Víkurfréttir - 24.10.1991, Síða 5
Einkaréttur á
skipsnafninu
Hólmsteinn
Siglingamálastjóri hefur veitt
Hólmsteini hf„ Garðhúsum, Garði
einkarétt á skipsnafninu Hólm-
steinn. Er þetta gert samkvæmt lög-
um um skráningu skipa. En sem
kunnugt er þá eiga þeir Hólm-
steinsmenn bát með þessu nafni og
hafa átt í áratugi.
Vinnugallinn
fuðraði
Lögreglan í Grindavík var kölluð
að iðnaðarhúsnæði við Tangasund í
Grindavík í hádeginu sl. föstudag.
Tilkynnt var að eldur væri laus í
húsinu.
Þegar lögreglumenn mættu á
vettvang var iðnaðarhúsið fullt af
reyk. Eldurinn reyndist þó ekki vera
mikill. Fyrir hádegismatinn hafði
starfsmaður verið að brenna málm
með gastækjum og neisti örugglega
hlaupið í vinnugallann. Þegar há-
degismátunnn stóð sem hæst fór
gallinn að loga og gjöreyðilagðist í
brunanum. Aðrar skemmdir urðu
ekki.
Einn valt og tveir
skemmdir
Bílvelta varð á Grindavíkur-
veginum kl. 17:05 á föstudag. Eng-
in meiðsli urðu á fólki en bifreiðin
er mikiö skemmd.
Þá voru tvær bifreiðar skemmdar
fyrir utan Félagsheimilið Festi um
helgina. Rúða var brotin í annari
bifreiðinni og hurð beigluð á hinni.
Upplýst er hver olli skemmdunum
og er málið nú til meðferðar hjá
lögreglunni í Grindavík.
Bæjarráö Njarðvíkur:
Krefst svara vegna
„Vatnsveitu-
sullsins"
Eftirfarandi bókun hefur
verið samþykkt í bæjarráði
Njarðvtkur:
„Bæjarráð Njarðvíkur vill
vegna þeirra umræðna, sem
orðið hafa út af veislu. sem
framkvæmdanefnd Vatns-
veitu Suðumesja sf. hélt í til-
efni af opnun vatnsveitunnar
27. september sl. óska eftir
svörum frá nefndinni vegna
ásakana unt óhóf og bruðl við
þetta tækifæri.
Bæjarráð vill jafnframt fá
upplýsingar um kostnað vatns-
veitunnar vegna umræddrar
veislu og þá meðtalinn ferða-
kostnað ásamt matar- og vín-
kostnaði í Félagsheimilinu
Stapa og Flughóteli hf., sund-
urliðað.
Bæjarráð fer fram á svör við
þessu hið fyrsta."
Holtsgata 32, Ytri-Njarðvík
Gott eldra einbýlishús á tveimur hæðum sem skiptist í stofu
og sex svefnherbergi, til sölu.
Stór og góður bílskúr. Verð kr. 8.700.000,-
Upplýsingar gefur
Sigþór í síma: 92-13558 og
Helga í síma: 92-16043
_________5
Víkurfréttir
24. október 1991
Bæjarráö Njarövíkur:
Hvað brást í útkalli al
mannavarna?
Bæjarráð Njarðvíkur ræddi í
síðustu viku um útkall björg-
unarsveita á Suðumesjum varð-
andi það er tilkynning barst um
eld í breiðþotu frá Lufthansa. I
framhaldi af umræðunni var eft-
irfarandi bókun gerð:
„Bæjarráð Njarðvíkur lýsir á-
hyggjum sínum yfir því, að ekki
skyldi betur takast til, við útkall
björgunarsveita á Suðurnesjum
þegar tilkynning barst um eld í
f'lugvél kl. 04.31 sl. laugardag, en
raun varð á.
Bæjarráð óskar eftir skýringum
á þessu, hvað hafi brugðist og
hverjar breytingar verði hjá stjóm
Almannavarna Suðurnesja í kjöl-
far þessarar reynslu."
Vantar - séreign
Við leitum að einbýli, sér hæð eða raðhúsi í
Keflavík eða Njarðvík á verðbilinu ca. 8-9 millj. í
skiptum gæti komið ca. 95 ferm. góð þriggja
herb. íbúð á 1. hæð í Jöklaseli í Reykjavík
Einstakt toekifœri
Til sölu tvær íbúðir í steinhúsi rétt við miðbæinn
í Keflavík.
2. hæð er ca. 125 ferm. 5 herbergja.
3. hæð er ca. 125 ferm. 5 herbergja
Samtals 250 ferm.
Mjög auðvelt er aðsameina íbúðirnar í eina.
Hæðirnar eru hentugar til þess að leigja út,
hvora fyrir sig eða sem stök herbergi. Einnig
kemurtil greina að leigja íbúðirnar.
Fasteignamiðlun
Kringlan 7,
103 Reykjavík
S: 68-77-68
TILBOÐ I BUSO
20" Superteck
sjónvarp og Philips
myndbandstæki kr.
64.900 stgr.-
4 manna kaffi og
matarstell kr.
2.595.-
Steikarsteinn kr.
2.995.-
Fatadeild:
Bama náttserlur kr. 490.-
Dömupeysur
SOKKAR Á TILBOÐI
-mikið úrval og margar gerð-
ir. M.a. hvítir sokkar, fimm í
pakka
Kynning hjá
danol
fimmtudag og föstudag.
Daloon rúllur
- Kína - vor - og Pizzarúllur
Kynningar
• ískóla • Polly-snakk • Kjörís
DÆMI
Homblest kex.
Sveppir í dós 300g.
Hrísgrjón 2,3 kg.
UM VERÐ:
89.- Jago kaffi 500g.. 199.-
78.- Síróp 1 kg.......182.-