Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.11.1989, Page 18

Víkurfréttir - 23.11.1989, Page 18
18 Pílukasttitillinn til Sandgerðis: KRISTINN MEISTARI Kristinn Þór Kristinsson úr Sand- gerði varð Islandsmeistari í karla- flokki í pílukasti 1989 og Kolbrún Tóbíasdóttir varð i öðru sæti í kvennaflokki, en lcikið var til úr- slita í Reykjavík um síðustu helgi. Kristinn sigraði Guðjón Hauks- son úr Grindavík í úrslitaleiknum nokkuð óvænt, en sýndi með f'rá- bærum leik að Islandsmeistaratign hans var engin tilviljun. En þess má geta að Guðjón var þarna að tapa sínum íýrsta leik í mótinu en Kristinn fór rólega afstað, en þeg- ar hann sló Islandsmeistarann frá ’88 út í 8 manna úrslitum (Pétur Hauksson, bróðir Guðjóns), varð ekki aftur snúið og hann tók titil- inn til Sandgerðis en Grindvíking- ar hafa unnið til hans undanfarin þrjú ár. Þó Kristinn hafi leikið vel í úr- slitaleiknum lék liann þó betur í undanúrslitunum gegn Oskari Þórmundssyni, en þar náði hann m.a. 16, 17 og 19 pílum en meðal- tal atvinnumanna í íþróttinni er á bilinu 16-18 pílur i „501“, þannig að stutt er í það að við förum að eiga menn í „heimsklassa". Kolbrún byrjaði nokkuð vel í úrslitaleiknum í kvennaflokki, vann fyrsta legginn en tapaði næstu fjórum og Anna Kristín Bjarnadóttir, Reykjavík, varð fyrst kvenna íslandsmeistari í pilukasti. Úrslitin fóru fram 1 Sport- klúbbnum nýja í Reykjavík og var úrslitaleikurinn hjá körlunum sýndur beint í ríkissjónvarpinu og fannst þvi mönnum leikið nokkuð vel miðað við að ætíð er talið erfitt að leika undir „augum" mynda- vélanna. ..Dúndur” frá IBK? Ársþing Í.B.K. verður hald- ið um næstu helgi og þá verða reikningar Knatlspyrnuráðs afgreiddir. Á þessari stundu höfum við ekki nokkrar áhyggjur af því. Viðerum farin að hugsa til næsta starfsárs. Laugardaginn 2. desember nk. byrjar fjáröflun okkar fyr- ir næsta starfsár með ,,Dúnd- urmarkaði” að Iðavöllum 3, Keflavík. Þar er ætlunin að selja nýja og notaða muni á hlægilegu verði. Ef þú, lesandi góður, getur hugsað þér að leggja knatt- spyrnunni lið og þú liggur með nýtilega hluti í bílskúrnuni eða á háaloftinu, sem þú að sjálf- sögðu ert hættur að nota, þá er ekki annað að gera en slá á þráðinn í síma 12730. Við erum við símann á fimmtudags- og föstudags- kvöldið frá kl. 18.00 til 21.00. Auðvitað komum við um hæl og losum þig við hlutina. Með fyrifrant þökk fyrir góðar undirtektir. Knattspyrnuráð I.B.K. ENN JAFNIR t&p v\fcm mr Gunnar Ólafur Getraunaleikurinn er að verða eins ogframhaldssaga. ÞeirGunn- ar Vilbergsson og Olafur Jónsson gerðu þriðja .-.stórmeistarajafn- teflið” I röð I síðustu leikviku og rcyna því með sér 1 fjórða skiptið. Þeir fengu báðir 6 rétta. Gunnar er búinn aðsetja nýtt met í getrauna- leiknum, er nú að> tippa í níunda skiptið t röð. „Hann fær ekki meiri séns. Þetta vcrður lokaumferðin harts,“ sagði Ólafur um andstæð- ing sinn, Gunna, sem sagðist nokkuð viss um að Ólafur myndi liggja í þetta skiptið... G. O. Núrnberg-B.Mitnchen 2 2 Charlton-Man.City 1 1 Coventry-Norwich 1 X Man.Utd.-Chelsea 1 1 Nott.For.-Everton 1 1 Q.P.R.-Millwall 1 1 Sheff.Wed.-C.Palace 1 1 Southampton-Luton I 1 Tottenham-Dgrby 1 1 Wimbledon-Aston Villa X 2 Blackburn-West Ham 1 X Newcastle-Sheff.Utd. 2 X Víkurfréttir 23. nóv. 1989 llluti Itins stórskemmtilega frjálsíþróttahóps, sem æfir reglulega í Keflavík. Ljósmyndir: hbb. Auknar vinsældir frjálsíþrótta Eins er sú íþrótt sem I gegn- um tíðina hefur notið mikilla vinsælda en hin síðustu ár hef- ur fallið í skuggann af bolta- íþróttunum. Sú íþrótt er hér um ræðir eru frjálsíþróttir. í Keflavík er þó lítill hópur ungs fólks sem kappkostar að halda uppi merkjum þessara íþróttagreina og æftr stíft, bæði í Myllubakkaskóla og íþróttahúsinu í Keflavík. í for- svari fyrir þessum hópi er Linda Björk Ólafsdóttir og annast hún þjálfun. „Það er erfitt að fá fólk til að halda þessum íþróttagreinum uppi, en við gerum tilraun til að rífa þetta upp. Við tókum þátt í Meistaramóti Islands fyrir 14 ára og yngri á Selfossi nú nýverið og árangurinn var framarlega, þó svo engin verð- laun hafi unnist,” sagði Linda í samtali við blaðamann. Fram kom í viðtali við Lindu að nú vantar tilfinnan- lega fólk til æftnga með félag- inu, en það er UMFK sem stendur að frjálsíþróttaæfig- stendur að frjálsíþróttaæfing- unum. „Okkur vantar íþróttafólk frá 10 ára aldri en það er góður aldur til að hefja æfingar í þessum íþróttagreinum.” Tvær ungar frjálsíþrótta- dömur, þær Bergjind Bjarna- dóttir og Jóna S. Ágústsdóttir, æfa reglulega með UMFK. Aðspurðar um ástæður þess að þær æfðu frjálsíþróttir sögðu þær að þetta væri gaman og auk þess þeirra áhugamál. fleiri krakkar sem æfa frjáls- íþróttir? ,,Það virðist sem fólk sé hrætt við einstaklingsíþróttina og einnig hefur karfan, fót- boltinn og handboltinn stolið senunni. En þetta er mjög góð- ur félagsskapur sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara,“ sagði Linda Björk að endingu. Fyrir þá sem áhuga hafa á að byrja æfingar í frjálsum, þá eru æfingar í Myllubakka- skóla mánudaga kl. 21-22:40 í flokki 14 ára og eldri; þriðju- dagakl. 18:30-20:10 íflokki 13 ára og yngri. Á fimmtudögum er æft í íþróttahúsinu í Kefla- vík kl. 17-18:20 í flokki 14ára og eldri og einnig æfa allir flokkar á laugardögum milli kl. 13:30 ot? 16. Jóna Ágústsdóttir Bcrí»lind Bjarnadóttir ðli Gott til UMFG? Allar líkur bentu til þess að Ol- afur Gottskálksson myndi leika sinn fyrsta leik með úrvalsdeildar- liði IBK á sunnudaginn gegn UMFG. En þaðsemgeturhugsan- lega komið í veg fyrir það er að hann hefur verið orðaður við lið Grindavíkur. Olafur hefur aðeins leikið einn leik með B-liði ÍBK, þannig að ef af félagaskiptum yrði myndi hann verða löglegur með UMFG 1 janúar nk. „Við fréttum að Ólafur hefði áhuga á að koma til Grindavíkur Kvennagolf í Leiru Kvenkylfingar ætla að hitt- ast í Golfskálanum í Leiru föstudaginn 1. des. kl. 20.30. Konurnar ætla að ræða um ár- angur síðasta sumars. Jóla- glögg og piparkökur verða á boðstólum. Konurnar geta tekið pútterinn með til að halda púttinu við. og þess vegna ræddi ég við hann og spurðist fyrir um áhuga hans á fél- agsskiptum, en við buðum honum ekki gull og græna skóga,” sagði Margeir Margeirsson, formaður körfuknattleiksdeildar UMFG 1 samtali við blaðið í gær um þetta mál. Ekki náðist í Ólaf Gottskálks- son en ónefndur Keflvíkingur sagði við blaðið að það væri for- kastanlegt að „bjóða í“ leikmenn á miðju keppnistímabili. Voga Þróttur í íslandsmótið Ungmennafélagið Þróttur í Voguni hefur ákveðið að senda lið til þátttöku í íslandsmótinu í knattspyrnu á næsta sumri. Kemur þetta fram í nýútkomnu fréttabréfi Þróttar. Eru þegar byrjaðar fjáraflanir meðal fél- aga Þróttar og munu krakkar úr 5. flokki ganga í hús annan hvern þriðjudag í vetur og safna einnota gosdrykkjaumbúðum. Úrvalsdeild: Toppslagur á suhnudag Körfuboltinn fer aftur að skoppa á fjölum iþróttahúsanna um helgina eftir Bandaríkjaför landsliðsins. Á sunnudaginn mæt- ast nágrannarnir ÍBKogUMFG í Iþróttahúsi Keflavíkur og hefst leikurinn kl. 20. Áheitadripl lands- liðsstúlkna Stúlkurnar í kvennalandsliðinu i körfuknattleik ætla scr að safna áheitum hér á Suðurnesjum unt helgina, en stúlkumar halda utan til þátttöku í Evrópumóti smáþjóða í körfuknattleik 2. desember. Landsiið kvenna skipa þrjár stúlkur er leika með Suðurnesja- liðtim og einnig tvær aðrar dömur frá Suðurnesjum. Ætla stúikurnar að dripla bolta frá Reykjavík til Njarðvíkur 3. desember. en þá fer frant leikur Njarðvíkur og Þórs i Njarðvik. Það verða Suðurnesjastúlkurn- ar sem munu ganga í hús hcrsyðra og vonast þær til að vel verði tekið á móti sér.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.