Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.10.1991, Side 2

Víkurfréttir - 24.10.1991, Side 2
2 Blásarasveitin byrjuð Blásarasveit Suðurnesja, sem getið var um í Vík- urfréttum nýlega, er orðin að upprennandi stórhljómsveit. Sveitin var formlega stofn- uð laugardaginn 13. október í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Stjórn- andi sveitarinnar er Siguróli Geirsson. Æfingar eru á mánudagskvöldum kl. 20:30 og fara þær fram í Tón- listarskólanum í Keflavík. Fyrsta æfingin var 21. þ.m. Það er enn hægt að stækka sveitina nokkuð og eru allir þeir sem áhuga hafa á að vera með, bæði gamlir og e.t.v. aðfluttir spilarár, boðnir vel- komnir og geta þeir enn orðið stofnfélagar ef þeir vilja. Þeir sem áhuga hafa á að vera með. hafi samband í síma 68121 eða 11565 á kvöldin. eða mæti á æfingu. Sveitin verður með íjölbreytt efnisval og mun vonandi spila við ýmis tækifæri í framtíðinni. Ritari, Elísabet Karlsdóttir. Tré-x með hæstu launin Trésmiðja Þorvaldar Ólafssonar hf. greiddi hæstu heildarlaun fyrirtækja á Suð- urnesjum á árinu 1990, ef frá eru talin fyrirtækin á Kefla- víkurflugvelli. Greiddi fyrirtækið 60,1 milljón í bein laun á árinu og sló þar með önnur fyrirtæki og bæjarfélög á svæðinu út. Kemur þetta fram í nýjasta hefti Frjálsrar verslunar. Fréttir Víkurfréttir 24. október 1991 • Mikil umferð var í miðbæ Keflavíkur alla „Haustdagana' Vel heppnaðir Haustdagar „Haustdagar" voru haldnir í annað sinn á Suðurnesjum í síðustu viku, að frumkvæði Víkurfrétta. Alls tóku um 40 verslanir á svæðinu þátt í Haustdögunum, með því að bjóða afslátt og tilboð á ýmsum vörum. Voru allir kaupmenn, sem blaðið hafði samband við. á einu máli um að Haustdagarnir hefðu tekist vel og verslun hefði verið mikil. Sagði einn þeiria að það hefði verið gaman að sjá hvernig bærinn lifnaði við og svona lagað þyrfti að gerast oftar. Greinilegt var á umferðinni í miðbæ Keflavíkur, fimmtudag, föstudag og laugardag, að mikið af fólki var á ferðinni. enda til- valið að nota tækifærið og spara í mörgum tilvikum þúsundir króna. Verslunin HÓLMGARÐUR HÓLMGARÐI 2 - KEFLAVÍK - SÍMI 14565 - ávallt í leiðinni - alltaf opin! NYJUNG FJÖLBREYTT OG FERSKT KJÖTBORÐ ALLA DAGA MINNUM Á OKKAR LANGA OPNUNAR- TÍMA -mánud.-föstud. kl. 09-23 -laugard.-sunnud. kl. 10-23. Verslunin HÓLMGARÐUR HÓLMGARÐI 2 - SÍMI 14565 V Kaffibaunir og nýjar blöndur frá Kaffitár. Stórmarkaðsverð á kaffinu. Útgefandi: Víkurfréttir hf. ——^——■—— Afgreiðsla, ritstjórn ogauglýsingar: Vallargötu 15, símar 14717. 15717. Box 125.230 Keflavík. Póstfaxnr. 12777. - Ritstjórn: Emil Páll Jónsson. heimas. 12677. bílas. 985-25917. Páll Ketilsson. heimas. 13707. bílas. 985- 33717. - Kréttadeikl: Emil Páll Jónsson. Hilmar Bragi Bárðarson, bílas. 985-25916 og Garðar Ketill Vilhjálmsson. - Aug- lýsingadeild: Páll Ketilsson. - Upplag: 5900 eintök sem dreift er ókevpis um öll Suðumes. - Aðili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða og Upplagseftirliti Verslunarráðs. - Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið. Filmuvinna og prentun: GRÁGÁS hf. Keflavík.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.