Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.10.1991, Qupperneq 7

Víkurfréttir - 24.10.1991, Qupperneq 7
7 Fréttir Víkurfoéttir 24. október 1991 Hjörleifur Stefánsson, lög- giltur rafvirkjameistari, hefur sett á stofn í nýtt raf- verktakafyrirtæki að Vest- urbraut 8c í Keflavík. Býður hann upp á alhliða rafþjónustu, nýlagnir og viðgerðir. Þá út- vegar hann teikningar og setur upp dyrasímakerft. „Eg lærði hjá Reyni Olafssyni og tók sveinsprófið 1983. Ég vann hjá Reyni til 1988, en þá fluttist ég til Noregs og vann við rafvirkjun þar. Þegar ég kom heim aftur fór ég í Tækniskólann og tók próf til löggildingar 1989-90,“ sagði Hjörleifur í samtali við blaðið. Hann mun starfa einn við fyr- irtækið fyrst um sinn; meðan hann er að vinna markað, sem hann segir taka langan tíma. Hjörleifur segir það ekki vera auðvelt að komast inn á „raf- magnsmarkaðinn" og það taki tfma að vinna sér nafn. Það er hægt að hafa samband við Hjörleif á öllum tímum sól- arhrings og hann er alltaf til- búinn til að koma og aðstoða fólk með sín rafmagnsmál og tekur reyndar fram að fólk eigi ekki að gerast rafvirkjar hjá sjálfu sér. Mörg dæmi eru þess að fólk hafi jafnvel valdið meira tjóni nteð því að vera að „fúska" við hlutina sjálft og gera stór- viðgerðir á rafmagnskerfinu á sínu heimili. • Það er hetra að hafa ryksuguna í lagi. Hér er Hjörleifur Stefánsson, lög- giltur rafvirkjameistari, að koma gönilu græjunni í samt lag á ný. Ljósm.:hbb „Engir húsverðir í Leifsstöð* llonum hefur eflaust brugðið í brún eiganda Ford Escort bifreiðar einnai', sem stóð við Leifsstöð, er hann kom til lands- ins. Framhjólunum hafði nefnilega verið stolið undan bif- reiðinni, auk þess sem hjólkoppar voru teknir af afturhjólunum. Stóð bifreiðin þannig með framendann niður í jörðu í einu bílastæðanna við flugstöðina. Þar sem nokkuð ljóst er að nokkurn tíma hefur tekið að taka hjólin undan bílnum, hafði blaðið samband við Þorgeir Þor- steinsson, lögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli, og spurði hann hvernig eftirliti við Leifsstöð væri háttað. Sagði Þorgeir að lögreglan á Keflavíkurflugvelli hefði eftirlit með Leifsstöð og nánasta umhverfi undir sínum höndum. Hann bætti við: „Við erum engir húsverðir í Leifsstöð, en sinnum eftirliti þar eftir fremsta megni. Lögreglan getur að sjálfsögðu ekki ábyrgst eignir fólks þarna frekar en annars staðar, en við reynutn að hafa samband við eigendur eða skyldmenni, þegar svona mál koma upp,“ sagði Þorgeir. Nýr rafverktaki í Keflavík: Alhliða raf- þjónusta • Frá framkvæmdum við Aðalgötuna á mánudag. Götu- stæðið hefur verið grafið upp og umhverFið á eftir að taka stakkaskiptum á næstu vikum. Ljósm.:hbb Aöalgata í Keflavík: Gatan hækkuð, lækkuð og breikkuð á kafla Þessa dagana standa yfir fram- kvæmdir við breikkun Aðalgötu í Keflavtk framan við húseigina númer fimm. Það er fyrirtækið Nesprýði sem annast framkvæmdina og að sögn Guðmundar B. Kristinssonar hjá fyrirtækinu verður gatan lækkuð um 35 sentimetra við gatnamót Vallargötu, en hækkuð um 25 sentimetra við Túngötu. Er þetta m.a. gert í tengslum við lóð- arframkvæmdir að Aðalgötu 5, en lóðin þar hefur verið hækkuð mikið. Verður gengið frá þeirri lóð sam- hliða breikkun götunnar. MIKKI REFUR sér um fjörið til 03. Dýrin í Hálsaskógi fá frítt inn til kl. 23. Gleðistund við kranann. Ölið á hálfvirði kl. 23 til 24. Sími 12000 VEITINGA^IÐ íll SFlHatlST Hjóluluusi híllinn við Leifsstöð. 5:c Fordrykkur * Tvíréttaður kvöldverður Erobikktískusýning ;!c Blues brothers Miðaverð á skemmtidagskrá og kvöldverð kr. 2000 Dansleikur með Loöinni rottu. Miðaverö á dansleik kr. 1000. NÆSTA HELGI 1. nóvember: Sálin hans Jóns míns 2. nóvember: Kódakvöld meö tískusýningu, skemmtiatriðum og hljómsveitinni Eldfuglinum LAUGARDAGSKVÖLD Hljómsveitin Undir Tunglínu með fimmtudagstónleika til kl.01. Föstudagur: GCD með sína síðustu tónleika fyrir áramót á Suðurnesjum. Síðustu forvöð að sjá GCD á þessu ári. Tónleikarnir hefjast á miðnætti. Fimmtudagur: DAGSKRA:

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.