þátttöku og þá
jafnvel að tvö fyrirtæki sameinist í
eitt lið.
Fyrirkomulag keppninnar verð-
ur þannig að liðum verður skipt í
riðla. I hverjum riðli verða fjögur
lið og leika allir við alla í riðlinum.
Leiktími verður 2x8 mín.
Þátttökutilkynningar verða að
berast fyrir þriðjudaginn 17. okt.
nk. til Gísla Jóhannss. í síma
14472 og/eða 13044 (símsvari).
Gefa þarf upp nafn á forráða-
manni, hvað fyrirtækið/hópurinn
heitir og símanúmer.
Sölvi Stefánsson hefur tek-
ið við formennsku í hand-
knattleiksráði ÍBK. Honumtil
halds og trausts eru Atli Þor-
steinsson, varaformaður, og
Dagmar Róbertsdóttir, sem
mun halda utan um fjármálin
hjá deildinni.
Úrvalsdeildin í körfu - Úrslit:
Spenna í Grindavlk
Grindvíkingar unnu Keflvík-
inga í æsispennandi hörkuleik í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik sem
fram fór í Grindavík á þriðjudags-
kvöldið. Heimamenn voru sterk-
ari á lokasprettinum og Jeff Null
skoraði 3ja stiga körfu þegar 10
sek. voru til leiksloka og tryggði
liði sínu sigur. Annars voru það
Keflvíkingar sem voru með for-
ystu mest allan leikinn, mcst 14
stig, 57:43, en í leikhléi varstaðan
38:33 fyrir ÍBK.
Stig ÍBK: Guðjón Skúla 26,
Magnús Guðf. 12.
Stig UMFG: Guðmundur Braga
23, Jeff Null 18.
Erfitt hjá Reynismönnum
Reynismenn töpuðu fyrir Val i
úrvalsdeildinni í körfuknattleik á
þriðjudagskvöldið 72:90. í hálf-
leik höfðu Valsmenn yfir 41:23.
Gestirnir voru með yfirhöndina
allan tímann og unnu öruggan sig-
ur. Stigahæstir Reynis voru David
Grissom 21, og Sveinn Gíslason 18.
Fjör í Njarðvik
Það var mikið fjör í Njarð-
víkum þegar heimamenn
fengu Tindastól í heimsókn,
sem skartar tveimur fyrrum
Njarðvíkingum, þeim Val
Ingimundarsyni og Sturlu Ör-
lygssyni. UMFN knúði fram
sigur á lokamínútunum eftir
að Tindarnir höfðu leitt mest
allan seinni hálfleikinn. Liðið
skartaði nýjum Kana, Patrick
Releford, sem skoraði 31 stig
og var góður. Teitur Örlygs-
son skoraði 22 stig. Hjá
UMFT skoruðu Valur Ingi-
mundarson 37, Bo Heyden 33
og Sturla 13.
Létt hjá Grindvíkingum
hléi 42:35. Stigahæstur Reynis
var David Grissom með 26 stig
en Guðmundur Bragason hjá
UMFG með 23.
Grindvíkingar unnu örugg-
an sigur á Sandgerðingum í
Grindavík á sunnudaginn,
91:66, eftir að hafa leitt í leik-
Gott hjá
ÍBK
gegn
ensku
meisturunum
Úrvalsdeildarlið Keflvík-
inga stóð sig vel í seinni Evr-
ópuleik sínum gegn Bracknell
Tigers frá Englandi í íþrótta-
húsi Keflavíkur sl. fimmtu-
dagskvöld. Bretamir sigruðu
106:91 en minnstur var mun-
urinn 8 stig. Ungu mennirnir í
Keflavíkurliðinu sýndu ensku
meisturunum enga miskunn
og stóðu sig sérlega vel, þó
enginn eins og Falur Harðar-
son sem átti frábæran leik.
Falur Harðarson fylgist með ó-
vejulegum tilþrifum eins enska leik-
mannsins. Ljósm.: hbb.
Víkurfréttir
12. okt. 1989
Ragnar í atvinnumennsku á ný
mér vel“, sagði
Ragnar Margeirsson hélt til
Austurríkis í síðustu viku þarsem
hann mun leika með 1. deildar lið-
inu SK Sturm Graz. Samningur
Ragnars hljóðar upp á 10 leiki, eða
til jóla, með möguleika á áfram-
haldi. „Mér líst vel á þetta og von-
andi gengur
Ragnar.
Ragnar hefur leikið sem at-
vinnumaður með tvcimur liðum í
Belgíu, Gent og Watarschei, og
tveimur þýskum liðum, Hom-
burg og 1860 Munchen.
Guðjón Hauks fékk utanlandsferð
Hinn mikli pílukastari,
Guðjón Hauksson, bar sigur
úr býtum á mánudagsmóti
Píanóbarsins í pílu. Annar
varð Kristinn Þór Kristinsson,
þriðji Friðrik Jakobsson og
fjórði Eggert Jónsson. Sigur-
launin í mótinu voru utan-
landsferð, auk kvöldmáltíðar
fyrir tvo á Píanóbarnum.
Kristinn Þór Kristinsson
fékk einnig viðurkenningu
fyrir að verða fyrstur íslend-
ingatil aðfara501 á 13pílum, í
sumar, en Guðjón undi
honum það ekki lengi og jafn-
aði metið viku síðar.
v'émmr
Gunnar
Willard
Gunnar Vilbergsson heldur
sigurgöngunni áfram en hann
fékk 6 rétta gegn 4 hjá Rúnari
Lúðvíkssyni í síðustu umferð.
Gunnar leitar á önnur mið að
þessu sinni og skorar á skip-
stjóra úr Grindavík, Willard
Ólason, Grímseying með
meiru og aflakló, og aðila að
einu stærsta ftskvinnslufyrir-
tæki á Suðurnesjum, Fiska-
nesi. „Úr því hann Gunnar er
að skora á mig, þá verður hann
dreginn í land. Þessi spá mín
dugar örugglega á hann,“
sagði Willard, léttur í bragði.
Gunnar er nú með í þriðja
skiptið en nú er bara að sjá
hvort skipstjórinn, sem er al-
vanur tippari, slái hann ekki
út...
G W
Arsenal-Man.City 1 1
Charlton-Tottcnham 2 X
Coventry-Nott.For. X 2
Derby-C.Palace 1 X
Everton-Millwall 1 1
Luton-Aston Villa X 1
Norwich-Chelsea 1 1
Q.P.R.-Southampton X 1
Wimbledon-Liverpool 2 X
Brighton-Watford 1 X
Portsmouth-Blackburn X 1
Sheff.Utd.-West Ham 1 1
Borðtennis-
þjálfari
Ungmennafélag Keflavíkur auglýsir eftir
borðtennisþjálfara fyrir borðtennisdeild
félagsins. Frekari upplýsingar gefur fram-
kvæmdastjóri félagsins í síma 14472 og
13044.
Firma- og hópakeppni
í innanhússknattspyrnu
Fyrirhugað er að halda hina árlegu firma-
og hópakeppni UMFK í knattspymu í
íþróttahúsi Keflavíkur dagana 21. og 22.
okt. nk.
Breyting verður á þessari keppni þar sem
fyrirtæki og hópar geta skráð sig til þátt-
töku og þá jafnvel að tvö fyrirtæki samein-
ist í eitt lið. Þátttökugjald er kr. 5.500.
Þátttökutilkynningar verða að berast fyrir
þriðjudaginn 17. okt. nk. til Gísla Jóhanns í
síma 14472 eða 13044 (símsvari). Gefa þarf
upp nafn á forráðamanni, hvað fyrirtækið/
hópurinn heitir og símanúmer.
UMFK