Víkurfréttir - 23.11.1989, Síða 1
STÆRSTA FRETTA - OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
46. tölublað 10. árgangur
Fimmtudagur 23. nóvember 1989
Gluggar í jólabúning
Greiösluerfiö-
leikar hjá
Fiskeldi
Grindavíkur
Fiskcldi Grindavíkur, sem
fyrir ári síðan var samcinað
Eldi h.f., a nú í greiðsluerfið-
ieikum líkt og ntörg önnur Fisk-
eldisfyrirtæki licr um slóðir.
Hefur fyrirtækið því sent út bréf
til lánadrottna fyrirtækisinsþar
sem málin eru skýrð.
Kentur l'ram að stjórn Fisk-
eldis Grindavíkur vilji forðast
greiðslustöðvun og komast hjá
gjaldþroti og gera allt sem í
hennar valdi sé til að standa
lánadrottnum reikningsskil,
Fara þeir því fram á afskrift
áfallinna vaxta langtímalána
og komandi vaxta næstu tvö
ár, auk þess sent lánin lengist
unt þann tíma.
Þá fara þeir fram á að
skammtímalánadrottnar aft-
urkalii löginnheimtur næstu
þrjá ntánuði. Telja þeir að inn-
an þriggja mánaða verði það
ljóst hvort fyrirtækið verði að
taka til gjaldþrotaskipta eða
ekki.
Fiskmarkaður
í Sandgerði
Fiskmarkaður Suðurnesja
mun opna við Sandgerðishöfn
um áramót. Sigurður Bjarna-
son, hafnarstjóri, sagði í sam-
tali við blaðið að markaðurinn
hefði fengið aðstöðu í gömlum
húsum frá Rafni hf. er standa
við höfnina.
Um gólfmarkað verður að
ræða að sögn Sigurðar, en afl-
inn verður þó boðinn upp frá
Keflavík. Mun ntikil hagræð-
ing skapast við opnun mark-
aðarins í Sandgerði, þannig að
ekki þarf óþarfa flutninga á
hráefni ntilli byggðarlaga.
Góða síldin
fór í bræðslu
Fimmtíu og sjö1 tonnuni af
síld úr Barðanunt GK var ekið í
bræðslu fvrir helgina. Jafn-
framt var íandað 76 tonnurn úr
Gauknunt á fimmtudag og tæp-
um 13 tonnum úr Þuríði Haíl-
dórsdóttur til frystingar. Restin
af aflanuitt var latulað í Hafn-
arfirði.
Starfsmaður hafnarvogar-
innar í.Grindavík sagði í sam-
tali við blaðið að mörgum síld-
arsaltendum væri farið að líða
illa vegna þess hversu lítið
gengur að sertija við Rússa.
„Loksins þegar þeim tekst að
ná samningum við Sovétmenn
þá verða'síldarbátarnir okkar
búnir meðsíldarkvótann ogþá
verður lítið liægt að salta,“
sagði viðntælandi blaðsins að
endingu.
Verslunareigendur á Suður-
nesjunt hafa verið að þjófstarta
jólaundirbúningnunt, ef svo
ntá að orði komast, þvi nú
hefur hver jólaskreytingin á
fætur annarri verið sett upp í
gluggum vcrslana.
Meðfylgjandi Ijósmynd var
tekin í gegnunt glerið á rit-
fangaversluninni Nesbók við
Hafnargötu í Keflavík eftir
helgina. Þar hefur „jólaglugg-
inn“ verið settur upp og er að
flestra mati stórskemmtilegur.
Fyrir þá sem ætla að telja dag-
ana til jóla, þá er I dag einn
mánuður og einn dagur til
jóla. Ljósm.: hbb
Stórútflutningur
Allt útliterfyrirútllutningá
íslenska spónaparketinu frá
Trésmiðju Þorvaldar Olafs-
sonar hf„ svonefnda TRE-X
spónaparketinu, í verulegum
mæli til Evrópulanda á næsta
Að sögn Þorvaldar Ólafs-
sonar hefur nú þegar verið selt
talsvert til Færeyja og prufu-
sendingar farið til nokkurra
landa. Þá hafa nokkrar hús-
gagnaverslanir í Þýskalandi
keypt spónaparketið til að
Itafa á gólfum sýningarsala
sinna.
TRÉ-X Itefur tekið þátt í
nokkrum sýningum erlendis á
árinu, í Köln, Kaupmanna-
Itöfn og París og ltafa komið
margar fyrirspurnir í kjölfar
þeirra, sem og pantanir.
Liggja nú fyrir pantanir sem
verða staðlestar á næstunni
fyrir tugi ntilljóna króna. „I
upphafi árs var sköpuð sú
stefna að taka þátt í 3 sýning-
um. Þá hefur verið unnið
ntarkvisst að markaðssetningu
erlendis allt þetta ár og
áætlunum fylgt til ltins itrasta
og ntá segja að árangur af
þessu starli sé nú að konta i
ljós. Þetta er auðvitað ntikið
hagsmunamál fyrir okkur. Ef
þetta tekst, verður Itægt að ná
enn frekari nýtingu á ntann-
skap og vélunt, auk þess sem
lleiri atvinnutækifæri munu
skapast", sagði Þorvaldur.
Sala á spónaparketi hefur
einnig aukist verulega hér á
Betra atvinnuástand
Að sögn Guðrúnar Ólafs-
dóttur, varaformanns Verka-
lýðs- og sjómannafélags Kefla-
víkur og nágrennis, fækkaði á
atvinnuleysisskrá í síðustu viku
um 50 manns. Er það miðað við
félaga í því félagi, en síðasta
föstudag komu þó vottorð um
atvinnuleysi hjá 109 ntanns í
Keflavík, Njarðvík, Höfnum og
Vogum.
Sagði hún að kvenfólkið
hefði helst farið í síldarvinnu
og karlmennirnir til íslenskra
aðalverktaka. Þá á hún von á
að á næstunni fækki enn á skrá
er tvö frystihús hefja starfsemi
fyrst í síld og síðar meir í al-
mennri frystingu. Eru þetta
Jökulhamrar, sem Einar
Leifsson rekur í gamla Jökli,
og Víkurfrost sem Birgir Her-
mannsson o.fl. reka þar sem
R.A. Pétursson var áður til
ltúsa í Njarðvík.
á spónaparketi
landi og nýtur vaxandi vm- sögn Þorvaldar. Parketiðernú
sæælda, enda sýnt að það selt i byggingavöruverslunum
stenst allar gæðakröfur, að um allt land.
Versntiðjuhús Trésmiðju Þorvaldar Ólafssonar. Þar er framleitt
hið vinsæla spónparket. Talsvert hefur verið selt af því til Færeyja
og cinnig hafa húsgagnaverslanir í Þýskalandi keypt parkctið ásýn-
ingarsali sína. Ljósm.: pkct.
13 útgerðarfélög
með meðallaun
yfir 150 þús. kr.
Drífa í stjórn Atvinnu-
tryggingasjóðs
Forsætisráðherra hefur
skipað Drífu Sigfúsdóttur sem
stjórnarmann í stjórn Atvinn-
utryggingasjóðs útflutnings-
greina. Kemur skipun þessi til
vegna óska stjórnarandstöðu
um fjölgun I stjórninni um þrjá
fulltrúa, sem þeir síðan nýttu
sér ekki.
Frjáls verslun birti nýlega
athyglisverðar upplýsingar um
fyrirtæki hér á landi frá síðasta
ári. Séu Suðurnesjafyrirtækin
dregin út úr kemur í ljós að 22
fyrirtæki greiddu meira en
1475 þúsund í meðallaun á síð-
asta ári, þar af voru útgerðar-
13 að tölu. Eitt þeirra,
.f„ sem gerði út Jöfur
KE, var í þriðja sæti yfir land-
ið.
Þá kemur í ljós að af 11
hæstu fyrirtækjum landsins
hvað hagnað varðar eru tvö á
Suðurnesjum. Þegar mesta
veltan er skoðuð kemur í ljós
að 13 Suðurnesjafyrirtæki
veltu á síðasta ári meira en 138
milljónum króna. Nánar kem-
ur þetta í Ijós á síðu 14 i blað-
inu í dag.