Víkurfréttir - 23.11.1989, Side 8
8
molar-,
Fíflalæti flugvallar-
slökkviliðs
Árshátíð flugvallarslökkvi-
liðsins var nýlega haldin í
Stapanum. Vöktu slökkviliðs-
mennirnir athygli umheimsins
á árshátíðinni með þeim fífla-
skap að hafa slökkvibíl með
bláum blikkljósum blikkandi
utan við Stapann. Eins sást til
ferða umrædds slökkvibíls í
farþegaflutningum án blikk-
ljósanna. Það athæfi að við-
hafa logandi blikkljós framan
við Stapann er slökkviliðinu til
stórskammar og gróft uppá-
tæki sem vart er hægt að líða.
Eða hvað með árshátíð lög-
reglunnar og sjúkrahússins ef
viðkomandi röðuðu bílaflota
með logandi bláum blikkljós-
um utan við samkomustaðinn.
Svona uppátæki er ekki hægt
að láta óátalið.
Fjölmiðlaruglingur...
Nokkuð hefur borið á því í
einstaka fjölmiðlum að þeir
taki nefndarsamþykktir sem
samþykkt mál. Hið rétta erað
nefndarálit, t.d. bæjarstjórna,
öðlast ekki gildi fyrr en bæjar-
■ grín ■ gagnrýni
vangaveltur ■
’;umsjón:*emil páll.*#
stjórn hefur samþykkt. T.a.m.
er samþykkt umferðarnefndar
út af einhverju aðeins undir-
búningsvinna fyrir bæjar-
stjórn, sem síðan getur frestað
máli eða jafnvel fellt, alveg
eins og samþykkt. Oðlast sam-
þykkt nefndarinnar gildi ef
bæjarstjórnin samþykkir, ann-
ars fellur hún niður eða frest-
ast.
... og embættisklúður
Þá vill það nokkuð brenna
við að menn sem rætt er við séu
rangt titlaðir. T.d. var ljós-
vakamiðill sem ræddi um að-
stoðaryfirlögreglustjóra í
Keflavík og annar ræddi um
Karl Hermannsson lögreglu-
stjóra. Þá hefur nýlega birst
frétt höfð eftir Þóri Marons-
syni yfirlögreglustjóra í blaði
einu. Þessir titlar eru allir
rangir, því þeir eru aðstoðar-
yfirlögregluþjónn og yfírlög-
regluþjónn. Lögreglustjórinn
er hins vegar bæjarfógetinn og
sýslumaðurinn Jón Eysteins-
son.
Að fylgjast með
Slysavarnasveitirnar á Suð-
urnesjum voru á föstudags-
Vegna mikillar aðsóknar verða
aukasýningar á söngleiknum
Gretti laugardaginn 25. nóv-
ember og sunnudaginn 26.
nóvember.
Frábær skemmtun fyrir alla
fjölskylduna, sem þú mátt
ekki missa af...
Aðgangseyrir er kr. 1000. 50% af-
sláttur til 12 ára og yngri og 67 ára
og eldri.
Miðasala frá kl. 19:00 sýningar-
dagana.
Leikfélag Keflavíkur
kvöld ekkert að bíða eftir út-
kalli eftir að ljóst var að leit var
hafin að báti á Faxaflóa. Held-
ur fóru sjálfar og tóku þátt í
leitinni í samráði við höfuð-
stöðvarnar í Reykjavík. Eru
dæmi um að t.d. Garðsveitin
hafi verið komin með menn
niður í fjöru aðeins 10 mínút-
um eftir að fréttir bárust.
Raunar áttu Víkurfréttir þar
hlut að máli, því þær komu
boðum áleiðis eftir að hafa
heyrt um atburðina í gegnum
talstöðvarsambönd. Er það
ekki í fyrsta sinn sem blaðið
verður til þess að björgunar-
sveit tekur skjótt við sér eins
og hér var á ferðinni.
Brotnar I-Iistinn upp
í frumeiningar sínar?
Því hefur verið fleygt að Al-
þýðubandalagið hyggist bjóða
fram sér lista í Garðinum í
komandi sveitarstjórnakosn-
ingum. Sá ílokkur hefur fram
að þessu fylgt krötum og
frömmurum á svonefndum I-
lista. Hvort síðarnefndu flokk-
arnir bjóða fram er óljóst
ennþá, en þó er talið líklegt að
kratar láti sitt ekki eftir liggja.
Fer Járnblendiverk-
smiðjan í fiskinn?
Borist hafa fregnir af því að
Jónas Snorrason, sem rak
Pítubæ, sé nú kominn á fullt í
undirbúning að vinnslu á fiski
af fiskbeinum. Yrði framleiðsl-
an eitthvað í líkingu við rétt
sem vinsæll er í Japan og er
einskonar Fiskfille. MunJárn-
blendiverksmiðjan standa að
baki fyrirtæki þessu, sem ann-
að hvort verður staðsett í
Garðinum eða í húsnæði Bald-
urs h.f. við Hrannargötu í
Keflavík.
Feluleikur
bæjarstjórnar...
Það má furðu sæta hvað
bæjarstjórn Keflavíkur reynir
mikið að komast hjá umræðu,
eða er klaufaleg í aðgerðum.
15. nóv. kom hún saman til
fundar fyrir luktum dyrum til
að fjalla um D-álmuna. I boð-
un var rætt um að hér væri á
ferðinni fundur bæjarráðs með
öllum varamönnum þ.e. þeim
bæjarfulltrúum sem ekki eru í
bæjarstjórn. Var fundurinn
haldinn á fundarstað bæjar-
ráðs en ekki bæjarstjórnar.
Allir viðstaddir höfðu fullt
málfrelsi og skrifuðu undir
fundargerðina sem í fundar-
boði næsta bæjarstjórnarfund-
ar hefur verið nefndur bæjar-
stjórnarfundur en ekki bæjar-
ráðsfundur.
... hvað voru
þeir að fela?
En hvað voru þeir að fela og
af hverju boðuðu þeir ekki til
venjulegs bæjarstjórnarfund-
ar á venjulegum fundarstað?
Sá grunur læðist að mönnum
að þeir hafi ekki viljað hafa
áheyrendur, s.s. blaðamenn,
sem greint gætu frá einstökum
skoðunum manna í málinu. Sá
grunur hefur m.a. verið rædd-
ur á fleiri stöðum. Sé þetta rétt,
staðfesta þeir að það sé ekki
aðeins að þeir lesi ekki heima,
þeir þora ekki lengur að bæjar-
búar viti hver skoðun þeirra er
á einstökum málum.
Ótvíræður aug-
lýsingamáttur
Þeir voru ekki í vafa, að-
standendur Samkaups, að
auglýsingamáttur Víkurfrétta
væri ótvíræður. Því síðasta-
föstudag og raunar föstudag-
inn þar áður líka, var ösin í
búðinni það mikil að helst líkt-
ist því sem gerðist á Þorláks-
messu.
Lokum bara
hafnarkjaftinum
Það voru skrítin ummæli
sem einn embættismanna fjár-
málaráðuneytis viðhafði á
fundi með Keflvíkingum og
Njarðvíkingum á dögunum, er
verið var að ræða afhendingu
Landshafnarinnar. Heima-
menn vilja að ríkið greiði með
höfninni vegna lélegs ástands
hennar, en þau mál hafa lítið
þokast. Lét þá umræddur em-
bættismaður hafa það eftir sér,
að ef samningar næðust ekki
fyrir áramót, ,,þá látum við
strengja keðju fyrir hafnar-
kjaftinn og setjum á hana skilti
er á stendur LOKAГ. Þetta
er boðskapur fjármálaráðu-
neytis til Keflvíkinga og
Njarðvíkinga í málinu.
Skemmtanalífið
vinsælt...
Það hlýtur að teljast meiri-
háttar vinsælt að starfa á
skemmtistöðum miðað við
þann fjölda er sendi inn skrif-
legar umsóknir um störf við
nýja veitingastaðinn að Hafn-
argötu 30 í Keflavík. Eigi færri
en milli 70 og 80 sóttu um störf
þau cr auglýst voru hér í blað-
inu fyrir skemmstu. Að vísu
spila atvinnuhorfur sjálfsagt
eitthvað inn í þennan fjölda.
... Óskar og Guðmund-
ur í toppstöðum
Þegar, og það áður en um-
ræddar stöður voru auglýstar,
var ráðið í tvær toppstöður á
hinum nýja veitingastað. Yfir-
kokkur verður Guðmundur
Friðriksson, sem rekið hefur
Fitjaborg á Fitjum en varáður
bæði á Brekku ogGlóðinni. Þá
hefur Óskar Ársælsson verið
ráðinn yfirþjónn, en hér er um
sama Óskar að ræða og rak
Brekku og fleiri staði hér í eina
tíð og var nú síðast á Flug
Hóteli.
Róstusamur fundur
í Garðinum
H-listinn í Garði ræddi
framboðsmál á fundi sínum á
mánudag. Var fundurinn
nokkuð róstusamur á köflum,
en þar komu fram ný nöfn í
framboðsmálum fyrir kom-
andi sveitarstjórnarkosningar.
Var það t.a.m. nafn Ólafs
Kjartanssonar og eins gaf virt-
ur hæstaréttarlögmaður, bú-
settur í Garði, kost á sér á list-
ann.
Moli frá Ella . . .
Við birtum yfirleitt ekki að-
sendar greinar í Molunum
okkar, en stundum þó. Þetta
er ein undantekningin, og gæti
kallast aðsendur Moli ig er
hann frá Elíasi Jóhannsyni,
sem hefur verið orðaður við
ýmsa pólitíska flokka og sem
kandídat þeirra í næstu sveit-
arstjórnarkosningum. En
gefum Ella orðið: ,,Eg hef
verið, er og mun verða heit-
bundinn Sjálfstæðisflokknum.
Mínar langanir eru allar í þá
veru, að Sjálfstæðisflokkurinn
verði áfram sterkasta aflið í ís-
lenskum stjórnmálum . . .
Þar hafið þið það.
Vikurfréttir
23. nóv. 1989
Klukkan
tifar...
Fallegar spegla-
klukkur á góðu
verði kr. 2.198,-
Speglaflísar í
miklu úrvali
Ferkantaðar súlur
dtopinn
Hafnargötu 90 Sími 14790