Víkurfréttir - 26.10.1989, Blaðsíða 2
2
KANGAROOS
KULDASKÓRNIR KOMNIR
Kuldaskór m/riflás stærðir 30-41, kr. 3.790.
Kuldaskór reimaðir, stærðir 30-46, kr. 3.980.
Histerik leðurkuldaskór, klassískir, kr. 4.790.
Folia barnaúlpur, stærðir 2-16, frá kr. 4.980.
Hummel úlpur, stærðir S-EL, kr. 4.980.
Hummel úlpur, stærðir 10-16, kr. 4.490.
New Sport dúnúlpurnar væntanlegar í nóv.
Litir: Rautt, kóngablátt og start. Erum byrjuð
að taka niður pantanir.
Sportbúð ÓSKARS
Hafnargötu 23 - Simi 14922
TQLVUPflPPIR
sem er sniðinn fyrir
allt atvinnulíf Suöumesja.
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
Eflum atvinnulíf hér
Ekki flytja það í bu
GRÁGÁS HF.
Vallargötu 14 - 230 Keflavik
Simar 11760, 14760
Eina prentsmiðjan
á Suðurnesjum, sem
framleiðir tölvupappir.
Fréttir
Yíkurfréttir
26.okt.1989
Samtök bæja- og héraðsfréttablaða stofnuð:
Páll Ketilsson
fyrsti formaður
Fyrsta stjórn samtakanna. F.v. í fremri röð: Þórhallur Ásmunds-
son, Ólafía Gísladóttirog Páll Ketilsson formaður. Aftari röð f.v.:
Guðmundur Ingi Jónatansson og Sigurður Sverrisson. Ljósm.: epj.
Fulltrúar frá tuttugu og
tveimur bæjar- og héraðsfrétta-
blöðum víðs vegar af landinu
komu saman til fundar að Hótel
Loftleiðum síðasta laugardag.
Tilgangur fundarins var stofn-
un samtaka fyrir umrædd blöð.
Var mikil samstaða á fundinum
sem lauk með stofnun samtak-
anna og síðan ráðstefnu um ým-
isleg sameiginleg hagsmuna-
mál.
Sem fyrr segir voru það 22
blöð sem gerðust stofnaðilar
að samtökum þessum, en sam-
eiginlega gefa þau út blöð í 45
þúsund eintökum á viku. Af
blöðum á Suðurnesjum mættu
fulitrúar Víkurfrétta og
Reykjanessins á fundinn.
Þriggja manna aðalstjórn og
tveggja manna varastjórn,
skipuð fulltrúum víða að af
landinu, var kjörin. Á fyrsta
fundi stjórnarinnar, sem hald-
inn var á mánudag, skiptu
menn með sér verkum.
Kom það í hlut Páls Ketilsson-
ar, Víkurfréttum, að gegna
stöðu formanns. Ritari er Sig-
urður Sverrisson, Skagablað-
inu, Akranesi, meðstjórnandi
Ólafía Gísladóttir, Eystra-
horni, Höfn, og varamenn eru
Þórhallur Ásmundsson,
Feyki, Sauðárkróki, og Guð-
mundur Ingi Jónatansson,
Bæjarpóstinum, Dalvík.
Stjórnarfundurinn var að
ýmsu leyti all merkilegur þvi
hann var haldinn samtímis á
fimm stöðum á landinu, þ.e.
Keflavík, Akranesi, Sauðár-
króki, Dalvík og Höfn. Var
þar notast við þá þjónustu sem
Póstur og sími býður upp á í
formi símafunda.
Fulltrúar blaðanna er stofnuðu samtökin. Suðurnesjafulltrúarnir
eru Halldór Leví Björnsson (í miðri fremstu röð), Páll Ketilsson er
2. frá vinstri í 3. röð og Emil Páll Jónsson er 3. frá vinstri í sömu
röð. Þessi með skeggið lengst til hægri í 1. röð er raunar Suður-
nesjamaður einnig, Guðni Kjærbo hjá Hafnfirska fréttablaðinu.
Ljósm.: Árni S. Árnason, Skagablaðinu
Gott framtak
Gerðaskóla-
krakka
Krakkar úr öllum bekkjum
Gerðaskóla í Garði sýndu af
sér mjög gott frumkvæði nú á
dögunum. Á degi fatlaðra, sem
var nú nýverið, tóku Gerða-
skólakrakkarnir sig saman og
gáfu alla sína vasapeninga þann
dag til Þroskahjálpar á Suður-
nesjum.
Þegar hver einasta króna og
aur hafði verið fengin úr vös-
um allra nemenda skólans,
reyndist upphæðin vera 16.700
krónur. Fóru fulltrúar nem-
enda með upphæðina til
Þroskahjálpar og afhentu
hana formlega.
Fulltrúar Þroskahjálpar á
Suðurnesjum vilja koma á
framfæri kæru þakklæti til
allra nemenda Gerðaskóla fyr-
ir þetta skemmtilega framtak.
Það er gott til þess að vita að
það má eyða vasapeningunum
í fleira en sælgæti...
STÆRSTA FRETTA-OG AUGLYSINGABLAÐIÐ A SUDURNESJUM
Utgefandi: Víkurfréttir hf. ------------------
Afgrei&sla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, símar 14717,15717, Box 125, 230 Keflavík. - Rltstjórn: Emil Páll
Jónsson, heimas. 12677, bílas. 985-25916, Páll Ketilsson, heimas. 13707, bilas. 985-25917. - Fréttadeild: Emil Páll
Jónsson, Hilmar Bragi Bárðarson. - Auglýsingadeild: Páll Ketilsson. - Upplag: 5600eintök sem dreifterókeypisum
öll Suðurnes. - Aöili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaöa og Upplagsettirliti Verslunarráðs. - Eftirprentun,
hljóöritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getiö.
Setning, filmuvinna og prentun: GRÁGÁS HF., Keflavik