Víkurfréttir - 08.05.1991, Side 17
17
Fréttir
Víkurfréttir
8. maí 1991
Bifreiðin er gjörónýt eftir
skyldi verða af stórslys.
Grindavíkurvegur:
Þrennt flutt á
sjúkrahús
eftir bílveltu
Þrennt var flutt á Sjúkrahúsið
í Keflavík eftir bílveltu sem
varð á Grindavíkurvegi á föstu-
dagskvöldið. Þar voru á ferð er-
lendir aðilar á bílaleigubíl og
voru þau á leið frá Grindavík til
Keflavíkur.
Er þau voru á leið niður Gíg-
hæðina virðist ökumaðurinn
hafa misst vald á bifreiðinni,
með þeim afleiðingum að hún
fór yfir á gagnstæða akrein og
þaðan út af veginum þar sem
hún fór nokkrar veltur. Sem fyrr
segir slösuðust þrjú af þeim sem
voru í bílnum. Sjúkrabílar frá
Grindavík og Keflavík fluttu
þau á Sjúkrahúsið í Keflavík, en
meiðsli þeirra voru þó ekki al-
varleg. Bifreiðin er gjörónýt
eftir veltumar.
Auglýsinga-
skilti yfir
Hafnargötu
hafnað
Umferðamefnd Keflavíkur
hefur tekið fyrir umsókn um
leyfí til að reisa auglýsingaskilti
yfir Hafnargötu, norðan gatna-
móta Víkurbrautar og Faxa-
brautar.
Var eftirfarandi bókun gerð
um málið:
„ Umferðanefnd telur, að
vegna mikils umferðarþunga og
eifiðra aðslœðna að öðru ieyti
á þessum gatnamótum sé mjög
óœskilegt að reisa umrcett skilti
á þessum stað. Nefndin leggur
því til að erindinu verði liafn-
að“.
Hefur bygginganefnd Kefla-
víkur fallist á niðurstöður um-
ferðamefndar og hafnað er-
indinu.
Afgreiösluhús SBK:
„Hrakhólarniru fjarlægðir
Stjóm Sérleyfisbifreiða Kefla-
víkur hefur ákveðið að leita eftir
tilboðum vegna sölu og brott-
flutnings á afgreiðsluhúsi SBK,
sem milli manna hefur stundum
verið nefnt „Hrakhólar". Birtist
auglýsing þess efnis annarsstaðar
í blaðinu í dag.
Er þetta gert vegna fyrirhugaðs
flutnings á neðri hæðina að Hafn-
argötu 12, þar sem bæj-
arskrifstofumar voru síðast til
húsa, en hús þetta var upphaflega
byggt fyrir SBK.
óhuppið og mikið mildi að ekki
Ljósm.: epj.
Karvel Ögmundsson:
Bátar úr girðingu
fjarlægist
Eigandi girðingarinnar sem
liggur neðan og milli húsanna
Höskuldarkots og Bjargs og ofan
við upptökubraut smábáta í Njarð-
víkurhöfn, Karvel Ögmundsson,
hefur nú skorað á alla þá er eiga
þama báta, bíla og kerrur að fjar-
lægja það fyrir 10. maí. Umræddar
eignir eru þama í heimildarleysi
Karvels, þar sem aðeins má geyma
slíkt innan girðingarinnar með
hans leyfi.
Er því vissara fyrir viðkomandi
að fjarlægja eigur sfnar hið fyrsta
því 10. er á föstudag.
Eigendur þessara báta hafa
ættu því að fjarlægja þá vilji
Njarövíkurkaupstaöur:
Mismunur á gjaldskrá leikskóla
Foreldrar bama á leik-
skólanum Ginili í Njarðvík
óskuðu eftir því í vetur með
undirskriftarlista að bæj-
arfélagið greiddi fyrir því að
sami systkinaafsláttur væri
veittur fyrir börn á því heimili
og er á Holti í Innri-Njarðvík.
En sem kunnugt er þá rekur
bæjarfélagið síðamefnda
leikskólann en einkaaðili
þann fyrrnefnda.
Töldu foreldrarnir að bæj-
arfélagið ætti að greiða ntis-
muninn. Bæjaryfirvöld fóru
hinsvegar fram á það að
rekstraraðili Gimlis tæki mis-
muninn á sig, en því höfnuðu
rekstraraðilar, þar sent þeir
töldu sig ekki geta orðið við
erindinu.
Vegna þessa hefur meiri-
hluti bæjarráðs Njarðvíkur
þ.e. þau Sólveig Þórðardóttir
og Kristbjöm Albertsson
bókað vonbrigði með að
rekstaraaðili Gimlis hafi
hafnað að veita afslátt til
samræmis við það sem gert er
á Holti. Jafnframt hefur meiri-
hlutinn samþykkt að hafna ósk-
unt foreldra bama á Gimli að
bæjarsjóður greiði niður fyrir
þau í samræmi við böm á Holti
og um leið tillögu frá Ragnari
Halldórssyni, Þorbjörgu Garð-
arsdóttur og Steindóri Sig-
urðssyni um santa efni. Var
samþykkt að hafna þessu með
tveimur atkvæðum gegn einu í
bæjarráði Njarðvíkur 10. apríl
sl.
Þeir Ragnar Halldórsson og
Steindór Sigurðsson óskuðu
bókað á sama fundi að þeir
hörmuðu ákvörðun meirihlutans
unt að einstæðir foreldrar og
foreldrar í sambúð njóti sömu
fyrirgreiðslu á leikskólagjöld-
uni, hvort sem börn þeirra væm
vistuð á leikskólanum að Holti
eða Gimli.
Segja þeir í bókun sinna að
með jressu sé meirihlutinn að
mismuna íbúum Njarðvíkur um
tugi þúsunda kr. á ári. Síðan
segir orðrétt í bókuninni „Ekki
verður séð að meirihlutinn geti
rökstutt að í Njarðvík skuli
einungis fáir útvaldir njóta
aukinnar niður-greiðslu leik-
skólagjalda. Afstaða meiri-
hlutans virðist byggð á andúð
þeirra á einkareknum leik-
skólum og óskiljanlegt með
öllu að fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins hafi gerst
viljalaust verkfæri í höndum
blindrar ríkis-forsjár.“
Af þessu tilefni óskaði
Kristbjörn Albertsson eftir-
farandi bókunar:
„Vegna niðurlags bókunar
R.H. og S.S. varðandi einka-
rekstur eða ríkisforsjá. Und-
irritaður harmar þá niðurstöðu
að einkareksturinn skuli ekki
geta veitt sambærilega þjón-
ustu. Ég bendi jafnframt á að
í Sjálfstæðisflokki hafa menn
heimild til að hafa sjálfstæðar
skoðanir og hef ég aldrei farið
dult með skoðun mína á
einkarekslri leikskóla."
sett þá þarna án heimildar og
þeir komast hjá vandræðum.
Ljósm.: epj.
Neytendafélag Suöurnesja:
Verðkönnun á hársnyrtingu
Neytendafélagið gerði
fyrir skömmu verðkönnun á
þjónustu hjá hársnyrti-
stofum á Suðurnesjum. f
síðasta tölublaði Víkurfrétta
var birt verð á dömu-,
bama- og herraklipppingu,
hárþvotti og særingu. Nú er
það verð á permanetti, hár-
litun og blæstri. Ekki er lagt
mat á gæði þjónustunnar
heldur er hér um verð-
samanburð að ræða.
★ Ath. Stutt hár getur
verið frá því að vera fyrir
ofan eyru og til þess að vera
niður á miðjan háls, allt eftir
þykkt hársins og klippingu.
Neytendur ættu því að at-
huga vel áður en beðið er um
permanett eða litun hvort hár
þeirra telst stutt, millisítt eða
sítt.
★★ Ellilífeyrisþegar fá
5-20% afslátt hjá mörgum
hársnyrtistofum.
permanett permanett permanett hár- hárlitun
stutt hár millisítt sitt hár blástur stutt
Hársnst.Málfríðar Garði 2600 2900 3200-4000 900 1500
Hársnst. Kamilla — 2400 2600 2800-3600 980 1290
Hársnst. Helgu Grindav. 2695-2950 3295 /Í050 980 1610
Hársnst.Sigrúnar — 2695-2950 3295 U050 1000 1590
Hársnst. Taco — 2830 2915 3080-3U10 980 1815
Hársnst. Edilon Keflav. 2750 3200 880 1750
Hársnst. Elegans — 2900 3200 3U20-3710 1160 1950
Hársnst.Hár-inn — 2900 32UO 35U 5 1130 1870
Hársnst. Harðar — 2900 3500 3800 800 1300
Lokkar og línur — 2690 2790 3350 970 1530
Þel-hárhús — 3lHO 3510 Uoio 1220 2300
Klippótek — 3190 3520 3762-11081 1280 2195
Hárgrst.Þórunnar — 2500 2980 3600 1050 1/190
Hárgrst. Pálu — 301á 33U5 3980 1159 219U
Hárgrst. Brá — 3100 3800 4900 1250 1950
Hárgrst.Lildu Sig — 2400 2750 3200 960 1/180
Hárgrst. Hrund — 2800 3350 950 1550
Hárg.önnu Steinu — 980 2U20 900 950
Hárgrst.Hj ördísar Ndaráv 2700 2900 3200 1000 1700
Hársnst.Svandisar Sandg. 2600 2900 3600 850 1550
Hársnst. Víf — 2500 2980 3600 1050 1690
Hársnst. Hrannar Vogum 2350 2500 2700 920 1550
Hæsta verð 3190 3800 4900 1280 2300
Lægsta verð 980 2500 2420 800 950
Mism. i X 225X 52% 102% 60X 1U2X
I'S mSKA
ALFRÆÐI
Héraðsblað:
Landsmálablað, frétta-
eða auglýsingablað sem
fjallar einkum um stað-
bundin ntálefni, t.d. innan
bæjar eða héraðs. ísl hér-
aðsblöð eru alls um 60, út-
gefin af stjómmálaflokkum,
prentsmiðjum eða sér-
stökum útgáfufélögum. Af
þeim má nefna Víkurfréttir
í Keflavík, Fjarðarpóstinn í
Hafnarfirði, Vestfirska
fréttablaðið á Isafirði, Feyki
á Sauðárkróki, Víkurblaðið
á Húsavík, Austra á Eg-
ilsstöðum, Austurland í
Neskaupsstað, Eystra-Horn
á Höfn og Þjóðólf á Selfossi
sem öll koma út reglulega
og eru fremur frétta- en
auglýsingablöð.
Vélbundið hey
Grænt vélbundið hey til sölu.
Heimkeyrsla ef óskað er. Upp-
lýsingar í símum 93-38888 og
985-23137.
Skiptiborð og Brintex
barnastóll og ýmislegt fleira
fyrir smáböm til sölu. Uppl. í
síma 27207.
Ýmislegt
Barnapössun
Ég er 13 ára stelpa og mig
vantar vinnu við að passa bam,
hef verið á barnfóstru-
námskeiði. Uppl. í síma 15867.
Eyðublöð
A afgreiðslu Víkurfrétta má
fá tilboðs- og atvinnu-
umsóknareyðublöð fyrir þá sem
auglýsa í Víkurfréttum.
Þarftu að losa
bílskúrinn, geymsluna eða
háaloftið, selja eða leigja íbúð?
Eru smáauglýsingar Víkurfrétta
þá ekki rétti vettvangurinn til að
koma því á framfæri. Bjóðum
upp á greiðslukortaþjónustu við
greiðslu á auglýsingum. Af-
greiðsla Víkurfrétta stmi 14717
og 15717.