Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.10.1989, Page 19

Víkurfréttir - 26.10.1989, Page 19
ÍÞRÓTTIR Rúnar vill breytingar Allar líkur eru á því að Rúnar Lúðvíksson gefi kost á sér áfram sem formaður knattspyrnuráðs ÍBK á komandi ári. Hann hefur þó sett fram ýmis skilyrði til að svo geti orðið og fela þau í sér breyt- ingar á starfsemi ráðsins og fleira. „Eg tel að það þurfi að afmarka meira starfsemi knattspyrnuráðs, m.a. með því að ráðið haldi sína aðalfundi og skili njðurstöðum síðan á ársþingi ÍBK. Á þessu for- mannsári mínu hef ég víða rekið mig á, einungis vegna þess að starfsemin er ekki nógu afmörkuð. Þessu vil ég breyta," sagði Rúnar Lúðvíksson. Haukur þjálfar Grindvíkinga Haukur Hafsteinsson hefurver- ið ráðinn þjálfari 2. deildar liðs Grindvíkinga í knattspyrnu fyrir næsta keppnistímabil. Haukur er ekki óþekktur í Grindavík, því þar hefur hann þjálfað í alls 6 ár, en hann hefur einnig þjálfað lið IBK og Víðis og fleiri lið með góðum ár- angri. Undir'stjóm Hauks varð 2. flokkur Vals íslandsmeistari á síð- asta tímabili. GUNNAR AFRAM FORMAÐUR UMFG Gunnar Vilbergsson helur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður knattspyrnudeildar UMFG, en hann hafði lýst því yfir að hann vildi hætta. „Það er gott að starfa fyrir félagið og ég er ánægður með ráðningu Hauks sem þjálfara," sagði Gunnar. Leik- mannamál verða að öllum líkind- um óbreytt að öðru leyti en því að Siguróli Kristjánsson hefurgengið til liðs við sitt gamla félag á ný, Þór á Akureyri. ÞORSTEINN ÖLAFS- SON MEÐ (BK _________19 Víkuifréttir 26.okt. 1989 Það á áreiðanlega eftir að vera hörð og mikil barátta í 2. dcildinni í knattspyrnu næsta sumar, Suðurnesjadeildinni, eins og margir kalla hana. Þrjú lið héðan munu leika í deildinni og Keflvíkingar hyggjast styrkja liðið með austan- tjaldsmönnum. Myndin er úr leik Víðis og ÍBK síðasta árið sem Víðir var í 1. deildinni. Ljósm.: mad. KNATTSPYRNAN: Tveir austantjalds- leikmenn til ÍBK Keflvíkingar ætla að fá tvo Júgóslava eða Pólverja til að styrkja lið sitt í 2. deild „Það er ekkert launungarmál að við ætlum að styrkja liðið til að það eigi sem mesta möguleika á að kom- ast aftur upp í 1. deild. Hugmyndin er að reyna að fá tvo leikmenn frá Júgóslavíu eða Póllandi," sagði Rúnar Lúðvíksson, formaður knatt- spyrnuráðs IBK, í samtali við blað- ið. Keflvíkingar féllu, sem kunnugt er, niður í 2. deild á liðnu sumri og hyggjast ekki dvelja þar lengur en árið. En það gæti orðið erfitt því 2. deild verður mjög sterk á næsta ári með tvö önnur góð Suðumesjalið innanborðs, Víði og Grindavik. Að sögn Rúnars Lúðvíkssonar hefur reynslan af júgóslavneskum leikmönnum hér á landi verið góð, en bæði Víkingur og Þór hafa haft , júgga" í sínum herbúðum. Þessir leikmenn búa við svipaðar aðstæð- ur og gerast hér á landi. Þeir þurfa að stunda sína atvinnu í sínu heimalandi og aðal málið er því að útvega þeim vinnu og húsnæði. Ekki er vitað til þess að neinar ,,hræringar“ séu i leikmannahópi ÍBK og flestallir, sem voru með í sumar, verða áfram, að því er best er vitað. Þorsteinn Ólafsson, fyrrum markvörður ÍBK, landsliðsins, IFH Gautaborgar og fleiri liða, er númer eitt á óskalista Keflvíkinga sem þjálfari liðsins fyrir næsta keppnis- tímabil. „Þorsteinnhefuráhugaáað taka við starfinu. Það eina sem stendur í vegi fyrir því er að hann fái atvinnu við sitt hæfi," sagði Rúnar Lúðvíksson, formaður knattspyrnu- ráðs. Á leikmannafundi ÍBK fyrir nokkru tóku leikmenn þessu vel og lýstu yfir ánægju sinni með Þorstein sem næsta þjálfara. W> vtómmr Gunnar Vilbergsson var að- eins örfáum mínútum frá því að detta út í getraunaleiknum. Úrslit voru ráðin í 11 fyrstu leikjunum af 12 á seðlinum og allt stefndi í sigur West Ham á Port Vale. En Gunnar var ekki á því að gefa sig og sendi hug- arorku til Port Vale-manna sem jöfnuðu leikinn á síðustu mínútunum, og Gunnar jafn- aði leikinn við Pál Björnsson, andstæðing sinn, um leið. Báð- ir fengu 5 rétta, enda frekar mikið um óvænt úrslit á síð- astaseðli. „Ég hélt að Páll væri að ganga frá mér og var hér um bil farinn að sætta mig við Gunnar Páll tap,“ sagði Gunnar, sem nú tippar í fimmta skipti og er þar með kominn með örugga for- ystu í getraunaleiknum. Höllustaða-Páll segir hins veg- ar hálfnað verk þá hafið er, „og því lýkur um næstu helgi" sagði Páll V. Bjömsson.... G. P. Arsenal-Derby 1 1 Aston Villa-C.Palace 1 X Charlton-Coventry X 2 Chelsea-Man.City 1 1 Man.Utd.-Southampton 1 1 Millwall-Luton X 1 Norwich-Everton 2 X Nott.For.-Q.P.R. 1 1 Sheff.Wed.-Wimbledon 2 1 Bradford-Leeds 2 2 Middlesbro-W.B.A. X 2 Watford-Sheff.Utd. 2 X KÖRFUKNATTLEIKUR: Stefndi í sigur Reynis! • Grindvíkingar steinlágu fyrir Vesturbæjarliðinu KR í körfunni um helgina. Reykja- víkurliðið skoraði 79 stig gegn 63 Grindvíkinga. Mikill hraði, sem Grindvíkingar réðu ekki við, einkenndi leikinn. Er það mál manna að Grindvíkingar hafi verið „siappir" í leiknum og þeir röndóttu því aldrei í hættu. T.a.m. náðu Grindvík- ingar ekki að koma knettinum í körfu andstæðingsins á sjö mínútna kafla í síðari hálfleik. • Það munaði ekki miklu að Reynismenn myndu fara með sigur af hólmi í viðureign sinni við Njarðvíkinga í Iþróttamið- stöðinni í Sandgerði á sunnu- dagskvöldið. Njarðvíkurstrák- arnir höfðu þó betur á loka- sprettinum og mörðu 4ra stiga lokamun. Sandgerðingar voru yfir í leikhléi 39:37. • Að endingu keppti Keflavík við Tindastól fyrir norðan og var leikurinn jafn allt til loka og skiptust liðin á að halda forystunni. Framlengja þurfti leikinn og þá höfðu Keflvík- ingar betur og sigruðu með 101 stigi gegn 100. Urslitaleikur Liverpool og Everton í Sandgerði Sunnudaginn 22. október 1989 var haldið í íþróttahús- inu í Sandgerði hið árlega „Styrktarmót fyrirtækja“. Fyrirkomulag mótsins var með þeim hætti að börn í 5. og 6. flokki félagsins kepptu fyrir hönd fyrirtækja sem skráð voru í keppnina. Börnunum var skipt í sem jöfnust lið og fékk hvert lið nafn einhvers frægs liðs, t.d. Liverpool, Ar- senal, Man. Utd. o.sv.frv. Þessi lið kepptu síðan fyrir hönd fyrirtækjanna í útsláttar- keppni. Eftirtalin fyrirtæki tóku þátt í mótinu og styrktu þar með unglingastarfíð hjá Reyni: Aldan, Arney h.f., Drifás, Guðjón Olafsson málari, Jón Erlingsson h.f., Jón og Óli múrarar, Kaupfélagið, Lands- bankinn, Miðnes h.f., Njáll RE, Rafverk h.f., Tros s.f., Sparisjóðurinn, Sportbúð Óskars, Veiðibær, Vitinn, Samvinnuferðir/Egill Ólafs- son og Vátryggingafélag Islands útibúið Sandgerði. Keppnin hófst kl. 10:00 og lauk um þrjúleytið. Til úrslita léku Liverpook fyrir hönd Njáls R.E. og Everton fyrir Landsbankann. Fjörugum leik lauk með sigri Liverpool og tók skipstjórinn á Njáli RE, Hjörtur Jóhannsson, við far- andbikarnum til varðveislu fram að næsta móti. Unglingaráð k.s.d. Reynis vill nota tækifærið og þakka þeim aðilum sem styrktu mót- ið.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.