Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.10.1991, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 24.10.1991, Blaðsíða 8
8 grín ■ gagnrýni ■ vangaveltur ■ umsjón: emil páll Sannleikanum veröur hver sár reiöastur... Umræðan manna á meðal um sukkið er teng- ist Vatnsveitunni þ.e. eftir að formlegu hófi lauk á dögunum er enn mikil. Einstaka sveitarstjórnar- menn láta m.a. hafa sig út í það að verja gerðir manna í óhófinu og gagn- rýna fréttaflutninginn. Sannast þar enn einu sinni sú tilvitnun að sann- leikanum verður hver sár reiðastur. ... en einn lét þó skuldfœra á sig... Eins hefur fyrrum framkvæmdastjóri VAS látið hafa eftir sér á opin- berum fundum að engir reikningar hafi borist sem staðfesti að veitingar hafi farið úr hófi fram. Honum og öðrum sem telja það staðfestingu á að rangt hafi verið með farið, er rétt að benda á að svo er ekki. Ástæðan er sú að annar þeirra manna sem aðallega hafa verið sagðir bera á- byrgð á ósómanum, hefur tilkynnt MOLA-höfundi að hann hafi vegna um- ræðunnar látið skuldfæra á sig þá reikninga sem hann skrifaði undir. Með þessu staðfestir liann að rangt var að farið og sýnir um leið þann þroska að taka á sig það sem hann gerði án heimildar. ...og þakkir til „Suðurnesja- veru“... Rétt er þó að þakka Suðumesjafréttum, eða „Veru'* eins og blaðið er oft nefnt manna meðal, fyrir það auglýsingapláss sem blaðið hefur látið undir frásagnir af okkur hér á Víkurfréttum, síðan núverandi ritstjóri tók við þar á bæ. Ekkert er betra fyrir fjölmiðil eins og Víkurfréttir, en að vera mikið í umræðunni, það er okkar besta auglýsing. Sama á við um þegar við erum mikið milli tanna bæjarfulltrúa á bæjar- stjórnarfundum og eins BRIDS- námskeið Bridsfélag Suðurnesja hefur ákveðið að standa fyrir námskeiði í brids. Námskeið þetta er ætlað byrjendum og þeim sem eitthvað kunna fyrir sér. hetta er tilvalið tækifæri fyrir einstaklinga og hópa að kynnast þessari skemmtilegu íþrótt. Upplýsingar á kvöldin hjá Halldóri Heiðari Agnarssyni sími 14810 Pétri Júlíussyni sími 14387 Eysteini Eyjólfssyni sími 11064 Y4 þegar aðrir fjölmiðlar vitna í okkur. Að lokum má benda á að gagnrýni á okkur og allt umtal er betra en ekkert og því eiga þeir og þær þakkir skild- ar. .. en segiö rétt frá Enn einu sinni er þó þörf á að árétta við þær stöllur á „Gulu pressunni" að þær fari rétt með þegar þær flytja fréttir. T.d. er mikill munur á hóft eða ó- hófi. Þær tala um að gagn- rýnd hafi verið á bæj- arstjómarfundi skrif unt hóf Vatnsveitunnar. Það er rangt, því enginn hefur gagnrýnt hófið. Hinsvegar hefur verið gagnrýnt óhófið eftir að fonnlegu hófi lauk. Eins virðist samkvæmt frásögnum að- ila sem sátu umræddan bæjarstjórnarfund að þær stöllur leggi bæjar- fulltrúum orð í munn. A.m.k. hafa þær ekki rétt nöfn fyrir því sem við- komandi á að hafa sagt á fundinum og það eitt er merki um óvönduð vinnu- brögð og annarleg skrif, ekkert annað. Sama má segja um þann mikla greinarmun sem er á þvf hvort einstakir bæjar- fulltrúar gagnrýna eitt- hvað eða bæjarstjórnin. Bæjarstjórnin samþykkti ekkert í málinu, enda voru hér á ferðinni örfáir bæj- Bryndís Jónsdóttir úr Keflavík sem leikur í aug- lýsingu um Hunts tómat- sósu og Garðmaðurinn Halldór Reykdal sem kemur fram í auglýsingu um Maarud kartöflu- flögur. Velheppnaöir Haustdagar Flestum ef ekki öllum kaupmönnum ber saman um að nýliðnir Haustdagar hafi tekist með miklum á- gætum. Enda vel kynntir hér í blaðinu og á vegum blaðsins á útvarpsstöðinni Aðalstöðinni. Um 40 verslanir voru þátttak- endur að þessu sinni og aðeins fjórar sem voru með í fyrra voru að ýmsum ástæðum ekki með nú. Þótti niörgum það kinnd- ugt að ein stærsta versl- unin við Hafnargötu í Keflavfk, Stapafell var ekki með. Berháttað á Edenborg... Frá því var greint í Molum á dögunum að par nokkurt úr yngsta bæjar- félaginu á Suðurnesjum og syðsta bæjarfélaginu hafði í frammi ýmsa tilburði á snyrtingu skemmtistaðar í Keflavík sem vakti athygli og kátínu hjá gestum stað- arins. Síðan umræddur at- fnWJCrMU FVRST m/OKT SC C.KKÍ m MTDm'FU- wimv iZc'Keeri.ufJfJn* I arfulltrúar. En á blaði eins og „Gulu pressunni," þar sem staðreyndir eru auka- atriði, virðist svoleiðis ekki skipta máli. Bryndís og Hall- dór á skjánum Landsmenn hafa að undanfömu fengið að berja tvo nýja Suður- nesjafulltrúa augum á skjánum, þeir koma báðir fyrir í sjónvarpsaug- lýsingum. Þetta eru þau burður átti sér stað hefur þótt vinsælt að berhátta á Edenborg. Það eru að vísu ekki Suðurnesjamenn sem eru á hátta, heldur danskar fatafellur. Um þar síðustu helgi var það fulltrúi karl- peningsins sem háttaði fyrir fögur fljóð af Suður- nesjum, en um síðustu helgi var kvensa frá Dana- veldi sem háttaði fyrir áhugasama karlmenn... Víkurfréttir 24. október 1991 ...og allt Malla aö kenna ...Og það er hægt að kenna honum Malla, Mar- el Sigurðssyni, um þetta allt saman. Það er jú hann sem hefur staðið í inn- flutningi á fatafellum af báðum kynjum frá Dan- mörku og hefur látið hafa eftir sér að það verði nóg framboð í vetur af fata- felluin í skemmtanalífinu hér syðra. Hótanir og kurteisi Hvemig eigum við blaðamennimir að túlka það þegar haft er í hót- unum við okkur vegna ákveðinna mála sem blað- ið hefur vitneskju um og jafnvel stendur til að birta í blaðinu og hvemig skal taka á hótunum um lík- amsmeiðingar? Eigum við að láta þær sem vind um eyru þjóta eða ber að taka slíkar hótanir alvarlega? Það kemur fyrir annað slagið að blaðamönnum okkar berist slíkar hótanir þegar þeir eru að sinna starfí sínu, en aðrir biðja okkur kurteisir um að „setja málið ofan í skúffu" þar sem það þyki of við- kvæmt. Það er sjálfsagt að verða við slíkum beitum og hefur oft verið gert, en framvegis verður öllum hótunum tekið alvarlega og umrædd mál þá sett á þrykk „umbúðalaust". Býflugurnar og blómin Framhaldsskólar af höf- uðborgarsvæðinu hafa verið duglegir að und- anfömu að halda nem- endadansleiki hér suður með sjó. Hefur dansinn dunað bæði í Njarðvík og Grindavik. I síðustu viku hélt einn menntaskólinn dansleik í Njarðvík. Af frásögnum af þeim dans- leik má vera ljóst að í þeim skólanum hefur farið fram viðamikil fræðsla um bý- flugurnar og blómin og nemendumir voru ekkert að fara í felur með sína kunnáttu í þeim málum. Býflugurnar skoðuðu blómin í húsagörðum í grennd við danshúsið og einnig heyrðist fluga suða utan í blómi á einum barn- um. Eftir að einn gæslu- mannanna hafði fjarlægt „býfluguna" af „blóminu" stóð hún eftir skjóllítil og var ekkert að hlaupa í fel- ur. Þrasliö fjölmiðla Garri þeirra Tíma- manna fjallaði um inál Atlandslax í síðustu viku í skemmtilegri grein þar sem fjallað var um allt það fólk sem komið hefur fram í fjölmiðlum og tjáð sig um meðferðina á laxinum. Þá er sagt frá öllum þeim fræðingum sem frétta- stofurnar hafa grafið uppi til að tjá sig um málið. Garri segir m.a.: „Þetta hefur gefið þrasliði fjöl- miðla og utan þeirra ærið tækifæri til að fjalla um laxinn í eldisstöðinni við Grindavík, og hafa risið upp margir aðilar sem allt vita um tilfinningalíf laxa. Þeir hafa lýst þeim hörm- ungum sem laxinn hefur orðið að þola í eld- isstöðinni af íþrótt og orð- gnótt, svo varla hefur hörmungum fólks á hung- ursvæðum kommúnista í Eþíópíu verið nánar lýst“. Sorpeyðingar- stöö hvað? I Molum síðustu viku var greint frá blómakeri einu sem stolið var frá Sorpeyðingarstöðinni. I Molanum voru málin skýrð og jafnframt vísað í frétt um stöðina sem væri að finna á öðrum stað í blaðinu. Þrátt fyrir að margir haft flett blaðinu afturábak og áfram fannst fréttin ekki. Ástæðan var, að þrátt fyrir þykkt og gott blað, þraut plássið í lokin svo fréttin komst ekki inn. Við skulum vona að frétt- ina sé að finna í blaðinu í dag!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.