Víkurfréttir - 08.05.1991, Síða 8
8
Kirkja
Keflavíkurkirkja:
Sunnudagur 12. maí:
Messakl. 14 (altarisganga). Sr. Arni
Pálsson, Borg á Mýrum, prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt sóknar-
presti. Kórar Borgarnes- og Kefla-
víkurkirkju syngja. Eldri borgurum
boðið til kafftdrykkju í Kirkjulundi
eftir messu.
Sóknarprestur
Kristið samfélag
Túngötu 12
Samkoma sunnudagskvöld kl.
19.30.
Ytri-Njarvíkurkirkja:
Fimmtudagur 9. maí:
Uppstigningadagur:
Guðsþjónusta í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju kl. 14. Eldri borgurum boðiö
til kaffidrykkju í safnaðarheimilinu
eftir guðsþjónustu. Kór Keflavík-
urkirkju syngur. Organisti Einar
Örn Einarsson.
Föstudagur 10. maí:
Jarðarför Eyjólfs Vilmundssonar,
Þórustíg 26, Njarðvík, fer fram kl.
14-
Olafur Oddur Jónsson
Systra- og bræðrafélag
Keflavíkurkirkju
Næsti fundur verður mánudaginn
13. maí, kl. 20.30 í Kirkjulundi.
Víkurfréttir - þar er
auglýsingamátturinn
/
Guðm. O. Emilssonar
Garðaeigendur - Húsfélög
Nú er sumarið gengið í garð, - er vorverkunum enn
ólokið í garðinum hjá þér?
Klippi tré og runna, hreinsa úr beðum, kantsker o.fl. um
ÖLL SUÐURNES. Vönduð vinna, sanngjarnt verð.
Nánari upplýsingar í símum 12640 og 985-30705.
- Geymið auglýsinguna -
Lax-Lax-Lax
Til sölu veiðileyfi í Setbergsá á Skógar-
strönd. Tvær stangir hvern dag. Upp-
lýsingar í síma 11159 og 12848.
Heimilistæki fyrir 150 þús. kr.
eða meira, lánað í 36 mánuði. -
Engin útborgun.
Pú færö hvergi betri kjör!
Komdu og verslaöu allan
„pakkann** í húsiö á greiöslu-
kjörum sem eiga sér vart hliö-
stæöu.
molar'
Í| grín ■ gagnryni
vangaveltur ■
^un^sjón:"emil páll.*»|
Glœsileg fegurð
Suðurnesjamenn geta verið í
sjöunda himni yfir árangrinum úr
Fegurðarsamkeppni Islands sem
fram fór síðasta föstudag. Þrjár af
tjórum stúlkum sem báru merki
okkar komust þar í verðlaunasæti.
Fegurðardrottning Reykjavíkur,
Keflvtkingurinn Svava Haralds-
dóttir bar sigur úr býtum, í 2. sæti
fegurðardrottning Suðurnesja
1991 Sigrún Eva Kristinsdóttir úr
Innri-Njarðvík og í 4. sæti og
jafnframt Ijósmyndafyrirsæta Is-
lands, var Ijósmyndafyrirsæta
Suðurnesja Telma Birgisdóttir, úr
Keflavík. A þessu sést að Suð-
urnesjamenn mega vera stoilir af
sínu.
Fjölgun
yfirmanna..
Mikil „stjóra" fjölgun hefur átt
sér stað síðustu vikurnar hjá
Brunavörnum Suðurnesja er tjórir
menn voru gerðir að varðstjórum.
þeir Örn Bergsteinsson, Ingimar
Guðnason, Gylft Ármannsson og
Gísli Viðar Harðarson. Þá var
tjölgað í stöðugildum vegna
breytinga sem gerðar hafa verið.
... og um leið
spaugileg staða
Jafnframt var gerð sú lireyting
að Lárus Kristinsson yftreldvarn-
areftirlitsmaður var að eigin ósk
fluttur til innan stöðvarinnar og
Guðmundur T. Ólafsson gerður
að yfirmanni eldvarnareftirlits og
nýr maður ráðinn í eftirlitið. Við
það kemur upp sú skondna staða
að undirmaður Guðmundar, er
fagmaður sem iðnaðarmaður og
hefur því mun meiri reynslu og
þekkingu til starfsins en yf-
irmaðurinn. Sá heitir Jón Guð-
laugsson fyrrum byggingaverk-
taki með meiru. Hlýtur sú staða
því oft að eiga eftir að koma upp
að Jón kenni Guömundi en ekki
öfugt.
Barist um fulltrú-
ana í 15. sœtinu
Þeir á Edenborg ætluðu aldeilis
að skáka K 17. er hinir síðar-
nefndu buðu upp á Eurovision-
farana Stefán og Eyva um næstu
helgi. Edenborg sló þeim í K-inu
þá við og fékk þá féiaga til að
spila síðasta sunnudag, þ.e. dag-
inn eftir keppnina. Hefðu þeir fé-
lagar komist ofar en í 15. sæti,
hefði hér verið um gott útspil að
ræða.
Stjórnin
sló allt út
Eins og við greindum frá í síð-
ustu molum hefur orðið mikil
aukning á því að skemmtistaðimir
bjóði upp á einhverjar uppákomur
til að trekkja að viðskiplavini.
Hefur þetta oftast haft það í för
með sér að sá staður sem boöiö
hefur upp á betri uppákomu hefur
halt vinninginn það kvöldið og
nánast fengið fullt hús, meðan
hinn staðurinn hefur verið hálf
tómur. Um síðustu helgi var þetta
staðfest er K 17 bauð upp á
Stjómina fyrir troðfullu húsi, en
aðsóknin á Edenborg var fremur
lítil það kvöldið.
Titrari skelfdi
flugstöðvarmenn
Það varð heldur belur uppi
fótur og fit í flugstöð Leifs Ei-
ríks-sonar á dögunum. Innan um
allar ferðatöskurnar fannst lítil
kvenmannstaska sem lagði frá
undarleg hljóð. Voru margir sér-
fræðingar kallaðir til enda ótt-
uðust menn það helst að sprengja
væri í töskunni sem gæfi frá sér
þetta undarlega hljóð. Þegar task-
an hafði veriö opnuð kom hins
vegar í ijós að það var áhald sem
konur nota helst og kallast á ís-
lensku titrari, sem olli áhyggjum
manna.
Keflavík kom
til greina
Eins og rækilega hefur verið
auglýst í fjölmiðlum munu tjórar
stórsveitir í þungarokkinu koma
fram á risatónleikum í Kaplakrika
í Hafnarfirði í júnímánuði. Þegar
unnið var að staðarvaii fyrir tón-
leikana var íþróttasvæðið í
Keflavík sterklega inni í mynd-
inni. Einn af forsvarsmönnum
innflytjenda rokksveitanna er
Guðmundur Guðbjörnsson,
kenndur við Bláa lónið.
Bótur í hafvillu...
Björgunarsveitunum í Garði,
Sandgerði og Grindavík var gert
að vera í viðbragðsstöðu á föstu-
dagskvöld vegna báts sem var í
hafvillu. Var það lítill trébátur.
Eva 1S 111, sem var í vanda
stödd. Tilkynningaskyldan hafði
samband við björgunarsveitina í
Garði og óskaði eftir því að bát-
urinn yrði miðaður út með mið-
unarstöð sem er í björgunar-
stöðinni...
...þar sem Hjalti
gekk ó land...
Fyrstu menn vorn vart komnir
í björgunarstöðina þegar síminn
hringdi og í símanum var sjó-
maður sem sagðist vera í helv...
vandræðum. Þokan var svo mikil
og liann sagðist vera villtur, en
síðast hafði hann vitað af sér við
eyjuna þar sem Hjalti gekk á land.
en sú eyja heitir Eldey. Hann
sagðist sjá útlínur landsins í rat-
sjá, en þekkti ekki aðstæður.
Óskað var eftir því við manninn
að hann kaliaði í talstöð bátsins
og miðunarstöðin vann úr upp-
lýsingunum. Og viti menn, bát-
urinn var staddur út af Leirunni í
Gerðahreppi. Bátnum hafði því
verið siglt meðfram strönd Suð-
urnesja, án þess að maðurinn vissi
hvar hann væri staddur.
...að landi í
Garði en út fró
Hafnarfirði...
Sagan er ekki búin, því mann-
inum bauðst aðstoð frá Slysa-
vamafélagi Islands sem hann
vildi ekki þiggja. Hann hugðist
halda lengra út frá ströndinni og
bíða þess að þokunni og myrkrinu
létti. 4-L-morgni sl. laugardags
tilkynnti sjómaðurinn síðan að
hann væri í höfn í Garðinum, en
korteri seinna kom tilkynning frá
sama báti að hann væri að fara út
frá Hafnarfirði...
...meö viðkomu
í Borgarnesi
Víkurfréttir
8. maí 1991
Nú var málið orðið verulega
snúið fyrir Tilkynningaskylduna.
Hvernig stóð á því að báturinn
kom að í Garði en fór út frá
Hafnarfirði? Eftir að hafa kallað
fjórum sinnum í bátinn fékkst það
uppgefið að hann var á leið til
Reykjavíkur. Eitthvað var stefna
bátsins ekki í lagi því hjálp-
arbeiðni barst frá honum þar sem
hann var í hafvillu innan um
skerjagarða skammt frá Borg-
arnesi. Bátnum var liðsinnt þaðan
út en olíubirgðir kláruðust þegar
skammt var eftir til Reykjavíkur,
svo báturinn var dreginn síðasta
spölinn.
Friður til
að reykja
sígarettu...
Þegar vorar, tekur lögreglan í
Keflvtk fram bifhjólin og lög-
reglumenn fara í eftirlitsferðir um
svæðið á hjólunum. Lögreglu-
niaður var á einni slíkri eftirlits-
ferð um Garðinn um sl. ltelgi.
Þegar hann stöðvar stórt og fal-
legt hjólið, þá hópast krakkarnir í
kringum gripinn til að skoða.
Lögreglumaðurinn vildi hins
vegar fá frið til að fá sér eina sí-
garettu og renndi því á bakvið
Samkomuhúsið í Garði, í von um
að fá þar frið...
...eða hvað ?
Friðurinn var hins vegar fljótt
úti, því lögreglumaðurinn var vart
búinn að kveikja í sígarettunni
þegar mikið vélarhljóð og bílflaut
heyrðist framan við húsið. Við
nánari eftirgrennslan kom í ljós
að bifreiðinni ók stúlka sem ekki
hafði náð aldri til að öðlast öku-
réttindi. Þegar stúlkan varð lög-
reglumannsins vör ók hún hins
vegar í burtu og það nokkuð
greitt. Hafði hún ekið um einn
kílómetra þegar lögreglunni tókst
að stöðva hana.
Deilumðl í
Þjóðarsðlinni
Girðing nokkur sem sett var
upp á Garðskaga á síðasta sumri
varð efni mikillar umræðu í
Þjóðarsálinni á Rás 2. í þeim um-
ræðum er þar fóru fram voru
menn ósáttir við það að nú gæti
eldra fólk ekki ekið upp á bakk-
ann og horft yfir tjöruna og sjó-
inn. Nú hefur verið unnin bót á
þessu vandamáii. því á tveintur
stöðum á Garðskaga hefur verið
komið upp upphækkuðum bíla-
stæðum við sjávarbakkann, þar
sem gott útsýni er yftr fjöruna og
hafflötinn.
Hrifinn af
fegurðar-
drottningunni
Fegurðardrottningin okkar hún
Sigrún Eva fékk símskeyti frá
leyndum aðdáanda í hádeginu á
föstudaginn. Skeytið hljómaði
eitthvað á þennan veg: „Sigrún
Eva. þú ert fallegust. gangi þér
vel í kvöld." Undir þetta skrifar
síðan Jón Pétur Unnsteinsson, til
heimilis að Blöndukvísl í
Reykjavík.
Sigrún Eva stóð algerlega á
gati um hver þetta væri.
Okkur þykir hins vegar líklegt
að hér sé hreinlega um leyndan
aðdáanda að ræða. sem fékk ekki
staðist freistinguna og kom fram
í dagsljósið. Þeir eru eflaust
margir sem eru enn í felum. . .