Víkurfréttir - 24.10.1991, Page 9
9
ORÐí EYRA_________________________
Opið bréf til Hannesar
Einarssonar og félaga
- í tilefni af Vatnsveitusukkinu
Vegna skrifa á baksíðu Suð-
urnesjafrétta sem margir kalla nú
Gulu pressunna og í framhaldi af
orðum ykkar á fundi bæj-
arstjórnar Keflavíkur í síðustu
viku, teljum við okkur knúna til
að senda ykkur opið bréf.
Þar sem við teljum ykkur vita
betur, viljum við nú hressa upp á
minni ykkar.
Aður en að því kemur, er þó
rétt að árétta tvennt. Annars vegar
fengum við eins og aðrir fjöl-
miðlar tilkynningu unt hófið og
þangað fór annar okkar sem full-
trúi blaðsins. Eins og flestir hafa
eflaust tekið eftir gáfum við út
stórt og mikið blað út deginum
eftir bæjarstjómarfundinn og það
er skýringin á fjarveru okkar.
Finnst okkur það mikill heiður að
Guðfinnur skyldi sakna okkar
svona sárt eins og fram hefur
komið, því á síðustu 6 árum hefur
okkur aðeins vantað á 3-4 fundi.
Um hinn furðulega málflutning
ykkar viljum við segja þetta: Þú,
Hannes veist betur, því í lok þar-
síðasta bæjarstjórnarfundar
spurði annar okkar um aðild þína
'að „Vatnsveitusukkinu" og svar
þitt var þetta: „Eg trúi því ekki að
þú ætlir að fara að skrifa eitthvað
um það þó fyrrverandi formaður
hafi haldið glæsilega upp á það
nteð vinum sínunt, svona þegar
hann var að hætta.“ Þetta skalt þú
lesa vandlega yfir og hugsa um
hvað þú varst að segja. Við getum
líka sagt frá því sem þú sagðir er
þú hringdir í annan okkar morg-
uninn eftir til að reyna að stöðva
fréttaflutning af ntálinu, það
samtal geymum við og hver veit
nema það verði birt við tækifæri.
Ef þú vilt, getum við líka
dregið fram staðfestingar frá
nokkrunt af þeim 50 mönnum
sem sátu áfram að sumbli í Stap-
anum, þegar formlegu hófi var
lokið og greiddu ekken af því
sem þeir drukku og var aldrei til-
kynnt um að þeir ættu að greiða
fyrir það. Heldur var þeim þjónað
á sama hátt og á meðan formlega
hófið stóð yfir. Hvemig þú hins
vegar sérð á reikningi frá Stap-
anum hvað hafi verið drukkið
fyrir kl. 20 og hvað eftir, er okkur
hulin ráðgáta.
Varðandi það sem gerðist á
öðru veitingahúsi vitum við eins
og þú, að þar var hafður opinn
reikningur. Margir fengu að
drekka út á hann og sumir einnig
að snæða. Þann reikning færð þú
sennilega aldrei að sjá, nenia þú
berir þig eftir því. Astæðan er að
einn af þeim sem opnaði þann
reikning hefur iðrast gjörða sinna
og látið skuldfæra á sig það sem
hann kvittaði fyrir.
Hannes! Eftir þennan ntál-
flutning getur þú alveg eins flutt
erindi á fundi bæjarstjómar og
mótmælt því að verktakahúsið
sem hýsir bæjarskrifstofumar sé
ljóst að lit og sagt húsið vera
dökkrautt á litinn og síðan eins
fengið Gulu pressuna til að setja
á útsíðu þá fregn að okkar frétt
hafi verið röng.
Að endingu Hannes! Ef þú vilt,
getum við, eins og þú veist, nafn-
greint fjöldann allan af fólki sem
tók þátt í sukkinu eða varð vitni
að því. Þó þetta Itafi farið úr
böndunum hjá þeim sem ábyrgir
eru, þarf að sameinast um að bæta
um og varast í framtíðinni, en
ekki ráðast á þann sem sér bjálk-
ann í augum ykkar.
Hvað Guðfinnur á við því sem
haft er eftir honum skiljum við
ekki. En við vitum líka að það er
slæmt fyrir ykkur ef þið missið
framvegis af sopa vegna þessara
skrifa, en það er ykkar mál. Eins
megið þið velta ykkur upp úr því
að vild, hvaða hugsanagangur sé
illa innrættur og hver ekki.
Hafið að lokum í huga að í öll-
um málum er bara til einn sann-
leikur. Þó svo að menn taki sig
saman unt að segja að sann-
leikurinn sé lygi, þá breytir það
ekki sannleikanum, heldur býr
aðeins til lygara.
Með baráttukveðjum
Ritstj. Víkurfrétta
• Grein Suðurnesjafrétta í síðustu viku.
Yikurfrcttir
Húsamálun
Dúka- og teppalögn
Nordsjö málningarvörur
Nú er rétti tíminn til að
panta húsamálarana íyrir
jólin.
BG húsamálun Sími I 7 950
Verkstjórí: Sævar Jóhannsson
sími 12007
FÉLAGSVIST
I GARÐINUM
ÖLL FIMMTUDAGSKVÖLD
KL. 20:30 í SÆBORGU,
HÚSI VERKALÝÐSFÉLAGSINS,
(BAKVIÐ PÓSTHÚSIÐ)
BJÖRGUNARSVEITIN ÆGIR, GARÐI
LEIKFELflG KEFLAVíKUR
^ Höfundur
OMAR JOHANNSSON
FRtTTAVEITfll
SUÐURNESJA
Síðustu sýningar
um helgina
Fimmtudaginn
Föstudaginn
Laugardaginn
24. okt. kl. 21
25. okt. kl. 21
26. okt. kl. 21
ANDRES SIGURVINSSON
Leikstjóri
Miðasala hefst kl. 19 í Félagsbíói sýningardagana. Miðaverð kr. 1000 Fyrir elli-
lífeyrisþega kr. 800. Fyrir nemendur gegn framvísun skólaskírteina kr. 800.