Víkurfréttir - 24.10.1991, Side 1
Úttekt Frjálsrar verslunar:
KAUPFÉLAGIÐ STÆRST
-Hæstu meðallaunin hjá skipverjum Hauks GK.
amkvæmt úttekt sem
Frjáls verslun hefur gert
á því hver séu stærstu
fyrirtækin á árinu 1990 kemur í
ljós að fjögur stærstu Suð-
urnesjafyrirtækin veltu öll yfir
milljarði króna. Þau eru í réttri
röð Fríhöfnin, Kaupfélag Suð-
urnesja, Hitaveita Suðumesja og
Miðnes hf.
Var Fríhöfnin í 59. sæti yfir
landið með 1506,9 milljónir í
veltu og hafði skotist upp um 30
sæti frá árinu 1989. Kaupfélag
Suðurnesja var í 60. sæti yfir
landið með 1486,3 milljónir,
hækkaði um þrjú sæti frá árinu
1989. Hitaveita Suðurnesja var í
69. sæti með 1362,1 milljón og
hafði hrapað um sjö sæti frá árinu
1989. Miðnes hf. var í 86. sæti
með 1067 milljónir og hafði
hækkað sig um þrjú sæti milli
áranna 1989 og 1990.
Ef skoðað er hvaða fyrirtæki
á Suðurnesjuni greiddu hæstu
launin á árinu 1990 kemur í ljós
að Valbjörn hf. í Sandgerði, sent
gerir út togarann Hauk GK,
greiddi meðallaun upp á 4,1
milljón króna og var í 14. sæti
yfir landið. Hraðfrystihús Kefla-
víkur var það Suðumesjafyrir-
tæki sem greiddi næst hæst Iaun
á árinu eða 3,8 milljónir í með-
allaun og Þróttur í Grindavík í 3.
sæti með 3,750 milljónir í með-
allaun.
Símadóni
handtekinn
undanfömum mánuðum
hefur talsvert borið á því
að hringt hafi verið í
krakka sjö til níu ára gamla og
klæmst við þau. Hefur borið
mest á þessu í Vogum og Garði,
en þó er vitað um tilfelli á nánast
öllunt Suðurnesjunt.
Síðasta föstudag handtók
lögreglan liðlega tvítugan Suð-
urnesjamann, sem við yfir-
heyrslur hefur játað á sig verkn-
aðinn, að sögn Johns Hill lög-
reglufulltrúa hjá rannsóknar-
lögreglunni í Keflavík. Talið er
að hinn seki hafi hringt fleiri
hundruð sinnúm og yfirleitt á
morgnana milli kl. 9 og 11,
þegar mestar líkur voru á að
bömin væru ein heima. Ef full-
orðinn svaraði skellti hann á og
hringdi í næsta símanúmer í
símaskránni.
Höfðu margir foreldrar orðið
áhyggjur af þessu auk þess sem
saklausir menn voru taldir sekir
að þessum Ijóta leik.
Lán Byggðastofnunar 1990:
100 milljónir
lánaðar til
Suðurnesja
Á síðasta ári fengu 19 aðilar
á Suðurnesjum lán frá Byggða-
stofnun, samtals að upphæð
tæpar 99 milljónir króna. Þar af
fengu tjórir aðilar samtals 26
milljónir að láni í lánaflokki,
sem var settur upp til að auka
verkefni innlendra Skipa-
smíðastöðva.
Hinn almenni lánaflokkur var
vegna fjárhagslegra endur-
skipulagninga, skuldbreytinga,
bátakaupa eða stofnkostnaðar
s.s. breytinga í frystingu eða
verkun sjávarfanga í landi. I
þeim flokki fengu tveir Suð-
umesjaaðilar mest þ.e. 10 millj-
ónir hvor um sig. Voru þetta
Eldey hf. og Keflavíkurbær.
Þeir aðilar sem mest fengu til
endurbyggingar, nýsmíði eða
viðhalds skipa voru eigendur
Víkurbergs GK, 15 milljónir
króna. Kemur þetta fram í árs-
reikningum Byggðastofnunar.
undkennsla er fastur þáttur í skólastarfinu. Kennslan
byrjar strax á haustin og er kennt langt fram á næsta
vor. Meðfylgjandi mynd var tekin í sundlauginni í
Sandgerði á mánudag. Þar voru sjö ára krakkar úr
Grunnskólanunt að læra réttu sundtökin. Kennari er Þórður
Olafsson.
Hér er það ung hnáta sem sýnir okkur hvemig á að fara að
því að komast yfir laugina, án þess að setja tæmar í botninn.
Ljósm.:hbb
SUNDKENNSLA
í SANDGERDI
Aðalfundur SSS
hefst á morgun:
Samstarfs-,
fræðslu- og
atvinnumál
í brennidepli
Aðalfundur Sambands sveit-
arfélaga á Suðumesjum verður
haldinn á morgun föstudag og á
laugardag í Samkomuhúsinu í
Garði.
Aðalmál fundarins verður um-
ræða um úttektarskýrslu Rekstrar
og Ráðgjafar á skipulagi og
stjómun samstarfsverkefna sveit-
arfélaganna á Suðumesjum.
Einnig verða fræðslumál og at-
vinnumál til umræðu.
Meðal gesta fundarins verða
Olafur G. Einarsson, mennta-
málaráðherra, og ýmsir aðrir sér-
fróðir um þau málefni sem tekin
verða fyrir.
Bæjarstjórn Sandgerðis:
Eldeyjarrækjan
verði unnin
hér á svæðinu
Bæjarstjórn Sandgerðis hefur
á fundum sínum haft til umræðu
veitingu veiðileyfa vegna veiða
og vinnslu á rækju sem veidd er
á miðum við Eldey. I framhaldi af
umræðum hefur eftirfarandi bók-
un verið gerð:
„Bæjarstjóm leggur á það
þunga áherslu að Eldeyjarrækja
verði unnin hér á svæðinu og ef
ekki takist eðlilegir samningar
milli kaupenda og seljenda verði
leyfi til rækjuveiða skilyrt þannig
að öll rækja verði seld á Fisk-
markaði Suðurnesja hf.“
Bíða álits
sérfræðinga
Mál fiskeldisstöðvarinnar
Atlaslax á Reykjanesi er í bið-
stöðu hjá lögreglunni í Grindavík.
Eins og greint hefur verið frá
hefur laxinn í stöðinni ekki verið
fóðraður um nokkurt skeið og var
málið kært til lögreglunnar í
Grindavík.
Sigurður Ágústsson, að-
alvarðstjóri, sagði í samtali við
blaðið nú í vikunni að beðið væri
frekari niðurstöðu frá dýralækni
um hvað hægt er að gera í málinu.
Dýralæknir hefur skilað inn einni
skýrslu og nú er verið að afla
frekari upplýsinga hjá sér-
fræðingum.
AUGLÝSINGAR • RITSTJÓRN • AFGREIÐSLA ^14717,15717 • FAX «12777