Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.10.1989, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 26.10.1989, Qupperneq 16
16 Handa þeim sem eiga allt Tek að mér að gera vatnslitamyndir fyrir einstaklinga og félagasamtök, einnig teikningar. Gefið öðruvísi gjafir. Pantanir í síma 27315 á kvöldin. Bragi Einarsson. KEILUBÆR Meistarakeppni Suðurnesja í keilu. Para- keppni 2/11 kl. 19.00. Keppni einstaklinga hefst 6/11 kl. 19.00. Tunglskinsmót 27/10 kl. 23.00. Munið JC-mótið laugardaginn 28/10. Láttu sjá þig. KYNNINGARFUNDUR Hvað veist þú um JC? JC Suðurnes heldur kynningarfund í sal Meistarafélags byggingamanna á Suður- nesjum, Hólmgarði 2, í kvöld kl. 20.30. Allir þeir sem áhuga hafa á að kynna sér starfsemi félagsins velkomnir. Stjórnin Litla leikfélagið Garði Halló leikhúsáhugafólk! Þið sem áhuga hafið á að vera með á nám- skeiði í leikrænni tjáningu og framsögn, þá gefst ykkur gullið tækifæri til þess nú. Mánudaginn 30. október hefst þetta nám- skeið hjá L.L. og verður í Grunnskólanum Garði. Leiðbeinandi verðurSigrún Björns- dóttir. Námskeiðið verður tvö kvöld í viku, mánud. og miðvikud. frá kl. 20 til 23 og stendur til 11. nóvember. Þátttökugjald er 1000 kr. Þátttaka tilkynnist í síma 27315 á kvöldin til sunnud. 29. október. Hættum þessu hangsi, slökkvum á imb- anum og drífum okkur í skemmtilegt og þroskandi félagslíf. Allir velkomnir frá 15 ára aldril!!! ATH. námskeið fyrir yngri en 15 verður eftir ára- mot Stjóm L.L. Garði Björgunarmál Víkuifréttir 26. okt. 1989 Grindavík og Sandgerði: Vanvirða björgunartæki Svona var unihorfs við bryggjuna í Grindavík. Hvers eiga þeir að gjalda sem þurfa að nota stigann á suður- garðinum í Sandgerðishöfn, of- an við bátarennu björgunar- bátsins? Til að komast að stig- anum eða úr honum, ef menn eru að koma í land, þarf að klöngrast yfír járnadrasl sem brennt var burtu af Herði h.f. við yfirbygginguna á Reyni GK 177. Kom þetta vel í ljós er björg- unarbáturinn Sæbjörg lagðist að stiganum með veikan sjó- mann aðfaranótt mánudags- ins. Vonandi taka viðkomandi aðilar sig nú saman í andlitinu og koma í veg fyrir slíkt tillits- leysi við björgunartæki, eins og umræddur stigi svo sannar- lega er. Sjómaður hafði samband við blaðið vegna fremur lélegs ástands björgunartækja við bryggju þá í Grindavíkurhöfn sem ýmist gengur undir nafn- inu „Gosi“ eða „Villi“. Um er að ræða bryggju þá sem byggð var í kjölfar eldgossins í Vest- mannaeyjum 1973. Kom fram hjá umræddum sjómanni að björgunarhringir fínnast ekki á bryggjunni og væru fremur í fjörunni. Þá Aldraðir hvetja styrkt- armeðlimi Styrktarfélag aldraðra á Suðurnesjum hefur ákveðið að minna styrktarmeðlimi sína á gíróseðlana sem sendir hafa verið út. En nú fer í hönd myndarlegt vetrarstarf félags- ins og er raunar hafið. Útskálakirkja Sunnudagaskólinn verður kl. 11.00. Nýtt efni verður kynnt. Sunnudagaskólinn úr Njarðvíkum kemur í heimsókn og tekur þátt í samverunni. Hjörtur Magni Jóhannsson Hvalsneskirkja Sunnudagaskólinn verður í grunn- skólanum í Sandgerði kl. 14.00. Nýtt efni verður kynnt. Hjörtur Magni Jóhannsson hafði hann lýsingar sem ekki voru prenthæfar, um ástand mála. Sökum þessa fórblaðið í vettvangskönnun í síðustu viku og þar kom því miður fram að lýsingarnar voru rétt- ar. Það eina sem ekki var rétt var að björgunarhringurinn var ekki í fjörunni heldur hékk hann í bandi niður á milli við sjávaryfirborðið. Sést þetta á meðfylgjandi myndum. Von- andi sjá rétt yfirvöld um að koma málinu í lag, eins og sjó- maðurinn sagði er hann lauk frásögn sinni. Draslið við bryggjustigann umrædda í Sandgerðishöfn. Ljósm.: epj. Beitningamenn Óska eftir beitningamönnum á 65 tonna bát, beitt í Keflavík. Uppl. ísíma 15262 og 37605. ATVINNA Laxeldisfyrirtæki óskar eftir starfskrafti. Uppl. í síma 46753 á daginn.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.