Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.11.1989, Qupperneq 19

Víkurfréttir - 23.11.1989, Qupperneq 19
Fréttir 19 Tveir ungir strákar, Jóhann Davíð Albertsson (t.v.) og Gústav Helgi Haraldsson, héldu nýlega hlutaveltu til styrktar Sjúkrahúsi Keflavíkurlæknishéraðs. Varð ágóðinn kr. 790. Ljósm.: pket. Almennur félagsfundur Iðnsveinafélag Suðurnesja heldur almenn- an félagsfund mánudaginn 27. nóvember nk. í húsi félagsins kl. 20:30. Fundarefni: Kynning á lífeyrissjóðsréttindum og starfsemi Lífeyrissjóðs Suðurnesja. STJÓRNIN AÐAL- FUNDUR Austflrðingafélags Suðurnesja verður haldinn í húsi Iðnsveinafélags Suðurnesja, Tjarnargötu 7 (neðri hæð), Keflavík, sunnudaginn 26. nóvember nk. og hefst kl. 14:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. Önnur mál. Félagar mætið vel. Nýir félagar, Austfirðingar, mak- ar þeirra og afkomendur velkomnir. STJÓRNIN Atvinnuleyfi til leigubifreiðaaksturs Auglýst er eftir umsóknum um atvinnuleyfi til leigubifreiðaaksturs á félagssvæði bif- reiðastjórafélaganna Fylkis og Freys á Suð- urnesjum, sbr. reglugerð 308/1989. Umsóknum skal skila til formanns umsjón- arnefndar, Sigmars Ingasonar, Þórustíg 10, Njarðvík, fyrir 31. desember 1989. Umsjónarnefnd leigubifreiða á Suðurnesjum. Tölf í fanga- geymslu Mjög annasöm hclgi var hjá lögreglunni í Keflavik. Fimm ökumenn voru teknir fyrir meinta ölvun við akstur. Einn bílþjófnaður upplýstist þegar lögreglan stöðvaði ölvaðan ökumann. Jafnframt hafði sá hinn sami valdið árekstri á höfuðborgarsvæðinu. Fjögur umferðaróhöpp urðu, öll án teljandi meiðsla og tólfmanns fengu gistingu í fangageymsl- um lögreglunnar. Ungir fíkni- efnaneytendur handteknir Lögreglumenn höfðu hendur í hári tveggja ungra fíkniefna- neytenda aðfaranótt föstudags- ins síðasta. Var um að ræða tvo drengi, 16 og 18 ára gamla. Voru þeir bæði með efni og tilheyrandi tól. Þá fékk lögreglán einnig til- kynningu um að fíkniefnasali hefði boðið ungum drcng efni til sölu á Hafnargötu í Kefla- vík. Var hinn grunaði tekinn til yfirheyrslu en reyndist ekki hafa nein efni meðferðis, en hins vegar með pípu til reyk- ingar á kannabisefnum. Beitingafólk Óskum aö ráða beitingafólk. Upplýsingar í síma 13675. Beitingamenn Beitingamenn óskast. Stafnes hf. Sími 13450 og 11069 Starf hjá Vatns- leysustrandarhreppi Ákveðið hefur verið að auglýsa eftir starfs- manni fyrir Vatnsleysustrandarhrepp. Um er að ræða 1/1 dags starf sem að hluta til er hús- og gangavarsla í Stóru-Vogaskóla og að hluta umsjón með öðrum eignum og verkefnum hreppsins (vatnsveitu, götum, höfn o.fl.) eftir því sem til fellur. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Vatnsleysustrandarhrepps, Iðndal 2 (opið þriðjudaga kl. 9-16 og miðvikudaga-föstu- daga 9-12.30). Skriflegum umsóknum skal skila á skrifstofu hreppsins fyrir 1. des. nk. Sveitarstjóri Keflavíkurbær auglýsir til sölu eða leigu fasteignirnar að Grófinni 2 (Dráttarbraut Keflavíkur). Hægt er að gera tilboð í eignirnar í heild eða að hluta, hvort sem er til kaups eða leigu. Einnig er óskað eftir kauptilboðum í ýmsar vélar og tæki til járnsmíða sem eru á staðnum. Tilboðum skal skilað á bæjarskrifstofu Keflavíkur, Hafnar- götu 12, fyrir kl. 15:30, mánudaginn 4. des. 1989, merkt ,,Gróf- in“. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Eignirnarverðatil sýnis mánudaginn 27. nóv. frákl. 13:00- 17:00. Nánari upplýsingar veitir bæjarverkstjóri í síma 92- 11552. Atvinnuhúsnæði - Keflavík BÆJARSTJÓRI

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.