Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.1991, Page 6

Víkurfréttir - 08.05.1991, Page 6
6 A beininu Umsjón: Emil Páll Yíkurfréttir 8. maí 1991 + Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa PÁLS SVEINSSONAR Miðleiti 3, Reykjavík tiiuðrún Kristjánsdóttir börn, tengdabiirn, barnabörn og barnabarnabörn. Flugukast- kennsla Fyrirhugað er að halda námskeið í fluguköstum ef næg þátttaka fæst. Upplýsingar í símum 15489 (Vilhjálmur) og 68372 (Vilberg) Stangveiðifélag Keflavíkur Atvinna 1. Iþróttaráð leitar að starfsmanni til að veita forstöðu íþrótta- og leikjaskóla er starfræktur verður í júní og júlí. Tilvalið starf t.d. fyrir kennara eða fóstru. 2. Einnig óskast leiðbeinendur til starfa við skólann. Umsóknarfrestur er til 17. maí. Upplýsingar gefur Jón Jóhannsson, í íþrótta- húsi Keflavíkur, sími 11771. íþróttaráð Tilboð í brottflutning húss Tilboð óskast í kaup og brottflutning á afgreiðslu- húsi Sérleyfisbifreiða Keflavíkur sem stendur á lóðinni við Hafnargötu 12. Húsið skal fjarlægt fyrir 1. júlí nk. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð sendist skrifstofu S.B.K. fyrir kl. 17, föstudaginn 17. maí nk. Franikvæmdastjóri Þakkir Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og gjafir á 70 ára afmæli mínu 29. apríl sl. Guð blessi ykkur öll. Guöný Kjartansdóttir „Hef aldrei haft verki vegna ráðherraveiki" -Karl Steinar Guðnason, alþingismaður á beininu um átök um ráðherralista Alþýðuflokksins o.fl. Mikill kurr liefur verið ineðal ýmsra frá því að ákveðinn var ráðherralisti Alþýðuflokksins í samsteypu- stjórninni með Sjálfstæðis- l'lokki á dögunum. I>að seni veldur óánægjunni er að á síðustu stundu hati verið hætt við að gera Karl Steinar Guðnason að félagsinálaráð- herra, eins og margir for- ystumenn hiifðu lagt til. Var strax á fundi llokk- stjórnar Alþýðullokksins mikil ólga vegna málsins, en þar seni menn vildu ekki fella formanninn og allan ráð- herralistann, greiddu aðcins 14 atkvæði nióti ráðherra- listanum. Sú tala segir þó engan veginn hver stemm- ingin var á fundinum. En hvað er á ferðinni og hvers vegna misstum við Suð- urnesjamenn nú af því að l'á í fyrsta skipti ráðherra. Til að fá svör við þessu og öðru sem kcmur upp í hugann, fengum við Karl Steinar Guðnason á beinið. Nú halöi formaður Al- þýðutiokksins farið fram á það að þú tækir að þér fé- lagsmálaráðuneytið og Iniið var að handsala aðstoðar- mann. Hvað gerðist? „Samkvæmt hugmyndum Jóns Baldvins, hafði hann ætlað Jóhönnu Sigurðardóttur, heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neylið. A síðustu stundu neitaði hún að færa sig til.“ Milli manna hefur verið sagt að Jóhanna Sigurðar- dúttir hafi ekki uiinið i sam- ráði við aðila vinnumarkað- arins, seni félagsinálaráð- herra, en þar liefur þú góð tengsl og vitað cr að þaðan kom þrýstingur á að þú fcngir starnð. Er hægt að horfa fram h já slíku? „Framundan er mjög við- kvæmur lími, vegna gerðar nýrra kjarasamninga og því nauðsynlegt að taka á því máli með festu. Ég efa ekki að áratuga reynsla mín á þessu sviði hefði komið launþegum og ríkis- stjóminni að gagni. Þeir sem horfa fram hjá slíku, taka vissulega á sig mikla ábyrgð." Ert þú þá ckki svekktur með niðurstöðuna? „Ég hef aldrei haft verki vegna ráðherraveiki. Ég varð var við ótrúlega mikinn stuðn- ing við að ég gegndi þessu starfi. Sá stuöningur kom alls- staðar af landinu. Ég tel mig Iíka hafa haft meirihluta í þing- flokknum. Hinsvegar finn ég til sárinda vegna vinnubragðanna sem einkennast af hroka og hof- móði.“ Hvers? „Það er gott veðriö úti.“ Verður það ekki vont fyrir ríkisstjórnina að vera ekki í tengsluni við aðila vinnu- markaðarins? „Ríkisstjóminni er nauð- synlegt að vera í nánum tengsl- um við aðila vinnumarkaðarins. Jafnvægi í efnahagsmálum með lágri verðbólgu og stöðugu verðlagi er nauðsynlegt fyrir þjóðina, ekki síst þá verst settu í þjóðfélaginu. Ég vona að rfk- isstjóminni takist vel í þeim efnum. Þar verða allir að leggja sig fram“. Sagan segir að forysta flokksins sjái nú að hér hafi oröiö injög slæm mistök og þú hafir pálmann í höndum hvað varöar formcnnsku í nefnd- um og ráöuin flokksins. Er það rétt? „Það kemur í ljós.“ Hefur þú hugleitt hvort þú grípir til einhverra liefnd- araðgerða vcgna þessa? „Nei. það hef ég aldrei hug- lcitt. Samstaða jafnaðarmanna á Suðurnesjum er mikil. Við vilj- um ekki vinna á neikvæðan hátt, en segjum félögum okkar hreint út þegar okkur mislíkar. Það kemur dagur eftir þennan dag“. Veist þú hvers vegna Suð- urnesjamenn eiga svona erfitt uppdráttar á framboðslist- um. Þú ert sá eini sem liefur veriö í öruggu sæti? „Styrkur og samstaða Al- þýðutlokks á Suðurnesjum er gífurlega mikill. Ég á einnig fylgi mjög víða í kjördæminu. Ég hef notið þess.“ Hver er skoðun þín á sér- stöku Suðurnesjakjördæmi? „Sérstakt Suðumesjakjör- dæmi yrði fjölmennara en Vesturlandskjördæmi, Vest- fjarðakjördæmi, Norðurlands vestra- og Austurlandskjör- dæmi. Auðvitað kemur það sterklega til greina. Aðalatriðið er að jafna kosn- ingaréttinn. Þá verðum við ekki settir skör lægra en aðrir lands- menn.“ Sagt er að þú sért yfirlýs- ingaglaður þingmaður, en jafnframt mikill kafbátur. Hvað segir þú um þær full- yrðingar? „Það er svo margt sagt um menn, bæði satt og logið. Mjög margir segja að ég forðist fjöl- miðla. Þegar ég reiðist niisrétti, spillingu og ranglæti hneigist ég til að nota sterk lýsingarorð. Þeirsem þekkja mig best vita að ég er fjarri því að vera það sem þú nefnir 'kafbátur’. En það fylgir starfi alþingisnianns að þeir segi frá því sem þeim sýn- ist. Ég tek því með mikilli rósemi. vegna þess að ég hef góða samvisku,'* voru lokaorð Karls Steinars Guðnasonar á beininu.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.